Fréttablaðið - 26.07.2019, Síða 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764
| Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen,
solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Kristján segist lengi hafa haft áhuga á því að grilla. „Ég var kannski ekkert sérstaklega
góður í matargerðinni, var alltaf
að gúgla eða leita til Bjarka um alls
konar grillráð. Ég eignaðist alvöru
grill í vor og nú finnst mér ég vera
frelsaður. Segi stundum að það séu
ein af grunnmannréttindunum
að eiga gott grill. Mér datt í hug
að við Bjarki gætum deilt þessum
ráðum og hugmyndum við grillið
til annarra. Það var ástæða þess að
við gerðum hlaðvarpsþætti. Við
höfum fengið frábær viðbrögð við
þeim,“ segir Kristján sem fylgir
ketó mataræði og tileinkaði annan
þátt þeirra félaga uppskriftum að
slíkum réttum sem birtast hér. Sá
þáttur fór í loftið á miðvikudag.
Í næstu viku ætla þeir félagar að
fjalla um verslunarmannahelgina.
Þá verður meðal annars fjallað
um svínarif og vængi sem hægt
er að undirbúa áður en haldið er í
ferðalag.
Aulinn og sérfræðingurinn
„Við ætlum að vera með alls konar
uppskriftir, ekkert endilega ketó,“
segir Kristján og bætir við að
grillið sé besti vinur þeirra sem
fylgja því mataræði. Sjálfur fór
hann á það til að láta sér líða betur
og hefur fylgt því í sex mánuði. „Ég
borða mikið af grilluðu grænmeti,
til dæmis kúrbít, sveppi, tómata og
papriku. Við höfum komið dálítið
inn á grillað grænmeti í þáttunum
og það er gaman að fylgjast með
því sem Bjarki stingur upp á sem
er margt óvenjulegt. Hann notar
mikið af villtum jurtum úr nátt-
úrunni, arfa, kerfil, fíf la og hunda-
súru. Ég er mikill útivistarmaður
og var að koma frá Grænlandi þar
sem ég lærði um ótrúlegustu hluti í
náttúrunni sem síðan er æðislegur
matur.“
Kristján segir að áheyrendur fái
að heyra um bestu kjötbitana á
grillið og hvernig á að meðhöndla
þá. Einnig segir hann að þeir félag-
arnir taki marineringu upp á nýtt
plan. „Við gerum þetta með léttum
hætti, aulinn og sérfræðingurinn,
þannig að fólk hafi gaman af
þáttunum,“ segir Kristján sem
fyrir utan grilláhugann lýsir
formúlunni.
En hér koma uppskriftirnar.
Keto lárperusalat með
grilluðu beikoni og
plómutómötum
Fyrir 4
12 beikonsneiðar
2 lárperur
4 plómutómatar
Blandað íslenskt laufsalat
Arfi
5 hvítlauksrif
Sjávarsalt
Svartur pipar
Olía
Japanskt mæjónes
Sítrónusafi
Grillið beikon þar til það verður
stökkt. Takið lárperuna í tvennt
og fjarlægið stein, kreistið yfir
sítrónusafa úr hálfri sítrónu.
Grillið á skinninu í u.þ.b. 1 mínútu
og takið svo af og látið kólna.
Skerið avókadó inn að skinni í
teninga og brettið upp á skinnið,
þá ættu teningarnir að detta úr
hýðinu.
Skerið tómatana í tvennt, bland-
ið svo í skál til hliðar olíu, hvítlauk
(pressaður eða rifinn), teskeið af
sjávarsalti og muldum svörtum
pipar, blandið olíunni saman við
og smyrjið á tómatana. Grilla svo
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þeir félagarnir fylgjast vel með því sem fram fer á grillinu. Þættirnir þeirra birtast á frettabladid.is, nýr þáttur í hverri viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dóttir Kristjáns, Emilía Karen, er áhugasöm um grillið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ljúffeng steikin er að verða tilbúin fyrir grillveisluna í garðinum hjá Kristjáni.
Sannkölluð grillveisla komin á disk.
tómatana á hýðinu í tvær mínútur
og svo eru þeir teknir til hliðar og
látnir kólna.
Blandið saman salatblöndu,
arfa, olíu, salti og pipar, sítrónu-
safa úr hálfri sítrónu. Setjið salatið
á disk, lárperuna ofan á, bætið svo
við beikonkurli og plómutómat.
Gott að setja japanskt mæjónes
með sem dressingu.
Ketó nauta sirloin
(mjöðm) með blómkáli,
spergilkáli, grilluðum hvítlauk og
japanskri mæjósósu.
Fyrir 4
1.500 g nauta sirloin (mjöðm) í
heilu með fitu
2 smáir blómkálshausar
2 smáir spergilkálshausar
3 hvítlaukar
Olía
Rósmarín, ferskt
Estragon (fáfnisgras), ferskt
Salt
Svartur pipar
3 msk. graslaukur, smátt saxaður
250 g smjör
Best er að byrja á að marinera
mjöðmina í allt að 7 daga fyrir
eldun (3 dagar duga)
Byrjum á að gera marineringu,
blöndum saman olíu, einum hvít-
lauk, nálum af fjórum rósmarín
greinum, sex greinum af estragoni
og matskeið af svörtum pipar-
kornum og setjið í blandara og
keyrið 2-3 hringi, alls ekki mauka
of mikið. Kjötið er svo lagt í eld-
fast mót með marineringunni og
kjötinu snúið daglega.Takið kjötið
úr ísskáp sólarhring fyrir eldun.
Byrjið á að skera þvert í fituna
(eins og þú ætlar að skera kjötið
í sneiðar) niður að sin með u.þ.b.
1,5 cm millibili, að því loknu er
farið aftur í sárin og sinin er opnuð
(skorið í sinina). Kjötinu er lokað
á mjög heitu grilli, 90 sekúndur á
hvorri hlið og kjötið er svo eldað
um 65% tímans á fitunni og 35%
á kjöthliðinni á meðalheitu grilli
u.þ.b. 120°C þar til kjarnhiti hefur
náð 54-62 gráðum (eftir smekk).
Takið kjötið af grillinu og látið
standa í 10 mínútur. Eftir að kjötið
hefur verið sneitt niður skal salta
sneiðarnar með sjávarsalti.
Meðlæti
Skerið blómkálshausa í tvennt,
fjarlægið stilkinn úr miðju án þess
að hausinn fari í sundur, pakkið
inn í álpappir með 75 g af smjöri
og salt og pipar á hvorn helming.
Leggið svo hvern bita með sárið
niður á grillið. Grillið á meðalheitu
grilli í 17 og hálfa mínútu.
Skerið stilkinn af spergilkálinu,
skerið svo í 4-6 bita eftir stærð,
grillið á sárinu (láta blómið snúa
upp) í 2 til 3 mínútur eða þar til
stilkurinn er farinn að mýkjast og
blómið er farið að falla lítilega.
Skerið tvo hvítlauka í tvennt,
grillið á sárinu, í hýðinu, í eina
mínútu, snúið við og klárið að
grilla í 2 til 3 mínútur eftir smekk.
Hvítlaukur og brokkolí er svo
sett í skál, blómkálið opnað yfir
skálinni svo smjörið fari með í
skálina. Hrærið létt saman og
kryddið með sjávarsalti.
Blandið saman 400 g af japönsku
mæjónesi, safa úr einni sítrónu,
skrælið börk af hálfri sítrónu
og setjið út í, 3 msk. smátt sax-
aður graslaukur, 2 msk. estragon,
smakkið svo til með salti og pipar.
Ketó ís
500 ml rjómi
3 eggjarauður
3 msk. Sukrin gold púðursykur
1 tsk. Sukrin melis
Jarðarber
Þeytið rjóma og leggið til
hliðar. Þeytið saman eggjarauður,
púðursykur og melis-flórsykur vel.
Skerið niður jarðarber og stappið
svo létt með gafli og blandið út í
rjóma. Blandið gætilega saman,
hellið í form og frystið. Best er að
gera ísinn að minnsta kosti þremur
tímum áður en hann er borinn
fram og ef ísinn er alveg frosinn
þarf að taka hann út tímanlega.
Gott að nota sykurlausa kara-
mellusósu með.
Við höfum komið
dálítið inn á grillað
grænmeti í þáttunum og
það er gaman að fylgjast
með því sem Bjarki
stingur upp á sem er
margt óvenjulegt.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
9
-B
D
9
0
2
3
7
9
-B
C
5
4
2
3
7
9
-B
B
1
8
2
3
7
9
-B
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K