Fréttablaðið - 04.07.2019, Page 47

Fréttablaðið - 04.07.2019, Page 47
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf Þorbjargar Gunnlaugsdóttur BAKÞANKAR Þrátt fyrir að tugir milljóna manna séu á flótta í heim-inum eru það sögur ein- staklinga sem snerta okkur mest. Ljósmyndin af Oscar Alberto og Valeriu tæplega 2 ára þar sem þau liggja á grúfu, hún með hönd um háls föður síns, birti sannleika sem við þekkjum en sjáum sjaldan. Þau drukknuðu á leið yfir Rio Grande og komust aldrei til Banda- ríkjanna. Myndin birti miskunnar- lausa stefnu Bandaríkjanna. Á sama tíma eru sagðar fréttir af börnum sem leita skjóls á Íslandi. Síðast saga föður með synina Mahdi og Ali, 8 og 10 ára. Önnur saga sem við höfum heyrt er af stúlkunni Zainab í Hagaskóla sem er hætt að brosa eftir að hafa verið tilkynnt að hér fái hún ekki skjól. Nemendur Hagaskóla hafa staðið með henni og mótmælt brottvísun hennar og fjölskyldu hennar til Grikklands. Allir sem vilja vita þekkja hvaða veruleiki bíður þeirra þar. Fréttaflutningurinn hefur verið af sorglegum sögum barna sem leita skjóls á Íslandi og af ákvörð- unum Útlendingastofnunar. Ábyrgðin er hins vegar stjórn- valda. Það er pólitísk stefna stjórn- valda að koma svona fram við börn og ekkert sem skyldar stjórnvöld til þess. Útlendingastofnun ber ekki ein þá ábyrgð frekar en bandarískir landamæraverðir bera ábyrgð á pólitík Trumps. Ljósmyndin af litlum strák á Barnaspítalanum þar sem hann situr á stól með hendur í skauti sér og bíður þess að bróðir hans fái læknisaðstoð segir ekki aðeins sorglega sögu þessara bræðra heldur sorglega sögu af stefnu íslenskra stjórnvalda. Bróðirinn er svo alvarlega þjakaður af kvíða að ekki þykir á hann leggjandi að vísa honum til Grikklands alveg strax. Um leið og hann þykir ferðafær verður honum vísað úr landi. Það er ljósmyndin frá Íslandi. Tvær ljósmyndir FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *SAMLOKURNAR OKKAR* / ERU BESTAR Í DAG / Sómasamlokur ÓDÝRASTA ELDSNEYTI LANDSINS Á DALVEGI OG REYKJA VÍKURVEGI SKILYRÐISLAUST

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.