Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2019, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 26.07.2019, Qupperneq 36
Mikið fjölmenni tekur jafnan þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Reykjavíkurmaraþon Íslands-banka 2019 fer fram laugar-daginn 24. ágúst. Í hlaupinu er hægt að velja á milli fimm vega- lengda, allt frá 600 m skemmti- skokki til maraþons. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á hlaupaleiðinni í maraþoninu á milli ára til að bæta stemningu og auka upplifun hlaupara. Nýja leiðin er mjög fjölbreytt og er nú einn hringur en ekki hlaupin að hluta til sama leiðin tvisvar eins og áður. Þetta er mikill kostur fyrir hlaupara. Þá liggur brautin nú meira í gegnum íbúagötur borgarinnar. Eins og áður er farið í gegnum íbúahverfi í Vesturbæn- um og á Seltjarnarnesi, einnig er hlaupið í gegnum Túnin, Teigana, inn í Laugardalinn, um Vogana og inn í Bryggjuhverfið. Gott er að kynna sér nýja leið í hlaupinu. Í staðinn fyrir að halda áfram meðfram ströndinni og aftur út á Seltjarnarnes eru síðustu kíló- metrarnir farnir meðfram Öskju- hlíðinni, í gegnum Þingholtin, Skólavörðuholt, út á Sæbraut fram hjá Hörpu og aftur inn í Lækjar- götu. Frábær stemning hefur verið á 10 km brautinni undanfarin ár eins og margir þekkja. Standa vonir til að með þessum breyt- ingum skapist meiri stemning á maraþonbrautinni líka og að íbúar borgarinnar komi út og hvetji hlauparana áfram. Maraþonið hefst eins og aðrar vegalengdir Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í Lækjargötu fyrir framan Menntaskólann í Reykja- vík. Breytingarnar á hlaupaleiðinni voru unnar í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg og lögregluna. Einnig hafa fulltrúar hlaupara komið að vinnunni og er mikil ánægja með hvernig til hefur tekist. Nánar má sjá leiðina á heima- síðunni www.rmi.is. Breytingar á hlaupaleið Hlaupaleiðinni hefur verið breytt. Hlaup og rösk ganga hafa góð áhrif. Að halda sér í góðu formi er mikilvægt fyrir and-lega heilsu, að því er fram kemur í norskri rannsókn frá NTNU. Fólk sem hreyfir sig dag- lega er í mun minni áhættu á að fá þunglyndi en þeir sem hreyfa sig ekki. Það er ekki að ástæðu- lausu sem læknar benda fólki á að fara út að hlaupa eða ganga finni það fyrir kvíða eða þunglyndi. Þeir sem eru of þungir ættu líka að prófa að hlaupa. Það kostar ekkert að fara út að hlaupa en árangurinn kemur f ljótt í ljós. Fitubrennsla hlaupara ræðst af þyngd, hlauphraða og líkams- burðum hvers og eins. Til að reikna út hámarksbrennslu hitaeininga á hlaupum er hægt að margfalda þyngd sína í pundum með 0,63, og margfalda þá útkomu með fjölda mílna sem á að hlaupa. Talan sem þá fæst jafn- gildir þeim hitaeiningum sem brennt var umfram grunnhraða efnaskipta. Hlaupi 68 kílóa kona tíu kíló- metra brennir hún um 567 hita- einingum. Eftir því sem líkams- formið er betra brenna færri hitaeiningar við hlaup á sömu vegalengd og þá er tímabært að hlaupa hraðar eða lengra. Hlaup eru því bæði góð til að léttast og halda góðri heilsu. Hlaup eru góð fyrir andlega líðan rm i.i s # rv km ar at ho n hl au p as ty rk ur .is Taktu þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 24. ágúst og styrktu gott málefni á hlaupastyrkur.is 16 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMARAÞON 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 9 -F 3 E 0 2 3 7 9 -F 2 A 4 2 3 7 9 -F 1 6 8 2 3 7 9 -F 0 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.