Fréttablaðið - 17.08.2019, Qupperneq 29
KYNNINGARBLAÐ
Michaela Fritzges frá
Þýskalandi hefur stund-
að Demants-leið (Vajra-
yana) búddismans í 35 ár
og kennir fólki um víða
veröld, meðal annars hér
á landi. ➛4
Framhald á síðu 2 ➛
Helgin
L
A
U
G
A
R
D
A
G
U
R
1
7.
Á
G
Ú
ST
2
01
9
Sylvía Haukdal getur ekki sungið eins og systir hennar, Birgitta, en hún kann sannarlega að baka og skreyta. FRETTABLAÐIÐ/ERNIR
Skapar glæsitertur
fyrir veisluborðið
Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir er mikill bakarameistari. Hún skreytir terturnar
af list og notar gjarnan fersk blóm til að lífga upp á baksturinn. Sylvía gefur
hér þrjár mjög flottar uppskriftir meðal annars af tiramisú-pönnukökutertu.
Sylvía Haukdal er menntaður pastry chef frá matreiðslu-skólanum Le Cordon Bleu
í London. Hún hefur alltaf haft mik-
inn áhuga fyrir bakstri og hjálpaði
gjarnan móður sinni í eldhúsinu á
yngri árum. Hún starfar við áhuga-
málið hjá Sætum syndum og er með
eigin uppskriftavef undir nafninu
sylviahaukdal.is sem vakið hefur
mikla athygli. Þá hefur hún einnig
stóran hóp fylgjenda á Instagram.
Sylvía nær tengslum við lesendur
sína í gegnum samfélagsmiðla.
„Ég kláraði stúdentsprófið
og fór í háskóla en fann fljótt að
baksturinn og sköpunin í kringum
hann heillaði meira. Eftir því sem
ég varð eldri kom æ betur í ljós
að þetta væri draumastarfið,“
segir Sylvía. „Ég þarf alltaf að
vera að gera eitthvað. Mér finnst
mjög skemmtilegt að skapa eitt-
hvað nýtt og fyrir mér er bakstur
ákveðin hugleiðsla,“ segir hún.
Tínir blóm til skreytinga
Sylvía segist ekki vera jafn hrifin
af því að elda mat. „Maðurinn
minn, Atli Björgvinsson, er
lærður kokkur og sér um þá hlið á
heimilinu. Ég geri hins vegar smá-
rétti og deserta,“ segir hún. Þegar
hún er spurð um eftirlætiseftirrétt-
inn svarar hún: „Úff, það er erfið
spurning. Mér finnst nefnilega svo
gaman að prófa eitthvað nýtt. Það
er mjög þægilegt að gera marengs-
skálar og þær slá alltaf í gegn í mat-
arboðum. Ég set karamellu- eða
súkkulaðifyllingu, ferska ávexti
og skreyti með lifandi blómum. Í
góðu veðri fer ég út í móa og tíni
þau sjálf. Ég er nýbúin að halda upp
á afmæli hjá börnunum mínum en
það er eitt það skemmtilegasta sem
ég geri. Þá er sko bakað og gjarnan
hef ég eitthvert þema,“ segir Sylvía
sem á tvær dætur, Önnu Hrafn-
hildi, 4 ára, og Marín Helgu, sem
er ársgömul. Sylvía er yngri systir
Birgittu Haukdal, söngkonu og
barnabókahöfundar. Hún segist
ekki hafa erft sönghæfileikana
en hafa fengið aðra hæfileika í
staðinn.
Draumur í London
Sylvía segir að það hafi verið ein-
staklega skemmtilegt að stunda
nám í Le Cordon Bleu og sömu-
leiðis hafi verið ánægjulegt að upp-
lifa hvernig það er að búa í öðru
landi. „Það var algjör draumur að
upplifa þetta en ég hafði horft á
kvikmyndina um Juliu Child og
heillast af henni. Ég fylgist líka
mikið með fólki á Instagram sem
er að gera allt mögulegt skemmti-
legt um allan heim. Maður fær oft
innblástur með því að fylgjast með
á samfélagsmiðlum. Ég hef tekið
eftir að blóm eru mikið notuð
til skreytinga,“ segir Sylvía sem
heimsækir verslanir með köku-
skreytingadót þegar hún ferðast til
útlanda. Henni finnst sérstaklega
gaman að heimsækja slíkar búðir
í París. „Ég kíki líka í bakaríin og
skoða eftirrétti á veitingahúsum.“
Sylvía segir að tíramisú-pönnu-
kökutertan sem hún gefur hér
uppskrift að sé alveg frábær. „Þetta
er svona ný útgáfa af pönnukökum
sem öllum þykja góðar. Svo er þetta
svona íslensk/ítalskur eftirréttur.“
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
1
7
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:4
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
9
-E
B
C
8
2
3
9
9
-E
A
8
C
2
3
9
9
-E
9
5
0
2
3
9
9
-E
8
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K