Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÞAÐ BÚA REYNDAR NÚNA SEX KISUR Á KAFFIHÚSINU. ÉG VEIT EKKI HVAÐ ORSAKAR ÞAÐ EN MÉR FINNST MEIRA UM KETTI Í HEIMILISLEIT NÚNA EN VANALEGA. 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 14. SEPTEMBER Í ELDBORG MIÐASALA Á HARPA.IS/DIVUR FÁIR MIÐAREFTIR!EKKI ER HÆGT AÐ BÆTAVIÐ FLEIRI TÓNLEIKUM SVALA & JÓHANNA GUÐRÚN DÍSELLA · FR IÐRIK ÓMAR · KATRÍN HALLDÓRA RAGGA GRÖNDAL · S IGGA BEINTEINS Fyrsta kattakaff ihúsið var opnað í Taívan árið 1998 og nú njóta þau vin­sælda út um allan heim. Þær Gígja Sara Björnsson og Ragnheiður Birgis­ dóttir reka saman Kattakaffihúsið við Bergstaðastræti, fyrsta og eina kattakaffihúsið hérlendis. Kaffi­ hús sem þessi bjóða þeim sem ekki geta búið með köttum, eða langar að kynnast ketti vel áður en hann er ættleiddur, upp á einstakt tæki­ færi til þess að kynnast kisum. Gígja Sara svaraði nokkrum spurningum Fréttablaðsins um reksturinn og hvernig þetta allt saman æxlaðist. „Við Ragnheiður bjuggum í sama húsinu fyrir nokkrum árum. Kött­ urinn minn fór svo reglulega í heim­ sókn til Ragnheiðar, þannig að við urðum smá kisuvinkonur, vorum alltaf að tala um köttinn og hvað hann væri að bralla. Einn daginn nefndi hún þessa hugmynd við mig eftir að hún sá umfjöllun um katta­ kaffihús í Asíu,“ segir Gígja sem fannst hugmyndin að slíku kaffi­ húsi alveg einstaklega góð. „Við höfðum báðar mikið verið að skoða Dýrahjálp, Kattholt og Katta­ vaktina og fannst báðum mjög leitt hvað það voru margir kettir í heim­ ilisleit. Þannig að við ræddum þessa hugmynd, að opna kaffihúsið og svo gætu gestir ættleitt kettina.“ Gígja var að klára nám í Lista­ háskólanum á þessum tíma. Eftir að því lauk rákust þær á húsnæðið sem kaffihúsið er í og fannst það algjör­ lega kjörið undir starfsemina. „Það er með stórum og fallegum­ gluggum fyrir kisurnar og svo er staðsetningin líka æðislega, mið­ svæðis en ekki alveg í allri örtröð­ inni. Við ákváðum að kýla bara á þetta. Við pössum að hafa ekki of margar kisur í einu svo hver og ein fái að njóta sín,“ segir Gígja. Ragnheiður og Gígja reyna því að halda sig við þá reglu að hafa ekki f leiri en fimm kisur í einu. „Það búa reyndar núna sex kisur á kaffihúsinu. Ég veit ekki hvað orsakar það en mér finnst meira um ketti í heimilisleit núna en vanalega. Kannski tengist það sumarleyfum? Staðan er sú að mjög marga ketti vantar heimili og það eru nokkrir á biðlista að fá sama­ stað hjá okkur.“ Móðir Gígju er Helga Björnsson fatahönnuður, en hún starfaði lengi sem aðalhönnuður hátískuhússins Louis Féraud í París. Helga deildi áhuga Gígju og Ragnheiðar á kött­ um og var því meira en lítið til í að taka að sér hönnun á útliti staðarins og fegra með list sinni. „Það er mjög gaman að hafa hennar blæ líka yfir kaffihús­ inu. Mér f innst starfsemin skiptast í þessar þrjár megin­ áherslur. Að hjálpa köttum í heimilisleit, bjóða nánast eingöngu upp á grænkerafæði og svo fallegt umhverfi og list.“ Gígja segir Ragnheiði mjög fróða í markaðstengdum málum sem hafi mikið hjálpað við stofnun kaffi­ hússins. „Svo eru líka nánast einhverjir galdrar við þetta húsnæði, kött­ unum kemur svo vel saman þarna. Það kom á óvart, en auðvitað verða stundum einhver leiðindi. En furðu lítið samt!“ Hún segir 36 ketti hafa fundið heimili í gegnum Kattakaffihúsið. Innt eftir minnisstæðum atvikum í rekstrinum segist hún sérstaklega muna eftir sögu af kettinum Stellu. „Þetta var bara minnir mig dag­ inn eftir að hún f lutti til okkar. Fyrst var hún aðeins feimin en svo bókstaflega stal hún bananabrauði úr munninum á barni. Kettirnir eru svo mismunandi karakterar. Sumir eru einmitt algjörir steliþjófar og nokkrir vilja til dæmis bara drekka úr vatnsglösum gestanna,“ segir Gígja hlæjandi. Kattakaffihúsið er opið alla daga frá 10­18 og er á Bergstaðastræti 10a. steingerdur@frettabladid.is Opnuðu kattakaffihús í miðbænum Þær Gígja og Ragnheiður létu drauminn rætast og opnuðu fyrsta og eina kattakaffihúsið á Íslandi. Þar geta gestir kynnst köttunum og jafnvel fundið nýjan fjölskyldumeðlim. Ragnheiður Birgisdóttir og Gígja Sara Björnsson reka saman Kattakaffihúsið við Bergstaðastræti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 9 -D 6 4 0 2 3 7 9 -D 5 0 4 2 3 7 9 -D 3 C 8 2 3 7 9 -D 2 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.