Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 6
KJARAMÁL Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, bindur miklar vonir við störf framtíðarnefndar og segir að félagið ætli að verða leiðandi þegar kemur að umræðunni um fjórðu iðnbyltinguna. Þessi vinna muni skila sér í kröfugerðir félags- ins en einnig vonast hann eftir breiðu samstarfi verkalýðshreyf- ingarinnar, atvinnurekenda og hins opinbera til að takast á við hið risa- stóra verkefni. R ag nar seg ir að u mræðan um sjálfvirknivæðinguna haf i staðið yfir í félaginu um nokkurn tíma. Sjálfur hefur hann skoðað hátæknivöruhús í Finnlandi þar sem störfum hefur fækkað úr 1.500 niður í 750 vegna tilkomu róbóta. Að sama skapi hafi störfin breyst og ný hálaunastörf skapast. Hér á Íslandi er Innnes að reisa hátækni- vöruhús við Sundahöfn að þessari fyrirmynd. „Okkar ætlun er að vera í forystu- hlutverki. Til þess að geta haft áhrif þurfum við að taka þátt í þessari þróun í stað þess að ala á ótta við breytingar sem við höfum ekki stjórn á,“ segir Ragnar. Ragnar segir þetta vera stærsta málið sem verkalýðshreyfingin standi frammi fyrir og að barátta næstu ára muni taka mið af því. „Við munum taka vinnu þessarar nefndar og koma henni á fram- færi innan Alþýðusambandsins og opinbera geirans. Við þurfum líka að fá sem flesta að þessu því þetta snertir svo margar starfsgreinar. Verkalýðshreyfingin má ekki sitja eftir sem áhorfandi.“ Ef atvinnuleysi mun aukast verulega eins og svörtustu spár gefa til kynna, þá mun álagið á grunnþjónustuna vaxa í takti við það. Ragnar segir þess vegna mikilvægt að hið opinbera sé aðili að samtalinu. Nú þegar er til fram- tíðarnefnd ríkisstjórnarinnar en grunninn fyrir hið breiða samtal allra aðila skorti. „Ef atvinnuleysið verður svona mikið þá verður að fara að taka umræðuna um borgaralaun og hvernig við bregðumst við. Hugsan- lega með því að skattleggja tækni,“ segir Ragnar. Ein af áskorununum er að endur- mennta fjölda fólks og Ragnar segir að VR sé þegar byrjað á þeirri vinnu. „Síðasta vor komum við á fót fag- háskólanámi í verslunarstjórnun og verslun með breytingar á til dæmis dagvörumarkaði í huga,“ segir Ragnar. „Það er samstarfsverkefni VR, Samtaka verslunar og þjónustu og menntamálaráðuneytisins. Raf- iðnaðarmenn hafa einnig komið skóla á fót. Það er samt ljóst að það er mikið verk óunnið.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Fjórða iðnbyltingin breytir baráttu verkalýðshreyfingar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir félagið ætla í forystuhlutverk í umræðunni um sjálf- virknivæðinguna. Ef ekki verði brugðist við og atvinnuleysi aukist verði að ræða borgaralaun. Ef atvinnuleysið verður svona hátt þá verður að fara að taka umræðuna um borgaralaun og hvernig við bregðumst við. Hugsanlega með því að skattleggja tækni. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ofboðslega heitt BRETLAND Boris Johnson, nýr for- sætisráðherra Bretlands, sparaði ekki stóru orðin í fyrsta ávarpi sínu á þingi sem forsætisráðherra í gær. Hann lofaði þar upphafi nýrrar gullaldar. „Verkefni okkar er að sigla Brexit heim þann 31. október til þess að sameina Bretland á ný og gera það að besta landi jarðar,“ sagði Johnson sem tók aukinheldur fram að hann væri ekki að ýkja. Bretland gæti orðið hagsælasta ríki heims fyrir árið 2050. Þá lofaði hann því að börn og barnabörn Breta myndu lifa lengur, vera hamingjusamari, heilbrigðari og auðugri. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, var ekki hrifinn. Sagðist hafa miklar áhyggjur af því að forsætisráðherrann væri að ofmeta eigin getu. „Fólkið treystir þessum forsætisráðherra ekki til þess að taka réttar ákvarðanir fyrir meirihluta þjóðarinnar þegar hann er einnig að lofa skattalækkunum á ríkustu stórfyrirtækin, bakhjarla flokks hans.“ Ráðuneyti Johnsons fundaði saman í fyrsta skipti í gær. Sajid Javid, fyrrverandi innanríkis- málaráðherra, er nýr fjármálaráð- herra á meðan Dominic Raab, áður útgöngumálaráðherra, er orðinn utanríkisráðherra og Priti Patel, áður þróunarmálaráðherra, er orðin innanríkisráðherra. – þea Johnson boðar nýja gullöld 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Raab, Johnson og Javid í sal breska þingsins í gær. NORDICPHOTOS/AFP SPÁNN Pedro Sánchez, starfandi forsætisráðherra Spánar og leið- togi Sósíalistaf lokksins (PSOE), fékk ekki meirihluta atkvæða þegar spænska þingið greiddi atkvæði um tilnefningu hans í embætti forsætis- ráðherra í gær. PSOE fékk flest þing- sæti í kosningum í apríl og hefur reynt að afla stuðnings til að mynda minnihlutastjórn, en án árangurs. Alls greiddu 124 þingmenn atkvæði með tillögunni, 155 lögð- ust hins vegar gegn henni og 67 sátu hjá. Af þessum 124 sem studdu Sánchez komu 123 úr PSOE og einn úr smáflokknum PRC. Öfgaíhalds- f lokkurinn Vox sagði nei og það gerðu Lýðf lokkurinn, Borgara- flokkurinn, katalónski sjálfstæðis- f lokkurinn Junts per Catalunya og tveir smáf lokkar líka. Hinn stóri vinstrif lokkurinn, Podemos, sat hjá. Það gerðu baskneski sjálf- stæðisf lokkurinn PNV og hinn katalónski ERC líka. PSOE hafði átt í viðræðum við Podemos fram á síðustu stund, að því er El País greinir frá. Ekki gekk hins vegar að komast að samkomu- lagi. Spánverjar fá annað tækifæri til þess að samþykkja forsætisráðherra í september. Ef það gengur ekki þarf að boða til kosninga í nóvem- ber sem yrðu þá þær fjórðu á jafn- mörgum árum. – þea Vonbrigði fyrir Pedro Sánchez Meginlandsbúar takast nú á við aðra risahitabylgju sumarsins og bregða margir á það ráð að stökkva út í sjó eða vatn til þess að kæla sig niður. Hitamet voru slegin víða í Frakklandi í gær og þessir Þjóðverjar f lutu á Altwarmbüchener See í Hannover í 39 gráðu hita í gær. NORDICPHOTOS/AFP Sánchez vonsvikinn. NORDICPHOTOS /AFP 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 9 -D B 3 0 2 3 7 9 -D 9 F 4 2 3 7 9 -D 8 B 8 2 3 7 9 -D 7 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.