Fréttablaðið - 04.07.2019, Side 26
Ég vil ná því mark-
miði að einhver
hlusti á tónlistina og
finni að það er ákveðið
hljóð í mínum lögum.
Það geta allir gert tónlist
en það verður eitthvað
að vera á bak við hana.
Fólk þarf að geta tengt
við lögin.
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Tónlist Símons er ekki með neinum söng eða rappi. Það mætti lýsa tónlistinni sem
rólegri raftónlist. Símon er svo að
stjórna kollektívu 15 taktasmiða
sem deila sömu tónlistarstefnu og
gefa reglulega út lög. Sjálfur hefur
Símon fengið mörg hundruð þús
und spilanir á SoundCloud frá því
hann gaf út sitt fyrsta lag þar fyrir
um tveimur árum. Hann hefur
meðal annars endurhljóðblandað
lag eftir Joji sem Joji sjálfur setti
læk á. Um daginn gaf Símon út 16
laga blandspólu á Spotify sem lýsir
að hans sögn tilfinningalegu ferða
lagi frá upphafi til enda.
Taktasmiðir semja oft stóran
Lék í myndbandi Kelvyns Colt
Símon Nodle er
bæði takta-
smiður og fyrir-
sæta.
Taktasmiðir fá ekki verðskuldaða athygli fyrir framlag sitt til tónlistarinnar.
Símon ákvað að fara á samning hjá
Eskimo fyrir um ári síðan.
Símon Nodle hef-
ur síðustu fjögur
ár verið að búa til
takta og lög sem
hann gefur út á
SoundCloud.
hluta af laglínu rapplaga eða popp
laga, ef ekki alla laglínuna. „Þú
getur ekki gert gott lag án þess að
vera með góðan pródúser (takta
smið).“ Sjálfur stefnir Símon þó
ekki á að vinna með íslenskum
röppurum. „Ég hlusta varla á
íslenskt rapp sjálfur,“ en Símon
ber samt virðingu fyrir hörkunni
sem rapparar í senunni hér á
landi leggja í. Símon lofar að það
séu mörg óútgefin lög á leiðinni í
útgáfu. Planið er að gefa bæði út
lög með öðrum listamönnum og
ekki. „Ég er mjög spenntur fyrir
því og hlakka til að sjá hvernig það
spilast.“
Leitar að sínu hljóði
Eitthvað hefur Símon komið fram,
bæði einn og með öðrum tónlistar
mönnum á hátíðum á borð við
Airwaves og Secret Solstice. „Ég
spilaði á tónleikum með Kef LAVÍK
og Vagina Boys í Hörpunni fyrir
svona tveimur árum.“ Síðan ákvað
Símon að hætta að koma fram með
lifandi tónlist og sem plötusnúður.
„Mig langaði að einbeita mér meira
að því að pródúsa og finna mig
sem tónlistarmann. Eftir að Símon
dró sig í hlé hefur hann sökkt sér í
það að finna þetta hljóð sem hann
telur sig vera kominn langt með
að gera.
„Það er allt að koma til. Ég vil ná
því markmiði að einhver hlusti
á tónlistina og finni að það er
ákveðið hljóð í mínum lögum. Það
geta allir gert tónlist en það verður
eitthvað að vera á bak við hana.
Fólk þarf að geta tengt við lögin.“
Er reglulega í samskiptum
við rapparann Kelvyn Colt
Síðasta ár hefur Símon unnið sem
fyrirsæta fyrir umboðsstofuna
Eskimo. „Ég fæ samt eiginlega öll
verkefnin mín í gegnum Insta
gram, en þá segi ég þeim sem senda
skilaboð beint til mín að hafa sam
band við Eskimo svo það sé öruggt
að ég fái greitt.“ Símon segir að það
séu mjög margir sem vilji greiða
fyrir fyrirsætustörf með ýmsum
vörum en það er varla hægt að lifa
á þeim einum.
Símon lék í tónlistarmynd
bandi þýska rapparans Kelvyns
Colt sem kom út í desember í
fyrra. Colt hefur verið á uppleið
síðustu misseri og er þekktastur
fyrir lagið sitt Bury me alive. Lagið
við myndbandið sem Símon lék
í heitir Love&hate. Það var tekið
upp í íslenskri náttúru þar sem
leikararnir eru í gulum göllum sem
stangast á við svarthvítt umhverf
ið. Það má því segja að litasam
setningin passi einstaklega vel við
lagið. Símon hefur verið í sam
skiptum við Colt frá því að þeir
kynntust við gerð myndbandsins
og jafnvel hefur sú hugmynd
komið upp að gera lag saman.
Rokkar það bara
Það er ekki leiðinlegt að vera fyrir
sæta að sögn Símons sem hefur
tekið þátt í mörgum tískusýn
ingum síðan hann byrjaði. „Það er
alveg mikið stress en um leið og þú
ert kominn á staðinn og byrjaður
þá er það mjög gaman. Maður
rokkar það bara.“
Hins vegar stefnir Símon á að
starfa frekar sem fyrirsæta og
taktasmiður erlendis enda þekkir
hann marga í Bandaríkjunum
þar sem hann er hálfbandarískur.
Símon segir að hann sé að hugsa
um að flytja annaðhvort til London
eða Los Angeles, framtíðin er opin
og að því er virðist björt líka.
Að lokum vill Símon þakka fyrir
sig þar sem taktasmiðir fá oft ekki
næga athygli fyrir sitt framlag til
tónlistar í dag.
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
LAXDAL
SUMARÚTSALAN
OG NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR
OG FLEIRRI
NÚ ER TÆKIFÆRI AÐ EIGNAST GÆÐAFATNAÐ SEM ENDIST
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R