Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 14
Elskuleg móðir okkar og mormor, Hanne Jeppesen lést á Droplaugarstöðum 18. júlí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. ágúst klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Innilegar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir góða aðhlynningu og hlýhug. Móna Steinsdóttir. Lizy Steinsdóttir Daníel Einar Hauksson Katrín Hanna Hauksdóttir Sara Gunnlaugsdóttir Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, Ástmar Ingimarsson lést mánudaginn 22. júlí. Hann verður jarðsunginn 30. júlí frá Fella- og Hólakirkju kl. 13.00. Eyrún Ingimarsdóttir Árni H. Ingason Elías J. Ingimarsson Guðný Róbertsdóttir Ingi V. Ingimarsson Birna Ingimarsdóttir Sara Harðardóttir systkinabörn og systkinabarnabörn. Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, Kristínar Hagalínsdóttur Skólavörðustíg 26. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A4 Landspítala í Fossvogi og starfsfólks líknardeildar Landspítala í Kópavogi fyrir alúð og hjúkrun í veikindum móður okkar. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Haraldsdóttir Einar Ólafur Haraldsson Helga Hrönn Elíasdóttir Ómar Ingi Magnússon Guðrún Kristín Einarsdóttir Vilhjálmur Vilhjálmsson Eydís Björk Einarsdóttir Karen María Einarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Lilja Halldórsdóttir andaðist á LSH við Hringbraut þann 11. júlí síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Páll Vilhjálmsson Halldór Pétur Pálsson Andrea Schlecht Vilhjálmur Pálsson Klara Straumsnes Þórsteinn Pálsson Ástríður Jóhanna Elvarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, lést í Stokkhólmi, mánudaginn 15. júlí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 30. júlí kl. 13. Bergþóra Karen Ketilsdóttir Davíð Þór Þorsteinsson Helena Eufemía Snorradóttir Dagrún Inga Þorsteinsdóttir Marteinn Ingi Smárason Þorkell Viktor Þorsteinsson Katrín Birna Sigurðardóttir Alexandra Karen, Antonía Kolbrún, Alda Karen Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir Árni Sigfússon Bryndís Guðmundsdóttir Gylfi Sigfússon Hildur Hauksdóttir Margrét Sigfúsdóttir Bjarni Sigurðsson Þór Sigfússon Halldóra Vífilsdóttir Sif Sigfúsdóttir Búi Kristjánsson Heittelskaður eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ólafur Jónsson fv. sérfræðingur Landsbanka og áður verkstjóri, Áslandi 2, Mosfellsbæ, lést á krabbameinsdeild Landspítalans 11E þann 23. júlí sl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þann 31. júlí kl. 11. Kristín Sæunnar Sigurðardóttir Sæunn Ólafsdóttir Benedikt Arnarson Iðunn Ólafsdóttir Árni Valur Skarphéðinsson Ólöf Rún Árnadóttir, Skarphéðinn Stefán Árnason, Ríkharður Rafn Árnason, Þula Guðrún Árnadóttir, Baldur Benediktsson, Freyja Benediktsdóttir List og súkkulaðigerð Fríða í notalegu kaffihúsi sinu. Myndir hennar, sem sýna fjölskyldutengsl, eru í bak- grunni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ljúffengir konfektmolar með fyllingu. Þegar Fríða Björk Gylfa- dóttir missti vinnuna í bankanum ákvað hún að sameina áhugamál sín og stofnaði súkkulaði- kaffihús á Siglufirði. Fríða Björk Gylfadóttir rekur kaffihúsið Fríða súkkulaði-kaffihús á Siglufirði. Þar er boðið upp á heitt súkkulaði og gómsætt heimagert konfekt í notalegu umhverfi. Veggina prýða svo myndir eftir Fríðu, en hún var með vinnustofu í sama húsi. „Ég vann hjá Arion banka og missti vinnuna árið 2015 og þá stakk bóndinn upp á því að ég myndi sameina áhuga- mál mín; listina og súkkulaðigerðina sem ég hafði fengist við heima í fimmtán ár. Þetta var svo skemmtileg hugmynd að ég gat ekki látið hana verða að engu,“ segir Fríða. Fríða býr til konfektmola og súkku- laðiplötur og heitt súkkulaði. Hún segir vinsælustu súkkulaðiplöturnar vera karamellusúkkulaði með trönuberjum og sjávarsalti og fast á hæla þess fylgi ljóst karamellusúkkulaði með Appollolakkrís og karamellukexperlum. Ljúffengir kon- fektmolar eru allir með fyllingu og þar notar Fríða meðal annars gráðost og romm. Hún segir aðsóknina vera miklu betri en hún hafði átt von á. „Útlendingar eru duglegir að koma og staðurinn spyrst mjög vel út.“ Spurð hvort það hafi verið áfall að missa vinnuna segir hún: „Auðvitað var sjokk að vera sagt upp vinnunni, ég var búin að vera þarna í 20 ár, en eigin- maðurinn kallaði þetta blessun. Það er miklu meiri vinna á mér núna og miklu minni laun en miklu meira gaman.“ Lék í Paradísarheimt Þegar Fríða var fjórtán ára lék hún í sjón- varpsþáttunum Paradísarheimt sem gerðir voru eftir sögu Halldórs Laxness. „Ég sá að það var auglýst eftir statista og fór í viðtal. Um kvöldið var hringt í mömmu og pabba og þeim tilkynnt að ég fengi hlutverk. Ég var í Kvennaskólanum og Guðrún skólastjóri gaf mér frí með því skilyrði að ég myndi ekki sækjast eftir aðalhlutverkinu.“ Fríða lék Steinu, dóttur Steinars bónda, og meðal leikara voru Jón Laxdal, Rúrik Haraldsson, Róbert Arnfinnsson, Helga Bachmann, Helgi Skúlason og f leiri kempur. „Þetta var mikið ævintýri og mér, tryppinu sem kunni ekkert og vissi ekkert, var tekið dásamlega.“ Lengri varð leikferillinn ekki, en dansinn tók við. „Ég sá Singin in the Rain og svaf ekkert um nóttina og skráði mig í danstíma daginn eftir og var í dansi í átta ár.“ Myndir um fjölskyldutengsl Nú er það myndlistin sem á hug Fríðu ásamt súkkulaðigerðinni. Hún er ekki lærð í myndlist en segist mála eins mikið og hún geti. Hestamyndir hennar prýða kaffihúsið auk raðar mynda sem sýna fjölskyldutengsl. „Gamall bekkjarbróðir minn úr MR og eiginmaður hans komu í heimsókn til mín. Ég fór að hugsa að það væri ekkert svo langt síðan samband eins og þeirra var ekki leyfilegt. Ég fór að skoða alls konar fjölskyldumynstur og til varð myndaröð sem sýnir tengslaþræði. Ég gerði 30 slíkar myndir og sýndi fyrir sunnan hjá Ófeigi á Skólavörðustíg. Nú eru nokkrar þessara mynda hér á sýn- ingu.“ kolbrunb@frettabladid.is Þetta var svo skemmtileg hug- mynd að ég gat ekki látið hana verða að engu. Merkisviðburðir 1896 Suðurlandsskjálfti á svæðinu frá Landsveit vestur í Ölfus. Fjöldi bæja í Rangárvallasýslu hrynur til grunna. Þetta var sá fyrsti af fimm skjálftum, sem áætlað er að hafi verið 6,5-6,9 stig að styrk. 1929 Vélbáturinn Gotta kemur til Reykjavíkur úr leiðangri til Grænlands. Með í för eru fimm sauðnautskálfar sem fyrst eru geymdir á Austurvelli og vekja þar mikla athygli. Síðar eru þeir fluttir í Gunnarsholt þar sem þeir týna tölunni. 1959 Til mikilla átaka kemur á dansleik á Siglufirði, þar sem á annað hundrað skip voru í höfn vegna brælu. Tólf menn slasast í fjöldaslagsmálum. 1984 Keppt er í Reykjavíkurmaraþoni, alþjóðlegu mara- þonhlaupi, í fyrsta sinn. Þátttakendur eru 214 en árið 2018 voru þeir um níu þúsund. 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 9 -C 2 8 0 2 3 7 9 -C 1 4 4 2 3 7 9 -C 0 0 8 2 3 7 9 -B E C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.