Fréttablaðið - 26.07.2019, Page 45
MENNING
Stefán Þór Sæ-
mundsson er höf-
undur bókarinnar
Upprisa. Er meðal
annars að skrifa
sig frá erfiðum
hlutum. Nýtt ljóða-
handrit tilbúið.
Upprisa er ljóðabók ef t ir Stefá n Þór Sæmundsson sem bókaútgáfan Tindur gefur út. Bók hans Hræringur með súru
slátri, sem var sjálfsútgáfa, kom út
árið 1990 og þar var að finna smá-
sögur, ljóð og pistla.
Stefán er menntaskólakennari,
hefur kennt íslensku í Mennta-
skólanum á Akureyri í tæp 25
ár. „Ég hef unnið við þýðingar og
blaðamennsku, greinaskrif og ort
ógrynni af tækifæriskveðskap fyrir
afmæli, brúðkaup og þess háttar.
Ég hef kannski verið meiri hagyrð-
ingur en skáld, nema þá í mínum
villtustu draumum og leyndustu
afkimum. Fyrir þremur árum tók líf
mitt stefnubreytingu, það er komið
í jafnvægi og í ár er ég bæði nýgiftur
og búinn að gefa út bók,“ segir hann.
Ljóðabókin skiptist í sex hluta.
„Tveir af þessum sex hlutum geyma
eldri ljóð. Einn heitir Vika á Hrauni
og fjallar um vikudvöl mína í Öxna-
dal. Þá var ég að hefja vinnu við
meistaraprófsritgerð, naut náttúr-
unnar og talaði við Jónas og aðra
drauga á kvöldin svo úr varð lítið
ljóðakver. Þau ljóð rötuðu inn í
Upprisu. Fimmti hluti bókarinnar
geymir sömuleiðis eldri ljóð, minn-
ingarljóð um föður minn og vin
minn. Ég hef misst nokkra af mínum
bestu vinum sem voru á góðum
aldri þegar þeir kvöddu. Þetta hefur
hvílt lengi þungt á mér og ég er að
gera sorgina upp í bókinni. Um jóla-
leytið tóku svo að streyma fram ný
ljóð og allt í einu var komin bók.“
Framhald Upprisu
Stefán segist í bókinni vera meðal
annars að skrifa sig frá erfiðum
hlutum. „Ég hef kynnst ýmsu á lífs-
leiðinni svo sem fíknsjúkdómum og
meðvirkni. Sterk verkjalyf fóru illa
með mig þegar ég fékk brjósklos og
einnig hef ég lengi átt í erfiðleikum
með áfengi og farið í meðferðir.
Ég hef líka á tímabili verið hinum
megin við borðið sem meðvirkur
aðstandandi og það er jafnvel enn
verra. Ég hef líka verið forvarnar-
fulltrúi í skólanum. Ég þekki þenn-
an heim mjög vel, bæði persónulega
og gegnum vini og fleiri. Þarna eru
allmörg ljóð sem fjalla um hluti
sem eru svo sem ekki á tískusíðum
blaðanna.“
Hann er nokkurn veginn tilbúinn
með handrit að næstu ljóðabók.
„Hún er að mörgu leyti framhald af
Upprisu. Þar er ég að fjalla um upp-
lifanir mínar og reynslu og þar eru
einnig bernskubrot. Það er sársauki
í þeirri bók en líka húmor, gleði og
ánægja og stundum jafnvel galgopa-
háttur.“
Fjölþjóðleg samvinna
Stefán þakkar ekki síst konu sinni
Rannveigu Bryndísi Hrafnkelsdótt-
ur það að bókin er komin á prent.
„Hún las yfir og hvatti mig til að
gefa ljóðin út. Sjálf er hún gott skáld,
enda amma hennar Erla skáldkona
og svo málar hún myndir. Við erum
mjög samtaka og sammála um að
gefa hvort öðru rými.“
Teikningar í bókinni eru eftir
Yafei Qi sem er eiginkona elsta
sonar Rannveigar, myndlistar-
mannsins Georgs Óskars en þau
búa í Berlín. „Yafei gerði teikning-
arnar eftir að Óskar var búinn að
endursegja henni ljóðin á ensku.
Í teikningunum fangar hún anda
ljóðanna. Þannig að segja má að
þessi bók sé fjölþjóðleg samvinna,“
segir Stefán.
Stefnubreyting gat af sér ljóðabók
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
„Í ár er ég bæði nýgiftur og búinn að gefa út bók,“ segir Stefán. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ÉG VEL MÉR SÖGUEFNI
SEM MÉR FINNST
SJÁLFUM SKEMMTILEGT OG
FINNST BJÓÐA UPP Á EINHVER
SKRINGILEGHEIT OG TÆKIFÆRI
TIL AÐ SNÚA AÐEINS UPP Á
RAUNVERULEIKANN.
BÆKUR
Síðasta stúlkan
Nadia Murat
Þýðandi: Herdís Hubner
Blaðsíður: 336
Útgefandi: Almenna bókafélagið
Þegar Nadia Murat var 21 árs réð-
ust morðóðir vígamenn Íslamska
ríkisins inn í Kocho, litla Jasída-
þorpið hennar, í Norður-Írak.
Trúir sturlaðri hugmyndafræði
sinni létu ISIS-skítalabbarnir ill-
verkin tala. Nadiu biðu sömu
ömurlegu örlög og þúsunda ann-
arra ungra kvenna sem ISIS-pakk-
ið hneppti í kynlífsþrældóm. Hún
var f lutt til Mósúl í Írak og gekk
þar kaupum og sölum milli víga-
mannanna sem skiptust ítrekað
á að nauðga henni, misþyrma
og niðurlægja eftir öllum þeirra
brengluðu kúnstarinnar reglum
sem þeir settu fram á fölskum
trúarlegum forsendum.
Sönn háspennusaga
Eftir þriggja mánaða
vítisvist tókst Nadiu
að f lý ja og fa nn
athvarf hjá fjölskyldu
súnní-múslima sem
stofnaði lífi og limum
í hættu með því að
sk jót a y f ir hana
skjólshúsi og smygla
í vestrænt öryggi.
Þessi hluti bók-
arinnar er eins og
ótrúleg spennusaga
enda lýsir Nadia
þarna háskaför um
torfærur þar sem
ISIS er alls staðar
með augu og eyru og
lamandi ógnin sem fylgir þeirri
óværu er allt umlykjandi.
Vörn snúið í sókn
Þegar Nadia komst til Þýskalands
ákvað hún að segja sögu sína og
helga sig baráttunni gegn ISIS.
Hún hlaut Friðarverðlaun Nób-
els mjög svo verð-
skuldað í fyrra fyrir
baráttu sína gegn
k y nferðisbrotum í
stríði.
Átakanleg hugvekja
Það tekur á að lesa
sögu Nadiu og ef laust
geng u r hú n nær r i
mörgum en vestræn-
um lesendum er engin
vorkunn og í raun ber
okkur öllum að horfast
í augu við hryllinginn
sem ótal Nadiur hafa
mátt þola og líta um leið
í eigin barm.
Hvernig manneskjur
erum við ef við getum setið þegj-
andi og aðgerðalaus hjá á meðan
svívirðileg illvirki og mannrétt-
indabrot eru framin á saklausu fólki
víðs fjarri örygginu sem við búum
við og teljum svo sjálfsagt?
„Í hvert skipti sem ég segi
sögu mína finnst mér ég
vera að taka vald frá
h r yðju ve r k a mön n-
unum,“ segir Nadia og
það minnsta sem við
getum gert er að lesa,
hlusta, skilja og láta
rödd hennar berast
sem víðast.
Hættulegur hávaði
„Baráttuþrek Nadiu
Murat hefur ekki verið
bælt og rödd hennar
verður ek k i kæfð.
Þegar þessi bók er lesin hljómar
rödd hennar hærra en nokkru
sinni fyrr,“ skrifar Amal Clooney,
lögfræðingur og vinkona Nadiu, í
formála en því miður er lítil hætta
á því að þeir sem helst þyrftu að lesa
sögu Nadiu muni gera það.
„Framar öllu öðru langar mig að
verða síðasta stúlkan í heim-
inum sem hefur svona
sögu að segja.“ Nadia
lýkur sögu sinn með
þessari einlægu ósk
sem varla mun rætast
á meðan gargið í rang-
hu g my nd a kór nu m ,
sem finnst eðlilegt og
sjálfsagt að fullvalda
ríki sitji hjá á meðan
mannréttindi saklauss
fólks eru fótum troðin í
öðrum löndum, verður
stöðugt háværara.
Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Nadia Murat hlífir
hvorki sjálfri sér né lesendum í bók
sem á áríðandi erindi við allt hugsandi
fólk. Og enn frekar þá sem skeyta í
engu um örlög fólks á flótta.
Veik von um betri heim
Vinkonurnar Amal
Clooney og Nadia
Murat berjast fyrir
réttlæti og betri heimi.
2
6
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
9
-D
6
4
0
2
3
7
9
-D
5
0
4
2
3
7
9
-D
3
C
8
2
3
7
9
-D
2
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K