Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Síða 15
Eyjafréttir / Miðvikudagur 28. nóvember 2012 15 Hugleiðing í tilefni af Evrópudegi sjúkraliða þann 26. nóv. sl. Hver er mín upplifun af starfinu mínu? Mig minnir að ég hafi verið um 18-19 ára þegar ég ákvað að ég vildi vinna í heilbrigð - is geiranum, byrjaði að leysa af sem ófaglærð starfsstúlka sumrin 1978 og 1979 og síðan lá leiðin í Fjöl- brautaskólann á Akranesi þar sem ég tók allt mitt bóklega nám, vann síðan verknámið mitt allt á Sjúkra - húsi Akraness og útskrifaðist síðan sem sjúkraliði í mars 1982. Minn starfsvettvangur hefur lengst af verið við umönnun aldraðra, en ég hef líka komið við á alls kyns öðrum deildum. Um tíma tók ég mér pásu frá sjúkraliðastarfinu og fór yfir á allt annan vettvang og var þá í dag - vinnu, en spítalavinnan togaði í mig og þrátt fyrir að vaktavinnan hafi sína galla (næturvaktir og vinna á hátíðum og tyllidögum) þá hentar hún mér betur. Og mér finnst eigin- lega bara notalegt til þess að hugsa að þó það sé vissulega yndislegt að vera heima hjá sínu fólki á stórhá - tíðum, þá er það líka gott að hugsa til þess að vera í vinnu á þessum dögum og geta létt þeim lífið sem þurfa að liggja á sjúkrahúsi á þess - um stundum. En ég hóf aftur störf í heilbrigðisgeiranum þegar ég flutti hingað til Vestmannaeyja í janúar 2004, byrjaði að vinna á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja og hér er ég enn og hér líður mér vel. Hér á HSV er gott að vinna. Maður eiginlega kynnist allri heil- brigðisstarfsflórunni; nýfæddum börnum og mæðrum þeirra, sjúk- lingum að jafna sig eftir aðgerðir og veikindi, umönnun aldraðra og einnig að annast einstaklinga við lífslok. Sem dæmi má nefna nýfæddu börnin. Það er alveg dásamlegt þegar þessi litlu kraftaverk koma í heiminn og dveljast á deildinni hjá okkur um lengri eða skemmri tíma ásamt mæðrum sínum. Stundum hagar því þannig til að mömmurnar þurfa hvíld yfir nóttina og fáum við þá að taka litlu krílin fram á vakt til okkar og gæta þeirra einhvern part næturinnar. Það er svo yndislegt og gefandi að fá að passa þessa litlu anga og annast þá. Og annað dæmi; það er annasöm morgunvakt, margir sjúklingar inniliggjandi, einhverjir útskrifast heim, nokkrir eru lagðir inn og mikill erill myndast. Maður er ef til vill farinn að verða svolítið lúinn og er að aðstoða sjúkling við athafnir daglegs lífs, sem hann er ekki fær um sjálfur. Og þessi einstaklingur er svo þakklátur fyrir veitta aðstoð að manni er gefin stroka á vanga og hlý orð látin falla. Þetta verður alveg til þess að öll þreyta og stress fýkur út í veður og vind og hlýir straumar fara um hjartað í manni. Svo er eitt dæmi enn sem mig langar að nefna; það er órjúfanlegur hluti af starfi sjúkraliða að annast einstaklinga við lífslok og síðan kveður viðkomandi þennan heim. Aðstandendur safnast saman á deildinni til að kveðja ástvin sinn og við tökum á móti fólkinu og vottum þeim samúð okkar. Þá er það iðulega þannig að við erum teknar og faðmaðar hlýtt og inni- lega og okkur hrósað með yndis - legum hlýjum orðum. Þetta yljar okkur þvílíkt um hjartaræturnar og lyftir okkur upp í hæstu hæðir og fær okkur til að segja; mikið óskaplega þykir mér vænt um starfið mitt! Mig langar til að segja við ykkur unga fólk þarna úti, sem eruð að velta fyrir ykkur hvað ykkur langar að verða: Spáið í sjúkraliðanámið! Þetta er fjölbreytt og gefandi starf, vissulega getur það verið andlega og líkamlega krefjandi, en er svo ríkulega gefandi og veitir manni svo magnaða og góða lífsreynslu. Ef ég væri aftur orðin 18-19 ára og væri að velta fyrir mér hvað ég vildi verða, þá myndi ég pottþétt velja sjúkraliðanámið! Ég er sjúkraliði og er stolt af því! Tölvufíkn barna og ungmenna Tölvutæknin er ein af stærstu uppfinningum síðastliðinna áratuga og ef til vill sú sem hefur haft mest áhrif á daglegt líf okkar og það á mjög skömmum tíma. Varla hefði fólk um miðja síðustu öld órað fyrir því að bráðum myndum við geta átt samskipti í gegnum tölvur, talað í gegnum myndavél við fólk sem er statt í fjarlægum heimshluta, stundað viðskipti, deilt fjölskyldualbúminu, eignast vini og jafnvel fundið okkur maka í gegnum lyklaborð og lítinn sjónvarpsskjá. Þegar tækni er jafn ör í þróun og raun ber vitni vill það gerast að við, þessi mannlegu, náum ekki að fylgja almennilega á eftir. Flestir þekkja það af eigin raun að börnin þeirra eru mun snjallari við þessa nýju tækni en þeir sjálfir og í sumum tilvikum eru það börnin sem stýra tölvunotkun heimilisins af þeirri einföldu ástæðu að þau kunna þar best til verka. Algengt er að við tortryggjum það sem við þekkjum ekki og flest börn og ungmenni þekkja mjög líklega kvartanir foreldra um of mikla tölvu - notkun. Skilin á milli eðlilegrar tölvunotkunar barna og ungmenna og tölvufíknar eða stjórnlausrar hegð unar eru ekki alltaf skýr í huga fólks enda áttar fólk sig ekki alltaf á þeim möguleikum sem tölvunotkun og þá einkum netnotkun býður upp á. Í huga sumra verður því tölvan og netið yfirleitt með neikvæðum stimpli og tölvunotkun talin óæskileg hegðun. „Af hverju ertu ekki frekar úti að leika þér eða að spila við vini þína, læra heima eða þá a.m.k. að hlusta á tónlist eins og unglingar eiga að gera?“ En raunin er þá sú að það er einmitt það sem viðkomandi unglingur er að gera – hann er bara að gera það í gegnum netið. Börn og ungmenni sækja stóran hluta af afþreyingu sinni og þekkingu í gegnum netið enda er til urmull af áhugaverðum og gagnlegum vef- síðum. Samskipti í tölvuformi koma að sjálfsögðu ekki í stað hefð - bundinna samskipta, ekki frekar en símtöl koma í stað innihaldsríkra samræðna, augliti til auglits en hvort tveggja getur verið ágæt viðbót í samskiptum fólks. Hins vegar er líka til mjög óæskilegt efni á netinu og ekki eru öll samskipti þar með upp- byggjandi eða heilbrigðum hætti. Í einstaka tilvikum missir fólk stjórn á tölvunotkun sinni og hún fer að stýra lífi þess og valda erfið - leikum í námi eða vinnu og einkalífi. Þegar um raunverulega hamlandi áhrif tölvunotkunar er að ræða er hægt að tala um fíkn en vandinn er sá að gera sér grein fyrir hvenær farið er að stíga yfir línuna. Þegar skilgreina skal tölvufíkn er ágætt að nota almenna skilgreiningu á fíkn til að átta sig á því hvenær notkunin verður vandamál þar sem hægt er að skipta út neyslu vímuefna fyrir svo til hvaða neyslu eða hegð - unarmunstur sem er og sem getur reynst skaðlegt. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin skilgreinir fíkn á eftir- farandi hátt: • Sterk löngun eða áráttukennd þörf fyrir efnið. • Stjórnlaus neysla. Tíðari, meiri eða varir lengur en gert var ráð fyrir. • Líkamleg fráhvarfseinkenni þegar dregið er úr neyslu. • Aukið þol – meira magn þarf til að ná sömu áhrifum og áður. • Meiri tími fer í að nálgast efnið, neyta þess eða ná sér eftir neyslu. • Neyslu er haldið áfram þrátt fyrir líkamlegan eða sálrænan skaða. Fíkn er til staðar ef þrjú af sex ofan- greindum einkennum hafa verið til staðar um eitthvert skeið á síðast - liðnum tólf mánuðum. Gjarnan er gerður greinarmunur á fíkn og misnotkun á efni – í þessu tilviki tölvumisnotkun. Talað er um misnotkun þegar eitt eða fleiri af neðangreindum atriðum er uppfyllt: 1. Endurtekin (mis)notkun sem leiðir til mistaka við að uppfylla skyldur í vinnu, skóla eða á heimili 2. Endurtekin notkun í áhættu - aðstæðum, t.d. við akstur eða þegar viðkomandi þarf á annan hátt að beina athyglinni að því sem hann er að gera, s.s. við vinnu 3. Endurteknir árekstrar við um - hverf ið vegna tölvunotkunar 4. Áframhaldandi (mis)notkun þrátt fyrir endurtekin vandamál. Margir foreldrar kannast við börnin sín í þessari upptalningu, þ.e. það hefur komið fyrir að þau skrópi í skóla eða vanræki heimanám vegna tölvunotkunar, eigi erfitt með að hætta í tölvunni þegar þeim er sagt að hætta, séu pirruð yfir að komast ekki að í tölvunni eða að þeim lendi saman við aðra fjölskyldumeðlimi vegna notkunarinnar. Skilin á milli eðli legrar notkunar, misnotkunar og fíkn ar geta hins vegar verið óljós og einstaklingsbundin. Annar þáttur sem taka þarf inn í dæmið þegar foreldrar leggja mat á hvort tölvunotkun barnsins sé með eðlilegum hætti, er hvað barnið er að gera í tölvunni. Eins og komið var inn á má telja það mjög eðlilega hegðun unglings að hlusta á tónlist og horfa á kvikmyndir þó smekkur unglingsins fari ekki alltaf saman við smekk foreldra hans. Hvers konar skaðleg tölvunotkun er hins vegar hættumerki. Til dæmis að skoða klám, samskipti við ókunnugt fólk sem eru stundum í annarlegum til- gangi, einelti og notkun á ofbeldis - leikjum sem einungis eru ætlaðir fullorðnum notendum. Það er eitt af hlutverkum foreldra að kenna börn - um eðlileg og örugg samskipti á net- inu og að fylgjast með netnotkun þeirra. Það að leyfa tölvu inni í her- bergjum barnanna takmarkar það eftirlit sem hægt er að hafa með tölvunotkuninni, bæði hversu lengi þau eru í tölvunni og hvað þau eru að gera. Einnig er mikilvægt að foreld rar ræði saman um tölvunotkun barn - anna í vinahópnum og setji sam - eiginleg viðmið í því, rétt eins og að standa saman um að virða útivistar- reglur, kaupa ekki áfengi og tóbak fyrir börn, leggja ekki í einelti o.s.frv. Eins og áður segir slá börnin for - eld rana oft út af laginu þegar kemur að tölvunotkun – þau kunna þetta stund um allt miklu betur en foreldr - arnir svo foreldrum finnst þeir ekki vera dómbærir á hvað telst eðlileg tölvu notkun. Oft er það þó þannig að áhyggjur sem foreldrar hafa af börn - um sínum, af hvaða meiði sem þær eru, reynast oft á rökum reistar. Hins vegar getur verið gott að viðra málin við óháðan aðila til að leggja mat á þessa þætti. Hafi foreld rar áhyggjur af tölvunotkun barna sinna og mögulegri tölvufíkn er t.d. hægt að fá ráðgjöf hjá starfsmönnum fjöl- skyldu- og fræðslusviðs. Pólitík skiptir máli – tökum þátt Eftir um 150 daga ganga Íslendingar að kjörborðinu og kjósa til Alþingis. Prófkjör, for- val og uppstillingar eru í gangi hjá öllum stjórnmálaflokkum og á næstu tveimur mánuðum skýrist hvernig framboðslistar flokkanna verða skipaðir. Nú er tækifæri til að hafa áhrif. Stjórnmálin mega muna sinn fífil fegurri og við sem störfum á þeim vettvangi finnum sennilega öll fyrir minni áhuga, virðingarleysi og jafn- vel vonleysi gagnvart stjórnmálum og stjórnmálamönnum. Eins skrýtið og það hljómar, er mín upplifun samt sú að fólk sé þrátt fyrir þetta almennt pólitískara en áður. Hvert sem ég fer og hvar sem ég kem ræðir fólk við mig um pólitík, hvað það vill sjá betur gert og hvernig. Og hefur á því miklar skoðanir og margt til málanna að leggja. Í þessu er fólgin þversögn - almenningur er pólitískari á sama tíma og hefð - bundin þátttaka í stjórnmálum fer dvínandi. Stjórnmál skipta máli, hugmynda - fræði skiptir máli, vinnubrögð skipta máli og einstaklingar skipta máli. Ég leyfi mér að fullyrða að við öll sem störfum í stjórnmálum séum þar af góðum hug – við viljum hafa áhrif á samfélagið og við höfum sannfæringu fyrir því sem við erum að berjast fyrir. Og það er einmitt ekkert athugavert við það að stjórnmálum fylgi barátta, stundum átök um mismunandi aðferðir og hugmyndafræði. Þetta er það sem lýðræðið snýst um. Við erum samt miklu oftar sam- mála, þvert á flokkslínur, á Alþingi en menn halda - en átökin eru fréttnæmari. Við tölum oftar um og við hvert annað af virðingu á Alþingi - en virðingarleysið þykir fréttnæm ara. Þetta fælir gott fólk frá þátttöku í stjórnmálum og þessu vil ég breyta. Tökumst á um menn og málefni en umfram allt, sýnum hvert öðru virð - ingu. Það er gaman í stjórnmá l um, það er gaman að sjá hugmynd ir fæðast og verða að veruleika. Til þess að hafa áhrif verða menn að taka þátt og nú er tækifærið. Prófkjör okkar sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi fer fram þann 26. janúar og rennur framboðsfrestur út þann 14. desember. Ég vil hvetja fólk til dáða – komið með okkur í baráttuna, tryggjum góða þátttöku, tökum slaginn saman og gerum gott samfélag betra. Ásdís Emil ía Björgvinsdótt i r sjúkral ið i v ið Hei lbr igðisstofnun Vestmannaeyja Og mér finnst eiginlega bara notalegt til þess að hugsa að þó það sé vissulega yndislegt að vera heima hjá sínu fólki á stórhátíðum, þá er það líka gott að hugsa til þess að vera í vinnu á þessum dögum.” Hvers konar skaðlegtölvunotkun er hinsvegar hættumerki. Tildæmis að skoðaklám, samskipti við ókunnugt fólk sem eru stundum í annar - legum tilgangi, einelti og notkun á ofbeldis - leikjum sem einungis eru ætlaðir fullorðn - um not endum. ” Ragnheiður El ín Árnadótt ir oddvit i Sjálstæðis- f lokksins í Suðurkjördæmi Það er gaman í stjórnmá l um, það er gaman að sjá hugmynd ir fæðast og verða að veruleika. Til þess að hafa áhrif verða menn að taka þátt og nú er tækifærið. ” Guðrún Jónsdótt i r yf ir fé lagsráðgjaf i f jö l skyldu- og fræðslu sviðs Vest- mannaeyjabæjar STIMPLAR Ýmsar gerðir og litir Strandvegi 47 - Sími 481 1300 ° °

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.