Fréttablaðið - 04.07.2019, Síða 20
Umræðan um Bretland hefur á síðustu misserum eðlilega snúist mikið um „Brexit“ og
það pólitíska drama sem því fylgir.
Við getum öll haft okkar skoðanir
á þróun mála í sambandi við fyrir-
hugaða útgöngu Bretlands úr Evr-
ópusambandinu, en það er mikil-
vægt að setja hlutina í samhengi.
Styrkleikar Bretlands haldast áfram
hinir sömu. Lýðræði er greinilega
enn við lýði, virkar vel og veitir
aðhald, og stofnanir okkar halda
áfram að starfa faglega í gegnum
hinn pólitíska stórsjó. „Keep calm
and carry on.“
Í gegnum alla pólitísku óvissuna
heldur efnahagslíf Bretlands enn
áfram að vaxa, jafnvel meira en hjá
sumum af hinum stærstu hagkerf-
um Evrópu á síðasta ári. Atvinnu-
leysi hefur aldrei mælst jafn lágt.
Bretland er eftir sem áður helsti
áfangastaður fyrir erlendar fjár-
festingar í Evrópu. Á síðastliðnu ári
voru 13 „einhyrnings“-fyrirtæki í
Bretlandi (sprotafyrirtæki sem eru
metin á einn milljarð Bandaríkja-
dala eða það sem nemur um 125
milljörðum króna). Fjármálageirinn
okkar er hnattrænn, með London
sem leiðandi fjármálaþjónustumið-
stöð. Bresk fyrirtæki halda áfram að
vinna með fyrirtækjum frá öðrum
löndum, þar á meðal á Íslandi þar
sem fyrirtæki eins og Barclays
aðstoðar við að stækka fjármála-
geira Íslands og Bird & Bird aðstoða
Isavia við að þróa f lugvelli og ná
fram hagkvæmum opinberum inn-
kaupum.
Við höldum áfram að leitast við
að leiða og þróa vöxt framtíðar-
innar. Í Tæknivikunni í London í
júní lagði breski forsætisráðherr-
ann áherslu á fjárfestingu breskra
tæknifyrirtækja fyrir 1,2 milljarða
sterlingspunda, andvirði um 190
milljarða króna, með 2.500 stöður
við þróun gervigreindar. Fyrirtæki
eins og digi.me, sem einnig starfa
með íslenska heilbrigðisgeiranum,
sýna fram á að tækni í heilbrigðis-
vísindum getur leitt til markvissari
og þar af leiðandi skilvirkari úrræða
í heilbrigðisþjónustu.
Bretland er eftir sem áður þunga-
vigtarríki í alþjóðasamstarfi. Við
eigum fast sæti í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna, og erum eina
landið sem ver bæði 2% af vergri
þjóðarframleiðslu til varnarmála
og 0,7% af vergum þjóðartekjum til
þróunaraðstoðar. Bretlandi mun í
ár halda 70 ára afmælisleiðtogafund
NATO, auk alþjóðlegrar ráðstefnu
um fjölmiðlafrelsi og ráðstefnu um
að hindra kynferðislegt of beldi á
átakasvæðum. Við veitum aðstoð
til að koma í veg fyrir og draga úr
átökum og styðjum alþjóðlega þró-
unaraðstoð með hlutverki okkar í
alþjóðastofnunum eins og Mann-
réttindaráði Sameinuðu þjóðanna
(ásamt Íslandi), G7 og G20, ÖSE,
Alþjóðaviðskiptastofnuninni o.f l.
Bretland er nú að vinna í því að
stækka utanríkisþjónustu sína og
að fjölga starfsfólki um 1.000.
Bretland er svo lánsamt að búa
yfir gríðarmiklum áhrifamætti á
menningarsviðinu. Þar má nefna
fjölmiðla okkar, en BBC er meðal 10
fjölsóttustu fréttaveitna veraldar-
vefsins, og ekki síður menntun: 12%
af öllum háskólanemum heimsins
sem stunda nám utan heimalands
síns nema við breska háskóla og 4
af 10 bestu háskólum heims eru í
Bretlandi. Einnig má nefna íþróttir,
en stuðningsmenn um allan heim
horfðu á þessu ári á lið úr ensku
úrvalsdeildinni mætast í báðum
stærstu Evrópukeppnunum í fót-
bolta.
Þessi upptalning hér er ekki gerð
til að berja sér á brjóst. Öll lönd eiga
við einhver vandamál að stríða
sem þau þurfa að yfirstíga, og Bret-
land á greinilega í einu slíku þessa
stundina. Við eigum að vera auð-
mjúk gagnvart annmörkum okkar.
En við skulum ekki missa sjónar á
styrkleikum okkar.
Ekki bara Brexit
Michael Nevin
sendiherra
Bretlands
á Íslandi
Öll lönd eiga við einhver
vandamál að stríða sem þau
þurfa að yfirstíga, og Bret-
land á greinilega í einu slíku
þessa stundina.
Lely Center Ísland
Flott hliðgrind á lóðina þína!
Hliðgrindur - Ýmsar stærðir
Númer Lýsing Verð án vsk. Verð m/vsk.
F000 2140 03 Hlið 0,92 m, 7 sláa kr. 12.695 kr. 15.742
F000 2140 04 Hlið 1,22 m, 7 sláa kr. 15.878 kr. 19.698
F000 2140 05 Hlið 1,52 m, 7 sláa kr. 17.536 kr. 21.745
F000 2140 06 Hlið 1.83 m, 7 sláa kr. 19.171 kr. 23.776
F000 2140 07 Hlið 2,13 m, 7 sláa kr. 20.823 kr. 25.821
F000 2140 09 Hlið 2.75 m, 7 sláa kr. 22.982 kr. 28.489
F000 2140 10 Hlið 3,05 m, 7 sláa kr. 29.456 kr. 36.525
F000 2140 11 Hlið 3,35 m, 7 sláa kr. 31.115 kr. 39.451
F000 2140 12 Hlið 3,66 m, 7 sláa kr. 33.112 kr. 41.059
F000 2140 13 Hlið 3,95 m, 7 sláa kr. 34.877 kr. 43.247
F000 2140 14 Hlið 4,27 m, 7 sláa kr. 37.852 kr. 46.936
F000 2140 15 Hlið 4,57 m, 7 sláa kr. 39.885 kr. 49.457
F000 2140 16 Hlið 4.88 m, 7 sláa kr. 44.606 kr. 55.311
F017 2002 46 Staur 2,4m m/ læsigati, 2 eyru kr. 17.342 kr. 21.504
F017 2002 47 Staur 2,4m 89 mm, 4 eyru kr. 17.986 kr. 22.303
Gerðisgrindur
Gerum tilboð í magn eftir teikningum
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 // Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð