Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 40

Fréttablaðið - 26.07.2019, Side 40
Kjúklingur í hnetusósu. Dásamlegur kjúklingur og upp- skriftin passar fyrir 6-8. 1 kg kjúklingabringur Handfylli af ferskum kóríander ¼ rauðlaukur 2 hvítlauksrif 3 cm ferskur engifer 2 cm sítrónugras 3 msk. olía 2 msk. púðursykur 2 msk. sojasósa ½ tsk. cumin ½ tsk. túrmerik 1 tsk. þurrkaður kóríander Hnetusósa 5 msk. hnetusmjör Safi úr einni límónu 1 ½ msk. sojasósa 1 tsk. sesamolía 1 msk. sriracha eða önnur chili- sósa 1 hvítlauksrif, pressað Um það bil ½ dl vatn Skerið kjúklingabringurnar í strimla. Látið trépinna liggja í vatni áður en kjúklingurinn er þræddur upp á þá. Setjið allt sem á að fara í marineringuna í matvinnsluvél og maukið. Setjið kjúklingastrimlana í marinering- una og hafið þar í að minnsta kosti klukkustund, best yfir nótt. Setjið allt í skál sem á að fara í sósuna og hrærið vel saman. Smakkið til eftir þörfum og bætið við ef þið viljið til dæmis hafa sósuna sterkari. Grillið kjötið þegar það er komið á pinnana og berið síðan fram með hnetusósunni. Kjúklingur í hnetusósu Hvítlaukskartöflur eru alltaf góðar. Þetta eru mjög góðar ofnbak-aðar kartöflur með grilluðum mat. Ef ekki er ofn til staðar, til dæmis í útilegu er upplagt að pakka kartöflunum inn í álpappír eða setja á álbakka. Gætið bara að því að snúa kartöflunum á meðan þær eldast svo þær brenni ekki. 1 kg nýjar kartöflur 50 ml ólífuolía 3 msk. fersk salvía, smátt skorin 1 tsk. hafsalt ½ tsk. nýmalaður pipar 6-8 hvítlauksrif Hitið ofninn í 200°C. Skolið kart- öflurnar og skerið þær til helminga eða í báta eftir því hversu stórar þær eru. Reynið að velja kartöflur í sömu stærð. Leggið í eldfast mót og dreifið ólífuolíu og salvíu yfir. Bragðbætið með salti og pipar. Takið hvítlauksrifin úr hýðinu og setjið á víð og dreif í formið. Bakið í um það bil 40 mínútur eða þangað til kartöflurnar verða stökkar og fallegar. Ofnbakaðar kartöflur Mjög góð grillsósa með alls kyns kjöti. Nú er grilltíminn hafinn og þá þarf maður góða grillsósu. Hér er ekta amerísk grill- sósa sem er bragðgóð og geymist vel. Uppskriftin er frekar stór og það má frysta sósuna. 1 laukur 2 hvítlauksbátar 2 rauðir chili-pipar 2 msk. olía 2 msk. sojasósa 2 dósir tómatar ½ dl eplacider-edik 1 msk. Dijon-sinnep 1 msk. Worchestershire-sósa 3 msk. púðursykur 1 tsk. cayenne-pipar 1 ½ msk. paprikuduft 1 tsk. salt Grófmalaður pipar Steikið laukinn í olíu þar til hann mýkist. Setjið allt annað saman við og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið malla í 45 mínútur. Hrærið í af og til. Notið töfrasprota til að mauka sósuna og notið hana á hvers konar kjöt. Þetta er amerísk grillsósa sem hentar mjög vel með hvers kyns grillmat. Einnig má nota hana til að marinera kjöt, til dæmis svína- rif eða kjúklingavængi. Sósuna er auðvelt að útbúa og svo er mjög gott að hafa hana sterka. Æðisleg grillsósa Opið virka daga kl. 11:00 - 22:00 Helgar kl. 16:00 - 22:00 Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi www.kinahofid.is l Sími 554 5022 TILBOÐ 4 réttir + súpa dagsins aðeins 1.790 kr.* KJÚKLINGUR Í ANANASSÓSU SVÍNAKJÖT Í KUNG PAOSÓSU DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU NÚÐLUR MEÐ GRÆNMETI *tekið með heim – 2.100 kr. ef borðað er á staðnum. Frábær hóptilboð Sjáðu öll tilboðin okkar á www.kinahofid.is 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 2 6 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 9 -C C 6 0 2 3 7 9 -C B 2 4 2 3 7 9 -C 9 E 8 2 3 7 9 -C 8 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.