Fréttablaðið - 04.07.2019, Side 10
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17
Opið laugardaga kl. 12-16
SUMARTILBOÐSVERÐ:
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Fiesta
2.350.000
ford.is
FORD FIESTA TITANIUM
1,1 bensín, 85 hestöfl, beinskiptur
Verðlistaverð 2.530.000 kr.
KR.
-180.000 kr.
FORD FIESTA
Einkenni Ford Fiesta eru ríkulegur staðalbúnaður,
frábærir aksturseiginleikar, fimm stjörnu öryggi,
hagstætt verð og lágur rekstrarkostnaður.
• Ökumannspakki 2 sem innifelur:
Umferðaskiltalesara, ökumannsvaka, birtuskynjara fyrir
aðalljós, hraðatakmarkara og 4,2 TFT litaskjá
• Upphitanleg framrúða
• Hljómtækjapakki sem innifelur: 8” snertiskjá, 7 hátalara,
SYNC III raddstýrt samskiptakerfi með neyðarhringingu
• Bluetooth símabúnaður
• Apple CarPlay, Android Auto
• Ford MyKey
• Aksturstölva
• 16“ álfelgur
• LED dagljós að framan
• Nálægðarskynjari að aftan og rafdrifin aðfelling útispegla
• Brekkuaðstoð
• Easy Fuel eldsneytisáfyllingarkerfi án bensínloks
• Vindskeið að aftan
RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
Á SUMARTILBOÐI
Ford_Fiesta_Sumartilbod_5x15_3_20190624_END.indd 1 01/07/2019 11:25
Tveir sjóðir á vegum bandaríska
sjóðastýringarfyrirtækisins Well-
ington Management hafa minnkað
hlut sinn í Eimskipi úr 2,8 prósentum
í 0,7 prósent frá því í febrúar.
Annar sjóðurinn átti 0,6 prósent
og hefur selt allan hlut sinn. Hlut-
hafalisti flutningafyrirtækisins hafði
ekki verið uppfærður frá 8. febrúar
fyrr en nú við upphaf júlímánaðar.
Birta lífeyrissjóður, sem er fimmti
stærsti hluthafi Eimskips, jók við
eign sína úr 4,5 prósentum í 5,8 pró-
sent, samkvæmt hluthafalistunum.
Á umræddu tímabili lækkaði gengi
Eimskips í Kauphöll um átta prósent
en Úrvalsvísitalan hækkaði um 18
prósent. – hvj
Wellington
selur í Eimskip
Hluthafar Kynnisferða juku við
hlutafé fyrirtækisins um 300 millj-
ónir króna í fyrra. Þetta staðfestir
Björn Ragnarsson, forstjóri Kynnis-
ferða. Hann segir að eiginfjárhlut-
fallið sé rétt í kringum 20 prósent og
eignarhlutur hluthafa hafi ekki tekið
breytingum.
Alfa, sem er í eigu Einars og Bene-
dikts Sveinssona og fjölskyldu, á 65
prósent í Kynnisferðum og sjóður
á vegum Stefnis keypti 35 prósenta
hlut árið 2015.
Björn staðfestir einnig að Kynnis-
ferðir hafi verið reknar í kringum
núllið á árinu 2018 en árið áður hafði
félagið tapað 314 milljónum króna.
Þar með er þó ekki björninn unn-
inn. Rekstur fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu hefur mætt nokkru andstreymi
í ár með gjaldþroti WOW air, verk-
föllum og kyrrsetningu Boeing 737
MAX 8 flugvéla sem Icelandair hugð-
ist taka í rekstur í vor. – hvj
Auka hlutafé um
300 milljónir
Björn
Ragnarsson,
forstjóri
Kynnisferða.
Greiðslumiðlunarfyrirtækið Valitor,
dótturfélag Arion banka, hefur fall-
ist á að greiða Datacell og Sun shine
Press Productions (SPP) samtals
1.200 milljónir króna í skaðabætur
fyrir að slíta samningi um greiðslu-
gátt fyrir söfnunarfé til WikiLeaks
sumarið 2011. Gengið hefur verið
frá samkomulagi þess efnis, sem er
í samræmi við dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur í apríl síðastliðnum,
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins.
Með samkomulaginu lýkur því
áralöngum deilum og málaferlum
félaganna fyrir dómstólum. For-
saga málsins er sú að WikiLeaks tók
við styrkjum í gegnum greiðslugátt
sem Datacell og SPP ráku en hún var
opnuð 7. júlí 2011. Degi síðar sleit
Valitor samningnum fyrirvaralaust.
Hæstiréttur sló því föstu með dómi
vorið 2013 að riftun samningsins
væri ólögmæt og frá þeim tíma hafa
málaferli staðið um skaðabótakröfur
vegna riftunar. Dómkvaddir mats-
menn mátu tjónið á 3,2 milljarða
króna.
Valitor hafði áður sent frá sér til-
kynningu í lok maímánaðar þar sem
fram kom að það hygðist áfrýja fyrr-
nefndum dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur sem komst að þeirri niður-
stöðu að félaginu væri gert að greiða
Datacell og SPP 1.200 milljónir króna
í bætur. Ekkert verður hins vegar nú
af því að málið komi til kasta Lands-
réttar.
Dómarar í málinu töldu þá að
veikleikar væru á þeim forsendum
sem tölfræðilegir útreikningar
matsmanna byggðust á og því væri
ekki unnt að leggja niðurstöðu mats-
gerðarinnar til grundvallar sem
sönnunargagn um umfang tjónsins.
Krafa um vexti og dráttarvexti aftur í
tímann kom ekki til álita í dóminum.
Þá hljóðaði aðalkrafa Datacell og SPP
í málinu upp á 8,1 milljarð.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður Datacell og SPP, sagði í sam-
tali við Fréttablaðið eftir niðurstöðu
dómsins í apríl að hann hefði vonast
til þess að matsgerðinni yrði ekki ýtt
til hliðar. „Svo erum við ekki sáttir
við dráttarvextina en þetta er samt
sigur,“ sagði Sveinn.
Í séráliti sem Kjartan Bjarni
Björgvinsson héraðsdómari skilaði
kom fram að hann væri sammála
meirihluta dómara um að riftun
samningsins hafi leitt til fjárhagslegs
tjóns. Hins vegar væri hann ósam-
mála því að skilyrði sé fyrir því að
ákvarða Datacell og SPP skaðabætur
að álitum. Stefnendur hafi ekki fært
nægilegar sönnur á fjártjón sitt og
því bæri að sýkna Valitor af kröfum
þeirra.
Valitor var sem kunnugt er sett
í formlegt söluferli fyrr á þessu ári
og er ætlun Arion banka, eiganda
félagsins, að selja greiðslumiðlunar-
fyrirtækið að hluta eða fullu. Gert er
ráð fyrir að niðurstaða fáist í ferlið á
þessu ári. Bankinn hefur áður sagt
að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur
myndi ekki hafa áhrif á söluferlið.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er áætlað að áhugasamir fjárfest-
ar skili inn óskuldbindandi tilboðum
í félagið fyrir miðjan þennan mánuð.
Arion banki hefur þegar tekið
tillit til neikvæðra áhrifa dómsins á
afkomu bankans. Í tilkynningu sem
bankinn sendi frá sér eftir dóminn
kom fram að hann hefði neikvæð
áhrif á afkomu bankasamstæðunnar
á fyrsta ársfjórðungi sem nema um
600 milljónum króna.
Landsbankinn mun þurfa að
greiða hluta þeirrar fjárhæðar, eða
samtals um 456 milljónir króna,
sem samkomulag hefur náðst um að
greiða í skaðabætur til Datacell og
SPP. Ástæðan er sú að þegar Lands-
bankinn seldi eignarhlut sinn í Val-
itor til Arion banka í desember 2014
gekkst Landsbankinn í ábyrgðir fyrir
38 prósentum af þeim upphæðum
sem Valitor kynni að þurfa að greiða
vegna fjögurra mála. Þeirra á meðal
var málarekstur Datacell og Suns-
hine Press Productions (SPP) gegn
Valitor. hordur@frettabladid.is
Valitor fellst á að greiða
Datacell og SPP 1.200 milljónir
Samkomulag náðst um að greiðslumiðlunarfyrirtækið, sem er í eigu Arion banka, greiði Datacell og SPP,
rekstrarfélagi WikiLeaks, skaðabætur í samræmi við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í apríl. Áralöngum
deilum félaganna er því lokið. Fjárfestar skila inn óskuldbindandi tilboðum í Valitor um miðjan júlí.
Greiðslugáttinni sem WikiLeaks þáði styrki í gegnum var lokað fyrirvara-
laust af Valitor 8. júlí 2011, degi eftir opnun hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
600
milljónir eru þau neikvæðu
áhrif sem dómur Héraðs-
dóms Reykjavíkur hafði á
afkomu Arion banka.
MARKAÐURINN