Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Blaðsíða 10
°
°10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012
Ólöf Jóna aðstoðarsparisjóðsstjóri og Ólafur sparisjóðsstjóri :: Samtals um 40 ára starfsreynsla:
Við lifum og störfum í þessu
samfélagi og það skiptir okkur
máli hvernig það þróast
:: Áhersla á að veita persónulega þjónustu :: Um allt Suðurland :: Reynt að byggja upp
einingu sem stjórnað væri frá Vestmannaeyjum
Ólöf Jóna Þórarinsdóttir og Ólaf -
ur Elísson eru við stjórnvölinn hjá
Sparisjóði Vestmannaeyja, hún
sem aðstoðarsparisjóðsstjóri og
hann sem sparisjóðsstjóri. Bæði
eiga langan starfsferil að baki en
Ólöf þó öllu lengri því hún byrjaði
1984 en Ólafur árið 1999 þegar
hann flutti sig af efstu hæðinni í
húsi Sparisjóðsins við Bárustíg og
niður á miðhæðina.
Mjög góður vinnustaður
Ólöf minnist góðra starfsfélaga frá
upphafsárum sínum í Sparisjóði
Vestmannaeyja. Meðal þeirra voru
Benedikt Ragnarsson, þáverandi
sparisjóðsstjóri, Guðjón Hjörleifsson
sem seinna varð bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum en stundar nú fast -
eignaviðskipti af miklum móð,
Guðni Valtýs, Sigríður hans Hauks á
Reykjum sem flestir kannast við sem
Lillý, Stína sem alltaf er kennd við
Sparisjóðinn, Unnur Katrín, Ásdís
Sævalds, Guðrún Aðalsteinsdóttir,
Barbara Wdowiak og stuttu eftir að
Ólöf kom í Sparisjóðinn byrjaði Erna
systir hennar. Nú eru þær þrjár eftir,
Ólöf, Erna og Unnur Katrín af þeim
sem störfuðu þá.
„Það var svipaður fjöldi nú og þá
en í dag erum við tólf sem störfum
hér í Vestmannaeyjum,“ segir Ólöf.
Það verður ekki sagt að starfs -
manna veltan hafi verið mikil því
flestir eiga margra ára og jafnvel
áratuga starfsaldur að baki í Spari -
sjóðnum. „Sparisjóðurinn er mjög
góður vinnustaður og það er ómetan-
legt að hafa starfað við hlið góðra
samstarfsfélaga og viðskiptavina
þessi ár segir Ólöf. Við reynum
alltaf að veita persónulega þjónustu
og ég held að það hafi tekist ágætlega
hjá okkur.“
Færri ferðir i sparisjóðinn
Þegar rætt er um breytingar á þessum
árum þá nefna bæði tölvuvæðinguna
sem hefur breytt svo miklu í daglegu
lífi fólks og starfsemi fyrirtækja og
stofnana. „Þegar ég byrjaði voru allar
færslur handskrifaðar inn í allar
sparisjóðsbækur,“ segir Ólöf og
Ólafur skýtur inn í að allt framundir
1980 hafi allt bókhald verið hand-
fært.
Fyrsta tölvan í Sparisjóðnum var
stór og mikil en nú eru tölvurnar orð-
nar fyrirferðaminni og hraðbankar og
heimabankar eru orðnir hluti af
þjónustu lánastofnana. „Ég hef alltaf
sagt að með tilkomu allrar þessarar
tækni fækkar ferðunum í Spari -
sjóðinn og biðraðir um mánaðamót
eru löngu horfnar. Nú gengur fólk frá
sínum málum í gegnum heimabanka
og það sama gerðist þegar við fórum
að bjóða upp á greiðsluþjónustu, hún
fækkaði ferðum til okkar,“ segir
Ólafur.
Meiri tími hjá þeim fer í að sinna
tölvusamskiptum og segir Ólafur að
hálfur dagurinn fari í að lesa og svara
tölvupósti sem þeim berst. Spari -
sjóðirnir hafa tekið þátt í uppbygg -
ingu á tækninýjungum eins og
heimabankakerfinu sem kosti
hundruð miljóna. „Í dag er heima-
bankinn eins og hvert annað heimil -
istæki sem nýtt er af fleirum en bara
viðskiptavinum banka og sparisjóða.
Markhópurinn einstak -
lingar og lítil og meðal stór
fyrirtæki
Þegar þau eru spurð um hlutverk
Sparisjóðsins í bæjarfélaginu segir
Ólafur að það sé að sinna viðskipta -
vinum á hverjum stað, heimamönn -
um og fyrirtækjum. „Markhópurinn
eru einstaklingar og lítil og meðal-
stór fyrirtæki. Á árunum í kringum
2000 og eftir kom Sparisjóðurinn
talsvert að uppbyggingu fyrirtækja í
sjávarútvegi og tók meðal annars þátt
í fjármögnun margra skipa sem keypt
voru til Vestmannaeyja á þessum
tíma.“ Enn í dag er Sparisjóðurinn
öflugur í fjármögnun atvinnuupp-
byggingar í Eyjum.
Bæði eru sammála um að sam-
félagslegt hlutverk sparisjóðanna
skipti máli. „Það er mjög ríkt,“ sagði
Ólafur. „Við lifum og störfum í þessu
samfélagi og það skiptir okkur máli
hvernig það þróast.“
Það hefur ekki verið auðvelt að starfa
í banka eftir bankahrunið 2008 og
segir Ólöf að sjálf hafi hún ekki
upplifað skrítnari tíma en síðustu
fjögur árin. Sparisjóðurinn starfar
víðar en í Vestmannaeyjum og á
starfssvæði okkar var mismunandi
hvað þenslan var mikil fyrir hrun.
Sjávarpláss fóru betur út úr falli
krónunnar og þess njótum við hér í
Eyjum,“ sagði Ólafur.
Það lenti á bankastarfsmönnum um
allt land að taka á móti fólkinu sem
lenti í erfiðleikunum og sumt sá ekki
fram úr vandræðum sem það var
komið í. „Sumum í hópi bankastarfs -
manna finnst viðhorf almennings
með öðrum hætti núna og það er rétt
að vandinn er mikill,“ sagði Ólöf og
Ólafur tók undir með henni.
„Þetta hefur bitnað á okkur þó í
bönkunum vinni fólk sem sumt er í
sömu vandamálum sjálft,“ sagði
Ólafur.
„Við höfum upplifað uppsveiflur og
samdrátt en núna hefur þetta staðið
svo lengi og sárindin svo mikil “
bætti Ólöf við.
Fórum ekki varhluta af
erfiðleikunum
„Það er alltaf erfitt að spá og sérstak-
lega um framtíðina,“ segir Ólafur
þegar hann er spurður að því hvernig
hann sjái fyrir sér næstu misseri og
ár í starfi Sparisjóðsins. „Sparisjóð -
ur inn fór ekki varhluta af þeim erf -
iðleikum sem efnahagslíf á Íslandi
lenti í 2008. Þá hrundu þrír turnar
yfir samfélagið og þar varð Spari -
sjóðurinn undir,“ segir Ólafur og á
þar við stóru bankana þrjá, Kaup -
þing, Glitni og Landsbanka. „Síðan
hefur þetta verið hrein og tær rústa -
björgun og vandi að sjá hvernig þetta
fer allt saman. En Sparisjóðurinn á
samleið með samfélaginu í Vest -
mannaeyjum og skiptir bæjarfélagið
máli eins og hann hefur gert í sjö
áratugi,“ segir Ólafur.
Í allt starfa 30 manns hjá Spari -
sjóðnum, þar af tólf í Vestmanna -
eyjum en starfsemin er orðin
fjölbreyttari en hún var. „Starfsemi
lánastofnana hefur breyst mikið á
undanförnum árum og er þjónustan
orðin miklu fjölbreyttari. Ný tækni
hefur gert þetta mögulegt og þannig
höfum við getað að miklu leyti
haldið jafnmörgum störfum hér í
Vestmannaeyjum. „Til dæmis gerum
við ráð fyrir um tveimur stöðugildum
í að svara í síma sem kallar á vana
bankastarfsmenn,“ sagði Ólafur.
Við höfum tekið inn tryggingaum-
boð fyrir VÍS og erum með póst -
þjónustu í útibúum okkar fyrir austan
en öll stjórnunarstörf vegna starf -
sem innar uppi á landi eru hér í
Eyjum.
Starfsemi Sparisjóðs Vestman-
naeyja nær frá Breiðdalsvík í austri
að Selfossi í vestri. Þetta byrjaði með
opnun Sparisjóðsins á Suðurlandi
árið 2000. „Með þessu vorum við að
reyna að byggja upp rekstrarhæfa en
litla einingu, sem stjórnað væri frá
Vestmannaeyjum og það hefur tekist
að mestu leyti vel. „Það skiptir
okkur Eyjamenn máli,“ sögðu þau
Ólöf og Ólafur að lokum.
STARFSFÓLK SPARISJÓÐS VESTMANNAEYJA 2012. Aftari röð frá vinstri: Hafsteinn Gunnarsson, Gísli Gunnar Geirsson, Ólafur Elísson, Harpa Gísladóttir
og Unnur Katrín Þórarinsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Egill Arngrímsson, Matthildur Halldórsdóttir, Björg Egilsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Erna Þórarinsdóttir,
Anna Kristín Hjálmarsdóttir og Ólöf Jóna Þórarinsdóttir.
Sparisjóður Vestmannaeyja 70 ára
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
Í allt starfa 30 manns hjá Sparisjóðnum, þar af tólf í Vestmannaeyjum en
starfsemin er orðin fjölbreyttari en hún var. „Starfsemi lánastofnana hefur
breyst mikið á undanförnum árum og er þjónustan orðin miklu fjölbreytt -
ari. Ný tækni hefur gert þetta mögulegt og þannig höfum við getað að
miklu leyti haldið jafnmörgum störfum hér í Vestmannaeyjum”