Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Qupperneq 4
°
°4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 28. nóvember 2012
Á fimmtudaginn var fór fram árs -
hátíð Grunnskóla Vestmannaeyja.
Þar var völdu nemendur m.a. Björt -
ustu von skólans og hlaut hann að
launum þann heiður að verða Eyja-
maður vikunnar í Eyjafréttum.
Nafn: Gabríel Sighvatsson
Fæðingardagur: 28. september
1998
Fæðingarstaður: Reykjavík
Fjölskylda: Foreldrar mínir heita
Dóra Hanna Sigmarsdóttir og Sig -
hvatur Jónsson, svo á ég tvö syst -
kini sem heita Elmar Elí og Embla
Dís.
Draumabíllinn: Porsche
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur -
inn hennr ömmu
Versti matur: Soðin ýsa
Uppáhalds vefsíða: fotbolti.net og
netleikir.is
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Öll tónlist kemur mér í gott
skap ég hlusta mjög mikið á tónlist
Aðaláhugamál: Fótbolti
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Væri til í að hitta Cristiano Ronaldo
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Uppáhaldsfélögin eru
Manchester United og ÍBV og upp -
áhaldsíþróttamaðurinn er Cristiano
Ronaldo
Ertu hjátrúarfull/ur: Nei
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Já, ég æfi fótbolta
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Gamanþættir t.d. Two And a Half
Men, The Big Bang Theory, How I
Met Your Mother o.fl.
Hvernig fannst þér árshátíðin
heppnast: Bara mjög vel
Hvað stefnirðu á að læra að
loknum grunnskóla: Veit ekki
alveg enn, ætla að minnsta kosti að
verða klárari en hann pabbi.
Ef þú mættir velja þér eina
spurningu til að svara, hver væri
hún og hvað væri svarið:
Spurningin væri: „Ef þú gætir ferð -
ast til hvaða staðar sem er í
heiminum hvert mundir þú fara?“,
og svarið yrði þá: „Flórída, Banda -
ríkjunum eða Spánn.“
Eitthvað að lokum: Ég vil þakka
öllum fyrir stuðninginn sem kusu
mig sem björtustu vonina.
Eyjamaður vikunnar: Kirkjur bæjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 29. nóvember:
Kl. 10.00. Foreldramorgun. Kaffi
og spjall.
Kl. 20.00. Æfing hjá kór Landa -
kirkju.
Kl. 20.00. Opið hús í KFUM/K-
húsinu
Föstudagur 30. nóvember:
Kl. 13-17. Móttaka á kökum, hlut -
um á hlutaveltu og happdrættis -
vinningum fyrir aðventukaffið 2.
desember hjá Kvenfélagi Landa -
kirkju.
Kl. 13.30. Æfing hjá Litlu læri -
sveinunum.
Laugardagur 1. desember. Full -
veldisdagurinn.
Kl. 15-17. Móttaka á kökum, hlut -
u m á hlutaveltu og happdrættis -
vinningum fyrir aðventukaffið 2.
desember hjá Kvenfélagi Landa -
kirkju.
Kl. 17.00. Kveikt á jólatré á Stakkó.
Litlu lærisveinarnir syngja og sr.
Kristján Björnsson flytur hugvekju.
Sunnudagur 2. desember. Fyrsti
sunnudagur í aðventu:
Kl. 11.00. Sunnudagaskóli.
Brúðuleikhús í umsjón fermingar-
barna, söngur og gleði. Kveikt
verður á fyrsta kerti aðventu -
kransins, Spádómskertinu.
Kl. 14.00. Messa á fyrsta sunnudegi
í aðventu, með altarisgöngu. Kór
Landakirkju syngur undir stjórn
Kitty Kovács. Sr. Guðmundur Örn
prédikar og þjónar fyrir altari,
Kiwanismenn lesa ritningarlestra.
Kveikt verður á fyrsta kerti að -
ventukransins, Spádómskertinu.
Kl. 15.00. Aðventukaffi Kvenfélags
Landakirkju, happdrætti, hlutavelta,
kökubasar og prjónavörur frá eldri
borgurum í Vestmannaeyjum. Allir
hjartanlega velkomnir.
Kl. 21.00. Jólin alls staðar í Landa -
kirkju. Regína Ósk, Guðrún Gunn -
arsdóttir, Jogvan Hansen og Árný
syngja ásamt Litlu Lærisveinunum
sem Kitty Kovács stjórnar. Að-
gangseyrir er 3.990 kr.
Mánudagur 3. desember:
Kl. 14.00. Fermingarfræðsla.
Kl. 18.00. Jólafundur hjá Kirkju -
starfi fatlaðra. Helgileikur, söngur
og jólakaffi á eftir.
Fermingarfræðsla fellur niður
vegna söfnunar fermingarbarna.
Kl. 19.30. Tólf spora andlegt ferða -
lag hjá Vinum í bata.
Þriðjudagur 4. desember:
Kl. 12.30. Fermingarfræðsla
Kl. 13.30. Fermingarfræðsla.
Kl. 14.30. ETT (11-12 ára kirkju -
starf)
Kl. 20.00. Fundur hjá Gideon
Miðvikudagur 5. desember:
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 14.15. Fermingarfræðsla.
Kl. 14.30. NTT (9-10 ára)
Kl. 20.00. Jólafundur hjá Aglow.
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur 1 des.
Kl.11 Biblíulestur
Kl 12 Guðsþjónusta. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Hvítasunnu -
kirkjan
Fimmtudagur 29. nóv. kl. 20:00
,,Fögnum bata“ - Biblíufræðsla
Sæluboðin í Matteusarguðspjalli
skoðuð. Allir velkomnir.
1. sunnudagur í aðventu kl. 13:00
Aðventugleði með miklum söng.
Jólaávextir og ávöxtur Andans í
orði Guðs. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Ætla að verða klárari
en hann pabbi
Börn og brúðhjón
Fréttir vilja eindregið hvetja
brúð hjón til að senda inn
mynd til birtingar og eins
for eldra nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Ég þakka Tobba Villa fyrir áskor -
unina og mun halda áfram að
skora á eðal ´75 árganginn. Eins
og allir vita sem mig þekkja, var
ég snillingur í að fóðra félaga
mína í miðbænum með frægum
rétti sem kallast Rebbi og mun
ég deila uppskriftinni með
lesendum. Einnig ætla ég að
koma með uppskrift að eðal ein-
földum og góðum kjúklingarétti
sem slær alltaf í gegn þar sem ég
elda nú ekki mjög oft. Konan mín,
hún Ragnheiður, eftirlét mér svo
eina af sínum gómsætu upp -
skriftum en þennan eftirrétt
fann hún upp þar sem oreokex
hefur verið í uppáhaldi í bakstri á
okkar heimili.
Rebbi
1 pakki matarkex
íslenskt smjör
17% ostur
Fyrst er tekin ein kexkaka og hún
smurð jafnt með 4 grömmum af
smjöri, því næst eru skornar 3 ost-
sneiðar sem eiga að vega um 8
grömm hver sneið og lagðar ofan á
kexið í kross. Þetta er svo endur -
tekið þar til kexpakkinn er búinn.
Döðlukjúklingaréttur Búbú
4 kjúklingabringur
1 krukka af góðu, rauðu pestói
1 krukka af fetaosti
250 g döðlur
Kjúklingabringurnar skornar í
tvennt og raðað í eldfast mót. Hluta
af olíunni, sem er með fetaostinum,
hellt af. Döðlurnar klipptar eða
skornar í þrennt. Pestóið, feta -
osturinn og döðlurnar eru mixaðar
saman og dreift yfir kjúklinginn.
Sett inn í ofn í 45 mínútur.
Litlar twix ostakökur
12 oreokex
25 gr smjör
1 msk. sykur
15 muffinsform
400 gr rjómaostur
1 ½ dl sykur
½ dl rjómi
1 tsk. vanilla
2 egg
2 risa twix
1 poki Góukaramellur, bara brúnu
karamellurnar
1 dl rjómi
Hitið ofninn í 140°C.
Oreokexið mulið í matvinnsluvél og
sykri og smjöri bætt út í.
Skipt jafn í 15 muffinsform og þrýst
aðeins niður með teskeið.
Muffinsformin sett í muffinsbakka
eða sílikonform svo að kökurnar
renni ekki út.
Rjómaosturinn hrærður svo hann
verði mjúkur, sykri bætt við og
þeytt. Rjóma og vanillu hrært
saman við. Eggjunum bætt við, einu
í einu, og hrært á litlum hraða.
Twixið er skorið langsum og svo í
litla bita og bætt út í.
Rjómaostablöndunni er ausið yfir
kexbotninn. (Deigið lyftir sér ekki)
Bakað í 40 mín við 140°C.
Kökurnar eru kældar í formunum.
Þegar kökurnar eru orðnar kaldar
eru karamellurnar hitaðar með
rjóma og 1 msk. af karamellu er sett
ofan á kökurnar.
Kökurnar eru geymdar í kæli a.m.k.
yfir nótt.
Ef þetta eru ekki uppskriftir sem
falla í kramið hjá fólki þá stóla ég
á að stórkokkurinn Jón Gunnar
Erlingsson komi með eitthvað
virkilega gómsætt í næsta blaði.
Matgæðingur vikunnar er Sigurður Jóhann Atlason
Matgæðingur vikunnar:
Rebbi, ostakökur og kjúlli
Eyjamaður vikunnar er Gabríel Sighvatsson
85 ára afmæli
Inga J. Halldórsdóttir verður 85
ára föstudaginn 30. nóv. 2012.
Hún tekur á móti gestum í
Akóges frá kl. 16 til 18 sama
dag.
Mamma vill ekki neinar gjafir, en
ef einhver vill gleðja hana, myndi
hún vilja láta það renna til Heil-
brigðisstofnunar Vestmanna -
eyja.
Hlökkum til að sjá
ykkur sem flest.
Börnin
Hjálparstarf
aðventista
þakkar
stuðninginn
ADRA, Hjálparstarf aðventista,
þakkar Vestmannaeyingum góðar
móttökur helgina 17. - 18. nóvem-
ber. Stuðningur ykkar kemur að
góðum notum hér heima og í
verkefnum hjálparstarfsins í Perú
og um allan heim.