Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Side 20
20 Eyjafréttir / Miðvikudagur 28. nóvember 2012
°
°
Todmobile í einu orði sagt frábær
:: Bjarni Ólafur Guðmundsson, rekstraraðili Hallarinnar, ánægður með heimsókn helgarinnar
Hljómsveitin Todmobile heimsótti
Vestmannaeyinga um helgina og
bauð upp á tveggja kvölda skemmt -
un í Höllinni. Annars vegar tónleika
að kvöldi föstudags og dansleik að-
faranótt sunnudags. „Hljómsveitin
var í einu orði sagt frábær, sérstak-
lega á tónleikunum og svo var
boðið upp á ekta Todmobileball,“
sagði Bjarni Ólafur Guðmundsson,
rekstaraðili Hallarinnar, í samtali
við Eyjafréttir. „Mætingin var
kannski ekki eins góð og við
vonuðumst eftir, en ljósi þess að
það eru vaktir í stöðvunum og eins
fóru margir héðan á tónleika
Lúðrasveitarinnar og Fjallabræðra í
höfuðborginni, þá er þetta skiljan-
legt. Það voru um 150 manns sem
sóttu tónleikana og eitthvað annað
eins á ballinu, bara fínt þó maður
vilji alltaf fá fleiri. Ég held að það
hafi bara allir verið í skýjunum sem
mættu enda ekki annað hægt með
slíka ofurgrúbbu.“
Árshátíð elstu bekkja Grunnskóla Vestmannaeyja:
Mikið fjör og dansað fram
undir miðnætti
Í síðustu viku héldu elstu bekk -
ingar Grunnskóla Vestmanna -
eyja sína árlegu árshátíð. Eins
og alltaf mættu nemendurnir í
sínu fínasta pússi og skemmtu
sér konunglega. Fanney Ás-
geirsdóttir, skólastjóri GRV,
sagði í samtali við Eyjafréttir að
árshátíðin hefði heppnast mjög
vel. „Árshátíð unglingastigsins
fór afar vel fram og unglingarnir
okkar voru í alla staði til fyrir -
myndar. Skemmtiatriði kvölds -
ins báru þess merki að við
eigum mikið af virkilega hæfi -
leikaríkum nemendum og þarna
mátti m.a. finna mörg frábær
tónlistaratriði. Úr stuttmynda -
smiðjunni bárust líka mjög
skemmtilegar myndir og kynnar
kvöldsins stóðu sig með miklum
ágætum. Kvöldinu lauk svo með
dúndrandi dansleik og það voru
heitir, þreyttir og ánægðir
unglingar sem drifu sig heim rétt
fyrir miðnætti,“ sagði Fanney. Viktoría Þorsteinsdóttir og Svanhildur Eiríksdóttir tóku
lagið á árshátíðinni.
Samkvæmt þessari mynd klæðast ungir menn hvítri skyrtu með slaufu
um hálsinn og axlabönd um herðar. Herratískan í ár?
Þessir krakkar fengu hin ýmsu verðlaun á árshátíðinni.
Þær Halla Kristín Kristinsdóttir og Sara Dís Hafþórsdóttir brostu sætt
til ljósmyndara Eyjafrétta.
M
yn
di
r:
Ó
sk
ar
P
ét
ur
F
ri
ðr
ik
ss
on
.