Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 24

Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 24
 Fólk fær lyf og meðhöndlun á sjúkrahúsi en huggun- ina, hvatninguna og lífsviljann er hægt að sækja til Ljóssins. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Vinirnir átta eru mismunandi vanir því að hlaupa. Eftir að eiginkona eins þeirra, Eydís Ása Þórðardóttir, greindist með krabbamein á meðgöngu langaði þá að styrkja Ljósið sem reyndist henni og manni hennar, Garðari Erni Arnarsyni, vel í veikindunum. Félagarnir átta ætla að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og stefna á að safna tveimur milljón- um króna. Þeir eru þegar komnir með yfir 400 þúsund og hvetja alla til að styrkja þetta magnaða starf sem fram fer í Ljósinu. Einn vinanna, Ásgeir Elvar Garðarsson, segir að Eydísi hafi gengið vel og dóttirin, Embla Marín, orðin sjö mánaða. „Eydís stóð sig eins og hetja á meðgöng- unni þrátt fyrir þetta mikla áfall. Eydís og Garðar höfðu strax sam- band við Ljósið sem hjálpaði þeim mikið. Þegar Garðar sagði okkur vinunum frá áformum sínum um að hlaupa til styrktar Ljósinu hikuðum við ekki heldur slógumst í hópinn. Við munum allir hlaupa saman og safna í leiðinni. Ákveðið var að fara 10 km þar sem við erum misþjálfaðir í hlaupum. Einhverjir hafa ekki einu sinni hlaupið út úr innkeyrslunni heima hjá sér,“ útskýrir Ásgeir Elvar. „Við hlaupum núna tvisvar til þrisvar í viku til að undirbúa okkur. Það er líka frábær afsökun til að hittast.“ Þeir sem hlaupa fyrir utan Ásgeir Elvar og Garðar eru Aron Kristinsson, Brynjar Guðlaugsson, Davíð Þór Sveinsson, Fannar Þór Svavarsson, Hinrik Albertsson, Magnús Guðmundsson, Teitur Albertsson og Viktor Guðnason. „Við félagarnir ætlum að beita öllum brögðum til að ná tveimur milljónum. Við ætlum að þrífa bíla í næstu viku og síðan ætlum við að halda opna hlaupaæfingu. Á eftir verða grillaðar pylsur. Hægt er að fylgjast með okkur á Facebook undir vin8 Ljóssins. Frábær starfsemi Ljóssins Kristinn Fannar Pálsson ætlar að hlaupa hálft maraþon fyrir Ljósið. Þetta er í níunda skiptið sem hann fer hálft maraþon. „Systir mín greindist með krabbamein í ársbyrjun 2017. Þá kynntumst við fjölskyldan starfsemi Ljóssins. Við sáum hvað þarna er mikilvægt starf í gangi og ég er mjög feginn að þessi starfsemi er til,“ segir Kristinn sem hafði ekki þekkt til Ljóssins áður. „Ég vil safna sem mestu þar sem Ljósið er að stækka við sig húsnæði auk þess sem ég vil vekja athygli á þessari góðu starfsemi. Við höfum gífurlega góða reynslu af Ljósinu en það gerir allt sem spítalinn gerir ekki. Fólk fær lyf og meðhöndlun á sjúkrahúsi en huggunina, hvatn- inguna og lífsviljann er hægt að sækja til Ljóssins. Áður hvíldi þessi ábyrgð á aðstandendum en nú hefur Ljósið tekið við og gerir það vel,“ segir Kristinn. „Systur minni vegnar vel eftir þetta áfall og mig langar að safna sem mestu til að styðja við uppbyggingu Ljóssins.“ Í Ljósinu er lögð áhersla á líkamlega, andlega og félagslega endurhæfingu þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Fjöldi fólks kemur í Ljósið daglega til að byggja sig upp. Vilja styrkja hið góða starf Ljóssins Vinahópurinn. Herrarnir ætla að hlaupa fyrir Eydísi sem er í ljósbláa kjólnum og Ljósið sem hefur verið henni stoð og stytta í veikindunum. Kristinn Fannar Pálsson hleypur til styrktar Ljósinu en systir hans greindist með krabbamein í ársbyrjun 2017. Ljósið veitti aðstoð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Pasta hentar vel eftir hlaupið. Það er kolvetnaríkt og gefur orku. Gróft brauð með rauðrófuhummus er fyrirtaks biti fyrir hlaupið. Við leituðum á náðir Nönnu Rögnvaldardóttur og fengum tvær góðar uppskriftir fyrir hlaupara. Rauðrófuídýfa eða mauk er afskaplega hollt og gott. Það er líka mjög einfalt að útbúa. Að sögn Nönnu er best að kaupa rauð- rófur, baka þær í ofni við 180°C hita í 45-60 mínútur. Fyrst eru þær skornar til helminga og síðan settar í álpappír. Gott er að nota hanska þegar rauðrófur eru með- höndlaðar. 200 g cannellini-baunir eða aðrar hvítar baunir 150 g soðnar eða bakaðar rauð- rófur, grófsaxaðar 1 msk. tahini 1 tsk. kóríanderduft Safi úr ½-1 sítrónu Smáklípa af chiliflögum 2 msk. góð ólífuolía Pipar og salt eftir smekk Lögurinn af baununum er ekki notaður. Allt sett í matvinnsluvél og maukað. Cacio e pepe pasta Þetta er mjög gott pasta og einfalt að gera. Það á ættir að rekja til Rómar. Í þessu pasta er ekkert kjöt, einungis ostur og pipar. Setjið 3 lítra af vatni í pott, saltið vel og látið suðuna koma upp. Notið kalt vatn, ekki hitaveitu- vatn. Pastað er soðið eftir leiðbein- ingum á umbúðum. Nanna notar tvenns konar osta í réttinn, Prima Donna og Parmigiano Reggiano. „Ég sker vænan bita af hvorum fyrir sig og ríf þá niður, ekki mjög fínt. Svo setti ég svona eina mat- skeið af svörtum piparkornum í mortélið og grófsteytti þau. Hitaði 2 msk. af smjöri og 2 Gott fyrir maraþonhlaupara Ekki ætti að borða þunga máltíð tveimur til þremur klukkustundum fyrir hlaup. Þó er óhætt að fá sér létta kolvetnaríka máltíð allt að klukkustund áður. Það gæti verið ávöxtur eða hafragrautur. Nanna Rögnvaldardóttir. Girnilegt rauð- rófumauk ofan á brauð. Mjög einfalt pasta. Átta félagar ætla að hlaupa til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- miðstöð fyrir krabbameins- greinda, í Reykja- víkurmaraþoninu. Einnig ætlar Krist- inn Fannar Páls- son að hlaupa. Allir hafa þeir kynnst starfsemi Ljóssins og því mikilvæga starfi sem þar er unnið. msk. af ólífuolíu á pönnu, henti piparnum út í, hrærði og lét piparinn krauma í svona eina mínútu. Á meðan tók ég svona 200 ml af pastasoðinu frá en hellti svo pastanu í sigti og lét renna af því. Hellti svo helmingnum af soðinu á pönnuna og hvolfdi svo pastanu á hana. Ég hristi pönnuna og hrærði þar til pastað var þakið soði, setti svo ostinn út á og hélt áfram að hrista og hræra þar til osturinn var bráðinn. Ég bætti mestöllu soðinu sem eftir var á pönnuna en það er ekki víst að þess þurfi; pastað á bara að vera mátulega þakið sósu. Þetta allt tekur kannski 3-4 mínútur. Og þá er það bara tilbúið og má hvolfa á fat. Basilíkan sem sést í er bara skraut. En auðvitað má krydda þetta með basilíku ef maður vill; það er samt óþarft. Einfaldara gerist það bara ekki. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMARAÞON 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 9 -F 3 E 0 2 3 7 9 -F 2 A 4 2 3 7 9 -F 1 6 8 2 3 7 9 -F 0 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.