Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Blaðsíða 12
°
°12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012
Harpa Gísladóttir, þjónustustjóri
Sparisjóðsins, hóf störf í Spari -
sjóðnum í júlí 1997. Áður hafði
hún rekið verslun og unnið í Ís-
félaginu. Henni hefur líkað
starfið vel eins og starfsaldurinn
sýnir.
„Já, það eru fimmtán ár síðan ég
byrjaði. Þetta er alltof fljótt að
líða,“ segir Harpa sem er ánægð
með sinn Sparisjóð. „Starfið á vel
við mig og mér líkar þetta vel.“
Um fyrri störf nefnir hún Ísfélagið
og snyrtivöruverslunina Ninju sem
var til húsa að Strandvegi 47 þar
sem ritstjórn Eyjafrétta er í dag.
„Fyrst vorum við mamma með
búðina, þegar hún hætti var ég ein
en svo kom Þórunn systir og tók við
af mér og var með tískuvöru fyrir
konur og snyrtivörur fyrir konur og
karla.“
Sem þjónustustjóri hefur Harpa
yfirumsjón á neðri hæðinni þar sem
afgreiðslan er. „Þar tökum við á
móti almennum viðskiptavinum og
það er mitt hlutverk að sjá til þess
að það gangi almennilega fyrir sig.
Það er ekki þar með sagt að ég þurfi
að vera mjög ströng því allar eru
konurnar í afgreiðslunni búnar að
starfa hér lengi, þrælvanar og
flottar,“ segir Harpa og bendir á að
körlum hafi fjölgað með árunum.
„Óli var lengi eini karlinn en núna
eru þeir orðnir fjórir.“
Hver er helsti kosturinn við að
vinna í Sparisjóði Vestmannaeyja?
„Þetta er eins og mitt annað heim-
ili. Hér er góður andi, gott fólk og
samstaðan mikil. Við erum í mikl -
um samskiptum við viðskiptavini
og það finnst mér gott.“
Gísli Gunnar Geirsson, forstöðu-
maður fyrirtækja- og verðbréfasviðs:
Að eiga þátt í
að sjá drauma
fólks verða að
veruleika
:: Er það sem gefur starfinu gildi
Kristín Guðmundsdóttir tók við
stjórnarformennsku í Sparisjóði
Vestmannaeyja árið 2011. Þó að
Kristín sé fulltrúi Bankasýslu rík-
isins var það fyrir áeggjan frá
Eyjum sem hún ákvað að slá til.
Frá bankahruni hefur mikill tími
farið í fjárhagslega endurskipu-
lagningu. Kristín segir mikla vinnu
að baki en nú sé kominn tími til að
horfa fram á veginn. Enn eru þó
ýmsar hindranir í vegi fyrir því að
hægt sé að þróa starfsemina áfram og
vegur þar þyngst kyrrstaða í efna-
hagsmálum þar sem öllum er gert
erfitt um vik.
Kristín er viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands, var í 20 ár hjá Ís-
landsbanka og Iðnaðarbankanum. Þá
var hún fjármálastjóri Granda hf. í
átta ár. Hún var fjármálastjóri hjá
Símanum og Skiptum frá 2003.
Seinna varð hún forstjóri Skipta en
er sjálfstætt starfandi í dag. Situr í
stjórn N1 og er að vinna fyrir Saga
Medica auk þess að vera í forsvari
stjórnar Sparisjóðs Vestmannaeyja.
„Ástæðan er að Binni í Vinnslu -
stöðinni, sem sat í stjórn Símans og
Skipta þegar ég var þar, talaði við
mig en ég kem inn í stjórnina sem
fulltrúi Bankasýslu ríkisins,“ sagði
Kristín þegar hún var spurð um
aðkomu sína að Sparisjóðnum.
Góðar minningar
af golfvellinum
Kristín þekkti til í Vestmannaeyjum,
m.a. annars kynntist hún Sigurði
Einarssyni, fyrrum forstjóra Ís-
félagsins á meðan hún vann hjá
Granda. Þá á hún góðar minningar af
golfvellinum.
„Ég byrjaði í stjórninni 31. mars
2011 og tók við formennsku af
Helga Bragasyni. Þá voru komnar
strangari reglur um hæfi fólks í
stjórnum fjármálafyrirtækja sem
núna má aðeins vinna fyrir eitt
fyrirtæki í þessum geira.“
Í stjórninni eru, auk Kristínar, Rut
Haraldsdóttir, varaformaður, Hörður
Óskarsson, Stefán S. Guðjónsson og
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Varamenn
eru Elís Jónsson, Jóna Sigríður Guð-
mundsdóttir, Jónína B. Bjarnadóttir,
Trausti Harðarson og Unnar Steinn
Bjarndal Björnsson
„Í aðalstjórn erum við þrjú frá
Reykjavík, ég, Stefán og Þorbjörg
Inga. Þetta er góð stjórn og gott að
hafa lögfræðing eins og Þorbjörgu
Ingu í hópnum. Sérstaklega þegar við
erum t.d. að ræða dóma sem fallið
hafa vegna gjaldeyrislána. Stefán er
forstjóri fjölskyldufyrirtækisins John
Lindsay, sem er gamalgróið innflutn -
ingsfyrirtæki og reynsla hans hefur
verið mjög gagnleg. Þá hafa Hörður
og Rut staðið sig mjög vel og ekki
má gleyma Ólafi, sparisjóðsstjóra
sem er mikill reynslubolti. Það er
líka styrkur fyrir Sparisjóðinn að
hafa á að skipa tveimur löggiltum
endurskoðendum,“ segir Kristín og
vitnar til þess að Ólafur sparisjóðs -
stjóri og Hafsteinn Gunnarsson, sem
er forstöðumaður bókhalds og innra
eftirlits, eru löggiltir endurskoð -
endur.
Þegar fjárhagslegri endurskoðun
sparisjóðanna lauk var ákveðið af
Fjármálaeftirlitinu, að eiginfjárhlut-
fall þeirra yrði að vera 16 prósent.
Kristín segir að það sé í sjálfu sér of
hátt en Sparisjóðurinn hafi verið í
þeirri stöðu að lítið mátti út af bera.
„Við vorum rétt yfir strikinu í upp -
hafi og áttum að halda okkur yfir 16
prósentunum. Við höfum orðið að
afskrifa lán í kjölfar dóma sem fallið
hafa vegna gengistryggðra lána og
núna erum við undir markinu. Þar
með erum við undir eftirliti og sjóð -
ur inn starfar núna á tímabundinni
undanþágu. Á sama tíma erum við
að sækja á Seðlabankann um að fá
leiðréttingu gengisbundinna lána
Sparisjóðsins hjá bankanum. Á
meðan við erum að takast á við
vandamál fortíðar er erfitt að horfa til
framtíðar og vera í sókn sem er svo
mikilvægt,“ segir Kristín.
Sparisjóðirnir eiga
fullan rétt á sér
Hún segist tilbúin að vinna í
framtíðinni fyrir Sparisjóðinn enda
eigi sparisjóðirnir fullan rétt á sér,
ekki síst fyrir landsbyggðina.
Reyndar hafi róðurinn þyngst eftir að
sjóðunum fækkaði og opinberar
álögur á fjármálastofnanir hækkuðu.
Því hafi m.a. verið mætt með fækkun
starfsfólks.
„Auknar álögur hafa gert rekstur inn
miklu erfiðari en við verðum að veita
sömu þjónustu og stóru bankarnir ef
við ætlum að standast samkeppnina.
Það hefur hjálpað okkur að við erum
í góðu samstarfi við MP-banka sem
vill koma meira inn í samstarf með
okkur. Við eigum tækifæri því
Lands bankinn hefur fækkað útibúum
á landsbyggðinni og það er ekki að
sjá að aðrir stórir viðskiptabankar
hafi áhuga á að fylla í skörðin.“
Kristín kallar eftir aðgerðum í efna-
hagsmálum og segir lítið gerast á
meðan efnahagskerfið fari ekki af
stað. „Staðan í sjávarútvegi, þar sem
ríkisstjórnin ræðst á kvótakerfið,
bitnar á stöðum eins og Hornafirði
og Vestmannaeyjum. Á meðan allt er
í gíslingu er lítið hægt að gera,“ segir
Kristín.
Samgöngur mikilvægar
Hún segir að stjórnarsetan hafi opnað
augu sín fyrir því hvað fólk á við að
stríða á landsbyggðinni og það ekki
síst í samgöngum. „Það kom mér á
óvart hvað samgöngur skipta Vest-
mannaeyinga miklu máli en ég skil
það í dag. Þegar þið vaknið byrjið
þið að tékka á veðrinu sem er eitt -
hvað sem við gerum ekki endilega í
Reykjavík.“
En Kristín er ánægð með sam-
skiptin við Eyjamenn og á héðan
góðar minningar frá stórum mótum
í golfi. „Áður en ég byrjaði hjá
Sparisjóðnum hafði ég komið til
Eyja til að spila golf en völlurinn
ykkar er einn af tveimur eða þremur
fallegustu golfvöllum á landinu og í
heiminum. Ég á skemmtilegar minn -
ingar frá Íslandsmótinu 1996 og á
golfmótum eldri kylfinga. Þetta
verða alltaf golfhátíðir þar sem allir
eru saman, spila golf á daginn og á
kvöldin er það góður matur og
frábær félagsskapur. Svona stemmn-
ing verður aldrei í mótum í Reykja -
vík eða í nágrenni, þar sem flestir
fara heim þegar búið er að spila,“
sagði Kristín að endingu.
Kristín með sonum sínum tveimur, barnabarni sínu, Ísaki og syni sínum, Jasoni.
Harpa Gísladóttir, þjónustustjóri
Sparisjóðsins:
Úr fiski og verslunar-
rekstri í Sparisjóðinn
Gísli Gunnar Geirsson, forstöðu-
maður fyrirtækja- og verðbréfa -
sviðs, er meðal yngri starfs -
manna Sparisjóðsins, bæði í
árum og starfsaldri. Hann segir
að starf hans nái yfir miklu fjöl-
breyttara svið en titillinn segi til
um.
„Hann segir kannski minnst um
það sem ég er að gera,“ segir Gísli
við blaðamann þar sem þeir spjalla
saman á skrifstofu Gísla á annarri
hæð Sparisjóðsins. „Það er rétt að
ég sinni fyrirtækjum og verðbréfa -
viðskiptum en ég kem líka að út -
lánum til einstaklinga og greiðslu -
mati, sem er mest fyrir einstaklinga
í húsnæðiskaupum,“ segir Gísli sem
er viðskiptafræðingur að mennt en
hann fór ekki alveg hefðbundna leið
í námi sínu.
„Ég tók stúdentspróf árið 1966 en
það var ekki fyrr en árið 2002 að ég
byrjaði í viðskiptafræði í fjarnámi
við Háskólann. Ég kláraði það árið
2006,“ segir Gísli sem á þessum
tíma var kominn með fjölskyldu.
„Þetta var mjög strembið sem sést á
því að við byrjuðum átján en það
voru ekki nema fjórir sem útskrif -
uðust. Sjálfur þurfti ég að hafa fyrir
þessu enda í fullri vinnu allan tím -
ann. Menntunin hefur reynst mér
vel í þessu starfi og sennilega væri
ég ekki í þessum stól ef ég hefði
ekki drifið mig í viðskiptafræðina.“
Fljótlega eftir að hann útskrifaðist
hóf hann störf í Sparisjóðnum og
hann er ánægður. „Mér finnst þetta
góður vinnustaður og hef verið
ánægður hérna. Maður er svolítið
með puttana á því sem er að gerast í
bæjarfélaginu, sérstaklega á
fasteignamarkaðnum. Við verðum
fljótt vör við það þegar kreppir að
og líka þegar ástandið verður
betra.“
Gísli segir að það að vinna í minni
stofnun hafi marga kosti. „Þú ert
ekki bara í einhverju einu heldur
öllu og verður að fara í það sem
fellur til hverju sinni. Við erum í
miklum samskiptum við fólk og
starfið snýst um það að það er alltaf
einhver á hinum endanum. Við
þurfum stundum að taka á erfiðum
málum en sem betur fer eru þau
miklu fleiri málin sem gaman er að
koma að. Að eiga þátt í að sjá
drauma fólks verða að veruleika er
það sem gefur starfinu gildi,“ sagði
Gísli að endingu.
”Mér finnst þettagóður vinnustaðurog hef verið ánægð -
ur hérna. Maður er
svolítið með puttana
á því sem er að
gerast í bæjarfélag-
inu, sérstaklega á
fasteignamark -
aðnum. Við verðum
fljótt vör við það
þegar kreppir að og
líka þegar ástandið
verður betra.
”Þetta er eins og mittannað heimili. Hérer góður andi, gott
fólk og samstaðan
mikil.
Sparisjóðirnir eiga
fullan rétt á sér
:: ekki síst fyrir landsbyggðina :: segir Kristín Guð-
mundsdóttir, stjórnarformaður Sparisjóðsins
Kristín Guðmunds-
dóttir er gift Ólafi
Jónssyni, stjórnanda
hjá Reykjavíkurborg
og fyrrum landsliðs-
fyrirliða í handbolta.
Þau eiga saman tvö
börn, Jason Kr. Ól -
afs son og Bjarneyju
Sonju Breidert Ólafs-
dóttur og eru barna -
börnin orðin sex.
>>