Fréttir - Eyjafréttir - 28.11.2012, Side 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 28. nóvember 2012
°
°
Gunnhildur Kjartansdóttir fær hugmyndir og hrindir þeim í framkvæmd:
4Bling skartgripaskápur
hefur slegið í gegn
:: Nú, ári seinna, er komið á markaðinn 4Phone, handhæg hirsla fyrir farsíma og hleðslutæki
Kunnuglegt andlit birtist á skján -
um í þættinum Frumkvöðlar
sem Elínóra Inga Sigurðardóttir
stjórnar á ÍNN. Hjá henni var
Gunnhildur Kjartansdóttir sem í
tíu ár starfaði sem launafulltrúi
hjá Ísfélaginu. Hún var þarna
mætt á nýjum vettvangi, var að
kynna vörur sem hún á hug -
myndina að og hefur þróað í
samstarfi við hæfa hönnuði og
eru nú komnar í verslanir. Þetta
hefur hún gert með góðum
stuðningi eiginmannsins, Ólafs
Erlendssonar og með fullu starfi
og án allra styrkja. Fyrir rúmu
ári fékk Gunnhildur hugmynd
að 4Bling, vegghengdum skart-
gripaskáp sem slegið hefur í
gegn og nú ári seinna er komið
á markaðinn 4Phone, handhæg
hirsla fyrir farsíma og hleðslu -
tæki.
Gunnhildur og Ólafur hafa stofnað
fyrirtækið 4Bling um hugmyndir
hennar og þróun en bæði eru enn á
fullu í annarri vinnu þannig að
hugmyndirnar eru ekki farnar að
skila þeim verulegum tekjum, þar
sem þær eru svo nýjar á markaðn -
um en þau hugsa hátt og eru
óhrædd við að leita sér aðstoðar hjá
fagfólki. Hefur þeim alls staðar
verið vel tekið og ætti saga þeirra
að vera öðrum hvatning.
Hugmyndin kviknaði á
Sæbrautinni
Um skartgripaskápinn 4Bling segja
þau að hann sé snilld fyrir skart-
gripina og kjörinn fyrir þá sem vilja
koma reglu á þá. Hann er hannaður
þannig að skartinu er raðað í hill -
urnar, hver hringur, eyrnalokkapar,
úr eða armband hefur sitt hólf svo
vel fer um hlutinn. Þú færð góða
yfirsýn yfir það sem þú átt og
skartið verður veggskrautið.
Hugmyndin að 4Bling fæddist
þann 17. mars 2011, þegar Gunn -
hildur var að keyra Sæbrautina á
leið í vinnu um hálf níu leytið um
morguninn. „Kom hugmyndin allt í
einu upp í hugann og var hafist
handa um leið,“ segir Gunnhildur
sem lét verkin tala. „Fengum
Bjarna Má Guðlaugsson snilling til
að búa til þrívíddarmyndband af
skápnum daginn eftir og fórum með
usb lykilinn til Hannesar í Nýsköp -
unarmiðstöðinni viku seinna til að
sýna honum. Fengum við mjög góð
viðbrögð, enda enginn komið með
svona myndband til hans áður.“
Hannes benti þeim á að fara í Fab
Lab í Vestmannaeyjum þar sem
hægt er að gera ótrúlega hluti. „Er
Frosti Gíslason, yfirmaður þar, svo
sannarlega réttur maður á réttum
stað, ótrúlega þolinmóður og með
góð ráð og þekkingu. Reyndum við
að útbúa fyrsta eintakið þar en þar
sem teikningarnar pössuðu ekki
alveg fórum við nokkrum vikum
seinna í Fab Lab á Akranesi. Eftir
dagsvinnu þar, þar sem teikning -
arnar voru enn ekki réttar hjá okkur,
þá ákváðum við að leita okkur
aðstoðar með þetta.“
Fóru þau í Format Akron og fengu
þar eðal þjónustu. „Birgir Einarsson
hönnuður hefur verið okkur innan
handar og þróað þetta með okkur. Á
hann svo sannarlega heiður skilinn.
María Manda, umbúðahönnuður,
hannaði umbúðirnar og erum við
mjög ánægð með þær og hennar
vinnubrögð. Sölvi Hrafn Ingimund -
arson hannaði logo-ið. Afskaplega
fallegt að okkar mati og Margt og
merkilegt hannaði límmiðana.
4Bling kom í búðir 5. desember
2011, átta og hálfum mánuði frá því
hugmyndin kviknaði þar sem
Gunn hildur var að keyra Sæbraut -
ina. Er skápurinn til sölu í Epal,
Kraum, Hönnunarsafni Íslands, 18
rauðum rósum og Pollyanna.is.
Hugmyndin kviknaði í her-
bergi dótturinnar
Þá var komið að 4Phone.is en hug -
myndina að því fékk Gunnhildur
þegar hún labbaði inn í herbergi
dóttur sinnar. „Þar var hún með
hleðslutækið í innstungu við
hurðina og símann í hleðslu í
hillusamstæðunni sem hún á. Varð
mér hugsað til þess að lítið þyrfti til
að labba á snúruna og þá dytti
síminn og eyðilegðist,“ sagði
Gunnhildur sem í framhaldi af því
fór að skoða málið.
„Ég fór með hugmyndina til Birgis
Einarssonar í Format Akron og
skildi hann strax hvað ég meinti.
Bað hann mig að teikna þetta upp
en þar sem ég kann ekki að teikna
bað ég manninn að koma heim með
pappakassa sem ég notaði til að
móta frumhugmyndina. Pappamótið
fór ég með til Birgis sem teiknaði
þetta upp og gerði í framhaldi af því
prufu úr plexi. Svo skoðuðum við
þetta markvisst, pældum, mældum,
gerðum lagfæringar og prufur úr
plexíinu nokkrum sinnum.“
Gunnhildur talaði við Auði Ingu í
Vodafone sem tók vel á móti henni
og gaf Gunnhildi leyfi til að fara í
búðina þeirra í Smáralindinni til að
máta síma og hleðslutæki er henni
hentaði. „Fékk alveg hreint frábæra
þjónustu hjá þeim og mun aði miklu
að fá að þróa vöruna þannig.“
Það kom í ljós að plexi hentaði
ekki fyrir 4Phone. „Þá leitaði ég til
Brynjólfs í Vitar.is sem starfar í
Kína við að aðstoða fyrirtæki við að
fá vörur gerðar þar í landi. Brynj -
ólfur er alveg stórkostlegur. Hann er
mjög nákvæmur, áreiðanlegur,
þægilegur og með mikla þjónustu-
lund. Bað ég hann um að athuga
hvort eitthvað annað efni væri til
sem við gætum notað. Hann athug -
aði málið fyrir mig og sagði mér frá
þremur efnum. Ég hafði svo sam-
band við Nýsköpunarmiðstöðina
þar sem ég fékk nánari upplýsingar
um efnin. Úr varð að við völdum
PS, það rispast mjög lítið, hefur
góðan gljáa, er létt og mjög sterkt.“
Of dýrt að framleiða á
Íslandi
Upphaflega var hugmyndin að
framleiða vörurnar á Íslandi en því
miður var það of dýrt. „Eftir að hafa
kynnt mér framleiðsluaðferðina
sem boðið er upp á í Kína ákvað ég
að báðar vörurnar yrðu framleiddar
þar. Búið var til mót fyrir 4Phone
og er varan steypt í því. Er ég mjög
ánægð með útkomuna og tel mig
vera að bjóða gæðavöru á góðu
verði. 4Bling er líka framleitt í
Kína, enda plexí of dýrt á Íslandi og
varan hefði aldrei selst á því verði
sem ég hefði þurft að selja hana á.“
Sölvi Hrafn Ingimundarson gerði
aftur logo-ið fyrir þau en þau vildu
hafa það í sama stíl og 4Bling. „Er
ég virkilega ánægð með það. Í
gegnum Korku, sem er félag fyrir
konur í nýsköpun, kynntist ég
snillingnum Sigrúnu Einarsdóttur
sem er grafískur hönnuður og vöru -
hönnuður sjá www.cooldesign.is.
Hún hannaði fyrir mig umbúðirnar,
gerði vefsíðuna 4phone.is, kynning -
arefni og fl. Skipti það sköpum að
fá hana til liðs við mig. Til gamans
má geta að Sigrún er Vestmanna -
eyingur. Það sem hún hefur gert
fyrir mig og vöruna er ómetanlegt.
Kristján Maack ljósmyndari tók
myndirnar fyrir mig. Ég er mjög
ánægð með þær. Ég hef lært það að
góðar myndir skipta gríðarlega
miklu máli,“ sagði Gunnhildur.
4Phone er til sölu í Tölvun í Vest-
mannaeyjum, Vodafone, Símanum,
A4, Aha.is, Femin.is, Nammi.is,
Martölvun á Hornafirði og Hrannar-
búðinni í Grundarfirði.
Gunnhildur er með tvær vefsíður,
4phone.is og 4bling.is. Þar er hægt
að fá nánari upplýsingar um hvar
vörurnar fást, myndir og þess háttar.
Ólafur og
Gunnhildur
eftir árin í
Eyjum
Gunnhildur og Ólafur búa í
Vallarhverfinu í Hafnarfirði
með fjölskyldu sinni en áður
en þau fluttu frá Eyjum fyrir
fimm árum vann hún sem
launafulltrúi hjá Ísfélaginu og
hann vann hjá Net hf.
Ólafur hefur verið að vinna
sem verkstjóri í Tornet í
Hafnarfirði síðan þau fluttu.
Hann tók meistaranám í
netagerð utanskóla eftir að
þau fóru upp á land. Hann
hefur ferðast mikið á vegum
vinnunnar, bæði innanlands
og utan. Óli mætir á nánast
alla útileiki ÍBV í fótbolta og
hittir þar af leiðandi reglulega
fullt af Eyjafólki.
Gunnhildur byrjaði að vinna í
Landsvirkjun en eftir sjö mánuði
þar bauðst henni vinna sem
launafulltrúi hjá CCP. Var hún þar
í rúm þrjú 3 ár eða þangað til
fyrirtækið sagði upp 300 manns á
Íslandi, Bandaríkjunum og víðar
og var hún því miður ein af þeim.
Hún er núna að vinna sem ráð -
gjafi í Tölvumiðlun sem er með
H3 launakerfi.
Börnin eru þrjú:
Atli Freyr, 21 árs, er sálfræði -
nemi í HÍ og dá leiðslutæknir.
Hann er nýfarinn að búa með
kærustunni sinni til tveggja ára,
Elínu Sigurðardóttur, nema í
stærðfræði og ensku við HÍ. Hún
er Grundfirðingur og hafa þau
þekkst síðan í leikskóla, en fjöl-
skyldan bjó í Grundarfirði til
1996. Atli er mjög virkur í
dáleiðslufélaginu og er einnig
mjög áhugasamur í víkingafélag-
inu Rimmugýgi í Hafnar firði.
Sindri Geir, 19 ára, er kokka -
nemi á Slippbarnum, var að klára
2. árið og stefnir á að útskrifast
sem sveinn vorið 2014. Hann
hefur aðstoðað í kokkakeppnum
m.a. aðstoðaði hann í fyrra Ólaf
Ágústsson sem varð í 2. sæti í
keppninni Matreiðslumaður árs -
ins 2011. Í ár fóru hann og Bjarni
Siguróli Jakobsson kokkur til
Danmerkur á Norðurlandamót og
urðu þeir í öðru sæti sem er mjög
góður árangur. Það má taka fram
að eftirrétturinn, sem Sindri gerði
einn, varð stigahæsti rétturinn á
mótinu. Síðan aðstoðaði hann
Bjarna í keppninni Matreiðslu -
maður ársins 2012 og urðu þeir í
fyrsta sæti. Kærastan hans til eins
og hálfs árs heitir Rebekka Rut
Þórisdóttir en hún er nemi í hár-
greiðslu.
Stefanía Ósk, 11 ára, er í Hraun-
vallaskóla og er ári á undan, er
því í 7. bekk í stað 6. og er að
læra á gítar og spilar körfubolta
með Haukum.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
Upphaflega var hug -
myndin að fram-
leiða vörurnar á
Íslandi en því miður
var það of dýrt. „Eftir
að hafa kynnt mér
framleiðsluaðferð -
ina sem boðið er
upp á í Kína ákvað
ég að báðar vörur n -
ar yrðu framleiddar
þar. Búið var til mót
fyrir 4Phone og er
varan steypt í því. Er
ég mjög ánægð með
útkomuna og tel mig
vera að bjóða gæða -
vöru á góðu verði.
4Bling er líka fram-
leidd í Kína, enda
plexí of dýrt á Íslandi
og varan hefði aldrei
selst á því verði sem
ég hefði þurft að
selja hana á.
”