Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 26.07.2019, Blaðsíða 22
að fólk komi út af heimilum sínum til að hvetja hlauparana. „Það er orðið meira af því hér heima, að fólk klappi og það sé tónlist spiluð. Það er rosalega gott að fá tónlistina inn, þá hristir maður hendurnar og klappar eins og heyrnarlausir til að þakka fyrir sig. Það verður mjög fínt að fara inn í íbúagöturnar.“ Margrét segist þó ekki alveg viss hvort hún ætli að taka þátt í f leiri hálfmaraþonum eftir Reykjavíkur- maraþonið þar sem golfið heilli. „En hver veit. Ég frétti af sjötugri konu sem „trimmaði“ Laugaveg- inn.“ Fyrir Margréti er „trimmið“ eða skokkið slakandi og gott tæki- færi til að njóta náttúrufegurðar. „Það gerir rosalega mikið fyrir mig og ég nýt þess í botn að vera ein á Hólmsheiðinni að skokka. Ég hef verið svo heppin að geta stundað skokkið og fá að skreppa út í nátt- úruna til að njóta hennar. Það er mitt lífsmottó.“ Þolþjálfun eykur vellíðan Á Hólmsheiðinni er fullt af malar- stígum og hestaslóðum sem Mar- grét skokkar um. Þó hún sé oftast ein á heiðinni segist hún taka eftir að utanvegahlaup er orðið vinsælt. „Ég æfi alltaf á malarstígum og í náttúrunni, þar sem það er bæði skemmtilegra og hollara en að vera á malbiki.“ Margrét starfaði sem kennari og íþróttakennari alla sína tíð. „Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að fólk njóti þess sem það er að gera. Það þarf ekki að fara of hratt og heldur ekki of langt.“ Margrét segist hafa fundið fyrir því þegar hún var í skokkhópnum á 9. áratugnum að sumir í hópnum vildu árangur strax, en voru ekki tilbúnir þar sem þá vantaði betri grunnþjálfun. Skokkið er bæði gott fyrir and- lega og líkamlega heilsu. Margrét hefur alla tíð í sinni kennslu lagt mikla áherslu á þolþjálfun, sem er gífurlega mikilvæg. Færni hjartans til að flytja súrefni út til vöðvanna eykst með þolþjálfun, þá líður manni betur og hreinsar líkamann af alls konar kvillum að hennar sögn. Góðar þolþjálfunaræfingar sem Margrét nefnir eru til dæmis röskleg ganga, skokk og ganga til skiptis, dans, að hjóla, sund og skíðaganga. Heppin að hafa gaman af íþróttum Margrét upplifir að fólk sé með- vitaðra í dag um mikilvægi þess að hreyfa sig daglega og að ofreyna sig ekki. „Í dag eru hugmyndir um hreyfingu allt öðruvísi, sem mér finnst rosalega gott.“ Margrét segir að hreyfing sé alveg jafn mikilvæg og að tannbursta sig. Það sé afleitt að fólki detti í hug að hætta að hreyfa sig eftir þrítugt. „Það er bara ekki inni í myndinni.“ Margrét telur sig einstaklega heppna að hafa alltaf fundist gaman að íþróttum, það er ekki öllum sem finnst það. Ef maður hefur ekki gaman af íþróttinni sem maður stundar þá eru líkur á að maður hætti. „Það er óþarfi að hræða fólk og segja að það þurfi að vera marga klukkutíma á dag að hreyfa sig. Nú er ég á efri árum og ég bendi fólki á mínum aldri oft á þessa daglegu hreyfingu sem er kannski hálftími. Það gerir mikið fyrir fólk til að berjast við Elli kerlingu.“ Margrét mælir til dæmis með göngutúrum eða sundi. Sjálf endar hún alltaf hvers kyns íþróttaæfingu sem hún stundar á sundi og vatnsnuddi. „Það er það besta. Ég veit að það er tímafrekt fyrir yngra fólk, en maður þarf ekkert að vera lengi í sundinu.“ Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Flestir vita að hreyfing af öllu tagi er góð fyrir heilsuna. Líklega eru færri sem vita að regluleg hreyfing í 30 mínútur á dag getur minnkað líkur á ýmsum tegundum krabbameina svo sem í ristli og endaþarmi, brjóstum og legbol. Rannsóknir sýna að ein- staklingar sem hreyfa sig reglulega greinast sjaldnar með krabbamein en þeir sem hreyfa sig lítið sem ekkert. „Við segjum okkur líklega alltof oft að við höfum ekki tíma til að hreyfa okkur,“ segir Jóhanna Eyrún Torfadóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá Krabbameinsfélag- inu. „Góðu fréttirnar eru að það þarf ekki að hlaupa maraþon til að hafa jákvæð áhrif á heilsuna. Það að labba eða ganga rösklega í 30 mínútur á dag er einstaklega áhrifarík leið til að fá hreyfingu sem skilar sér í styrkingu vöðva.“ Regluleg en hófleg hreyfing styrkir ónæmiskerfið, minnkar bólgur, lækkar estrógen- og insúl- ínmagn í blóðinu og hjálpar til að viðhalda hæfilegri líkamsþyngd. Allt eru þetta þættir sem geta veitt vernd gegn krabbameinum. Það sama gildir um einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Í meðferð og að henni lokinni hefur hreyfing þau áhrif að auka lífsgæði og minnka líkur á endurkomu meinsins. Daglegt líf breytist mikið eftir krabbameinsgreiningu og hefur áhrif á andlega og líkam- lega líðan. Líkja mætti krabba- meinsmeðferð við langhlaup þar sem hver og einn fer á sínum hraða en hvert skref í hreyfingu er skref í rétta átt. Ég hleyp af því ég get það! Í tilefni af Reykjavíkurmaraþon- inu vill Krabbameinsfélagið vekja athygli á þeim mörgu kostum sem fylgja hreyfingu. Í því samhengi fær félagið lánuð einkunnarorð Gunnars Ármannssonar hlaupa- garps, sem hefur reynt krabba- mein á eigin skinni og segir: „Ég hleyp af því ég get það.“ Krabbameinsfélagið hvetur þátttakendur í Reykjavíkurmara- þoninu til að tileinka sér hugar- far Gunnars og gefur öllum þeim hlaupurum sem vilja höfuð- eða fyrirliðaband með þessum ein- stöku hvatningarorðum á Fit & Run sýningunni í Laugardalshöll. Það er aldrei of seint að byrja reglulega hreyfingu eða bæta við hreyfingu í daglegu lífi. Sumarið er kjörinn tími til að byrja til dæmis að hjóla, synda, labba eða skokka og ekki er verra að taka með sér góðan vin/vini, börnin sín og/eða barnabörn – því það græða allir á því að hreyfa sig. Hlaupum á okkar forsendum, hægt eða hratt, langt eða stutt – af því við getum það! Þú þarft ekki að vera maraþonhlaupari til að minnka líkur á krabbabeini Krabbameins- félagið hvetur landsmenn til reglulegrar hreyfingar, því í henni felst góð forvörn gegn krabbameinum. Félagið hvetur hlaupara til dáða í Reykjavíkur- maraþoninu og gefur bönd með slagorðinu sínu. Arnar Pétursson og Berglind Alda Ástþórsdóttir með höfuð- og fyrirliða- böndin. Berglind hefur nú þegar safnað yfir 140.000 kr. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Góðu fréttirnar eru að það þarf ekki að hlaupa maraþon til að hafa jákvæð áhrif á heilsuna. Eyrún Torfadóttir Margrét hristir hendurnar á hlaupunum til að þakka fyrir hvatningu áhorfenda. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég myndi segja að ég væri jafnvel frekar lengi að hlaupa. Ég læt líkamann alveg ráða hvað ég get gert. Fyrst og fremst er ég að njóta þess að skoða borgina mína þegar ég skokka um hana. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMARAÞON 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 9 -F 8 D 0 2 3 7 9 -F 7 9 4 2 3 7 9 -F 6 5 8 2 3 7 9 -F 5 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.