Bæjarblaðið - 20.12.1984, Side 3
Hið sanna Ijós
Jólahugvekja eftir sr. Björn Jónsson
Jóh. 1.1-14
Jólin eru í nánd.
Einmitt nú er jólaannríkið að ná hámarki. Paðfer ekkiframhjá neinum,
efvið aðeins höfum opin augu og eyru. Jólaljósunum hefirsífellt verið að
fjölga undanfarnar vikur. Aðventukransar, aðventustjörnur og aðventu-
Ijós, Ijósaskreytingar yfir verslunargötur, Ijósaraðir ásvölum, Ijósíkirkju-
görðum, kerta og perusala ífullum gangi—og síðast en ekki síst—Ijósum
prídd jólatré á torgum bæjanna. Já, og síðastliðinn sunnudag var einmitt
kveikt á stóra jólatrénu á Akratorgi, með viðeigandi tilfœringum, ræðu-
höldum, lúðrablæstri og jólasveinum.
Öll þessi Ijós gleðja okkur því meir vegna þess, að jólahátíðina ber ein-
mitt upp á þá daga ársins, sem dimmastir eru. Oft heyrist líka um það rætt
að jólaljósin og jólaamstrið stytti skammdegið og geri mönnum léttara í
skapi, einmittþegar dimman er hvað lengst og drunginn mestur. Án efa er
talsverður sannleikur í slíkri staðhæfingu. En hitt er vert að hugleiða hvort
öll þessi Ijósadýrð hafi einhverja merkingu fyrir okkur aðra en þá, að gefa
okkur gleði á meðan stystur er sólargangur.
„Hið sanna Ijós, sem upplýsir hvern mann, var að koma íheiminn“ seg-
ir í jólaguðspjalli Jóhannesar, sem vitnað er til í upphafi þessara orða.
„Ljósið skín í myrkinu“ segir þar einnig. Ekki er þar átt við svartnætti
skammdegisins, heldur við veröld mannsins.
Það mun tæpast ofmælt, að þeir tímar, sem við lifum nú, séu tímar böl-
sýni og vonleysis. Sjaldan hefir verið spurt áleitnari spurninga umframtíð
heims og manns en einmitt nú. Bölsýnið og vonleysið á sér ekki rœtur í
Svartagallsrausi trúarleiðtoga. Heimsendir er nú ekki aðeins og fyrst og
fremst boðaður af prédikunarstólum kristinna kirkna. Framtíðarfræðing-
ar með stafla af framtíðarspám um fólksfjölgun orkuþurrð, fæðuskort,
mengun, styrjaldarlíkur, fimbulvetur að afstöðnu kjarnorkustríði o.f.
frv., flytja okkur þennan boðskap. Þær erufáar bjartsýnisraddir, sem við
heyrum, umframtíð heims og manns. Ósjálfrátt koma þaufram í hugann
orðin ífyrsta kapítula fyrstu Mósebókar „Myrkur grúfði yfir djúpinu“.
Þeir eru margir sem tjá sigfúsa til að selja hrjáðu mannkyni Ijós. Margir
sem segjast eygja vonfyrir manninn. Sú von ergjarnan tengd möguleikum
mannsins sjálfs. Trúarlegar hreyfingar af óskyldasta tagi fara víða um
lönd. Mannkyn, ekki síst sá hluti þess, sem á lífið framundan, þ.e.a.s.
æskan, leitar Ijóss, leitar vonar.
Kristnir menn trúa því að LJÓSIÐ — VONIN, sé þegar í heiminn
komið. Jesús Kristur, hið sanna Ijós, sem upplýsir hvern mann, kom í
heiminn. „Dýrð sé Guði í upphæðum ogfriður á jörðu“ sungu englarnir
á Betlehemsvöllum hinafyrstu jólanótt. „Ljósið skín í myrkrinu“.
Svo segir guðspjall Jóhennesar. En það segir meira, „Ljósið skín í
myrkrinu og myrkrið hefir ekki tekið á móti því. Hann kom til eignar
sinnar og hans eigin menn tóku ekki við honum“.
Jesús Kristur skírskotar ekkifyrst ogfremst tilfjöldans. Hann mætir ein-
staklingnum með Ijós sitt og líf og spyr: Viltu þiggja? Viltu þiggja líf af
mínu lífi, Ijós afmínu Ijósi, von ogfrið?
Þegar þú kveikir á aðventuljósunum þínum, þegar þú sérð Ijósadýrðina
í kringum þig, þegar þú kveikir á jólatrénu þínu, láttu það þá verða þér
prédikun um hið sanna Ijós, sem kom í heiminn til þess að lýsa þér, gefa
þérfrið, gefa þér von. Láttu það ekki aðeins verða þér styttingu á skamm-
deginu, heldur varanlegt Ijós í lífiþínu. „Öllum þeim sem tóku við honum
gafhann rétt til að verða Guðs börn“. Sá réttur erþér einniggefinn afkær-
leika án skilyrða. Aðeins að þú viljir þiggja.
Gjörðu svo vel.
Þér eruð Ijós heimsins“ sagði Jesús við þá, sem gengu honum á hönd.
Þeir voru það ekki afsjálfum sér, heldur vegna þess, sem hann hafði gefið.
Þetta er einnig sagt við þig, sem ert lærisveinn Jesús í dag. Þú ert sendur
með Ijós vonar, kærleika og friðar þar sem þú ferð meðal þeirra, sem
finnst mykrið umlykja sig og eygja þar von. Þú getur til dæmis látið Ijósið
þitt lýsa inn í ósegjanlegan þjáningarheim þúsundanna, sem ekkert sjá
annað framundan en hungurdauðann, með því að leggja þinn skerf í
söfnunina „Brauð handa hungruðum heimi“, svo að einn möguleiki af
mörgum sé nefndur. En gleymdu því aldrei, að því aðeins geta geislarnir
þínir orð blessunarvaldar að þeir eigi upptök sín í þeim helga boðskap,
sem túlkaður er á svo dýrlegan hátt í þessufagra jólaversi.
„Þú helga barn í Betlehem,
sem borið varst á jörð.
Hún þvær burt synd, þín lífsins lind
þig lofar englahjörð,
og mönnum boð þau bera, að brátt er sigrað hel
þú góður ert og gjöfmín sért,
ó, Guð — Immanúel“
Immanúel þýðir: GUÐ MEÐ OSS.
„Ljósið skín í myrkrinu“
Mætti hið sanna Ijós, Jesús Kristur, sem á jólunum fæddist, finna sér
farveg í hjarta þínu og verða þér gjöfin æðsta og besta — Immanúel.
Með honum og í honum átt þú „eilíft Ijós, sem aldrei slokknar“. Hann
gefi þér í sínu náðarnafni GLEÐILEG JÓL.
Öryggisþjónusta
Slökkvilið - Lögregla - Sjúkrabílar
Lögreglan sér um akstur sjúkrabíla og út-
köll slökkviliðs. Símar á lögreglustöð eru
1166 og 1977. Sérsími slökkviliðs er 2222
en í því númeri er einnig svarað á lögreglu-
stöðinni.
Sjúkrahús Akraness -
Læknavakt
Síminn á Sjúkrahúsinu er 2311. Símsvari
hefur númerið 2358 og gefur hann upplýs-
ingar um lækni á bæjarvakt allan sólar-
hringinn.
Jóla- og áramótamyndir
Bíóhallarinnar
Bíóhöllinn veður með fjórar stórmyndir til
sýningar um jól og áramót. Þar ber fyrsta að
telia Fiör í Ríó (Blame it on Rio), sem svnd
verður 21. des. kl. 23.15 og 23. desember
2100 og 23’5. Þetta er frábær grínmynd,
sem eins og nafnið bendir til er tekin í hinni
glaðværu borg Ríó í Brasilíu. Aðalhlutverk
er í höndum þeirra Michael Caine, Joseph
Bologna og Michelle Johnson.
Á annan dag jóla kl. 1600 verður sýnd
myndin GARP (The World according to
Garp), er þetta bandarísk stórmynd, sem er
gerð eftir metsölubók John Irvings. Er þetta
mynd sem hvarvetna hefur verið sýnd við
metaðsókn. Aðalhlutverk leika Robin
Williams og Mayr Beth Hurt. (Ath. áætlaðar
eru fleiri sýningar á myndinni en þessi eina.
En rúsínan í pylsuendanum er svo mynd
Ágústar Gumundssonar Gullsandur sem
verður sýnd á annan í jólum kl. 19.00 og
Jóladagbókin
2100 og einnig 27. des. og 28. des. á sama
tíma.
Um áramótin verður síðan grínmyndin
Rauðklædda konan (The Woman in Red)
með háðfuglinum Gene Wilder í aðalhlut-
verki, og ekki sakar að geta þess að titillag
myndarinnar er sungið og samið af Steve
Wonder, „I just called to say I love you.“
Semsagt full ástæða til þess að skella sér í
þíó um jól og áramót, þar sem á boðstóln-
um er eitthvað fyrir alla.
Tannlæknar
Sjálfvirkir símsvarar gefa upplýsingar á
tannlæknastofum bæjarins yfir hátíðirnar.
Símanúmar á tannlæknastofunum eru:
Tannlæknastofan Kirkjubraut 40 — 1385,
Tannlæknastofa Sigursteins Gunnarsson-
ar — 2975, Tannlæknastofa Ægis Rafns
Ingólfssonar — 2355.
Dansleikir í Hótel Akranes
Dansleikir í Hótel Akranes verða með svip-
uðu sniði og undanfarin ár.
Föstudaginn 21. des og laugardaginn 22.
des. verða dansleikir frá kl. 22-03. Diskótek.
Annan jóladag: Jóladansleikurfrá kl. 22-02.
Föstudaginn 28. des og laugardaginn 29.
des. Dansleikir frá kl. 22-03.
31. des. Áramótadansleikur. Aldurstak-
mark 16 ár. kl. 24.15-04.
Lesendum er bent á að dansleikirnir verða
auglýstir nánar í götuauglýsingum.
Söluskálar
Á það skal bent að söluskálarnir og Versl.
Traðabakki eru opnar á Aðfangadag og
Gamlársdag til kl. 15.00.
Ferðir Akraborgar
Ferðir Akraborgar um jól og áramót verða
sem hér segir:
Aðfangadagur: Frá Akranesi kl. 8.30 og
11.30, og frá Reykjavík kl. 10.00og 13.00.
Á jóladag verður engin ferð.
Annar jóladagur: Frá Akranesi kl. 14.30 og
frá Reykjavík kl. 16.00 (Ath. aðeins ein
ferð).
Gamlársdagur: Frá Akranesi kl. 8.30 og
11.30 og frá Reykjavík kl. 10.00og 13.00.
Engin ferð verður á Nýársdag.
Messur um jól og áramót
Sunnud. 23. des. (Þorláksmessa)
Jólasamkoma fyrir börn í kirkjunni og safn-
aðarheimilinu kl. 13.30.
HátíðarguðsþjónustaáSjúkrahúsinu kl. 16.
Aðfangadagur:
Aftansöngurkl.18.
Miðnæturguðsþjónusta kl. 23.30.
Jóladagur:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
2. jóladagur:
Skírnarguðsþjónusta kl. 13.30.
Fimmtudagur 27. des.:
Jólavaka á Dvalarheimilinu Höfða í umsjá
sóknarprests og kirkjukórs kl. 20.30
Gamlárskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Nýársdagur:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 (Valdimar Ind-
riðason alþingismaður, flyturhátíðarræðu.)
(Ath.: Guðsþjónusturnar fara fram í Akra-
neskirkju nema annars sé getið.)
Frá Skaganesti
Opið á aðfangadag og gamlársdag til kl. 15.00.
Áannan íjólum verðuropiðkl. 10-12 og 14-01.
Skaganesti
Gleðileg jól!
Við sendum viðskiptavinum
okkar innilegar jóla- og
nýársóskir.
Þökkum viðskiptin á
liðnum árum.
1
BÓKASKEMMAN
STEKK JARHOLT 8-10 - SlMI 93-2840