Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Síða 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012 ° ° Merkilegt má það heita að hugtak sem öll þjóðin þekkir, brandajól og þó sérstaklega með lýsingarorðin stóru fyrir framan, skuli vera svo myrkri hulið að ekki er lengur augljóst hvað átt er við þegar um er rætt. Hér mun lesendum, vonandi til glöggvunar og jafnvel skemmtunar, reynt að svara spurningunni: Teljast hin komandi jól stóru brandajól? Öllum heimildum ber saman um að elsta dæmi um hugtakið sé komið frá Árna Magnússyni handritasafn - ara. Í heimild frá því um 1700 segir hann: „Brandajól kalla gamlir menn á Íslandi þá jóladag ber á mánudag ... [a]ðrir segja brandajól heita ei nema þegar jóladagurinn var fyrra árið á laugardegi og stökkur [stekkur] vegna hlaupárs á mánudegi.“ Samkvæmt þessari skilgreiningu eru ekki brandajól þetta árið þar sem aðfangadag ber upp á ofan- greinda vikudaga (laugardag í fyrra, mánudag í ár) en ekki jóladag. Þegar betur er aðgætt kemur í ljós að málið er ekki svona einfalt. Þannig var í katólskum sið talað um að félli jóladagur á miðvikudag þá væru komin stóru brandajól. Í Sögu daganna eru enn aðrir dagar leiddir fram er Árni Björnsson þjóðhátta - fræðingur segir: „Á miðri 20. öld virðast menn helst hafa talið að stóru brandajól væru þegar að - fangadag bæri á fimmtudag.Nú á dögum ... virðist eðlilegast að tala um stóru brandajól þegar aðfanga - dagur fellur á mánudag eða miðvikudag ... .“ Aðfangadagur má samkvæmt þessu falla á sunnudag, mánudag, þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag eða föstudag til þess að um sé að ræða stóru brandajól! Aðeins þegar aðfangadag ber upp á laugardag virðast ekki vera stóru brandajól samkvæmt neinum heimildum. Hvernig stendur á þessu? Málið er raunar sáraeinfalt. Stóru brandajól eru þegar helgidagar jólanna leggj - ast svo að lögbundnum frídögum (eins og þeir eru á hverjum tíma) að hámarksfrí verður úr fyrir vinnandi almenning. Því er ekki um fyrir- fram skilgreinanlega daga að ræða, heldur markast hugtakið af vinnu - hefð hverju sinni. Sú er hin einfalda ástæða þess að katólskir sögðu að aðfangadagur verði að falla á miðvikudag (þá er fjórði dagur jóla helgur) til þess að um stóru branda- jól væri að ræða en eftir siðaskipti varð aðfangadag að bera upp á fimmtudag (þá eru aðeins þrír dagar jóla helgir og laugardagur almennur vinnudagur). Sú er einnig ástæða þess að við fögnum þetta árið stóru branda- jólum þar sem aðfangadag ber upp á mánudag (þá eru laugardagur og aðfangadagur orðnir frídagar eins og almennt er) og samfellt frí því svo langt sem kostur er eða fimm dagar. Að lokum skal litið á sjálft hug- takið brandajól eða stóru brandajól. Hvað merkir það? Forliðurinn branda- þykir ekki ljós og hefur verið togast mjög á um skilning hans. Árni Magnússon handritasafnari gefur fyrstu og að minni hyggju einföldustu út- skýringuna. Um merkingu hug- taksins segir hann einfaldlega: „... aðrir halda það svo kallað af miklum ljósa brennslum.“ Ég hygg að þar muni vera komin einföld og eðlileg skýring. Jólin hafa alla tíð verið hátíð ljóssins. Þeim mun fleiri daga sem jólahátíðin stendur þess meiri eldivið þarf að bera að. Þannig hugsuðu menn í hina gömlu daga. Vonandi er að hátíð ljóss og friðar sem kallast stóru brandajól þetta árið sakir hins mikla óslitna hlés frá vinnu verði okkur öllum dagar birtu og hamingju. Gleðileg jól. Eru stóru brandajól í ár? KÁRI BJARNASON Brandajól kalla gamlir menn á Íslandi þá jóladag ber á mánudag ... [a]ðrir segja brandajól heita ei nema þegar jóladagurinn var fyrra árið á laugardegi og stökkur [stekkur] vegna hlaupárs á mánudegi.” Smáar Lítið dömuarmband fannst á Vallargötunni, síðastliðinn sunnudag. Eigandi armbandsins getur haft samband í s. 481-2055. --------------------------------------------- Til leigu 3ja herb. íbúð. Fullbúin. Laus strax. Uppl. í s. 899-9066. AA fundir eru haldnir sem hér segir að Heimagötu 24: Miðvikudagur: kl.20.30 Fimmtudagur: kl.20.30 Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur Sunnudagur: kl.11.00 Athugið, allir fundir reyklausir Móttaka nýliða hálfri klst. fyrir hvern auglýstan fundartíma. Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn fundartíma og eru 2 klst. í senn. Sími 4811140 Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu? Al-Anon fyrir ættingja og vini alkóhólista Fundir á þriðjudögum kl. 20.30 Byrjendafundir kl. 20.00 að Heimagötu 24 EYJAFRÉTTIR.is Sendum öllum bæjarbúum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Pacta Lögmenn óska öllum Vestmannaeyingum nær og fjær gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þökkum fyrir árið sem er að líða. Sendum öllum bæjarbúum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Gleðileg jól gott og farsælt nýtt ár, þökkum liðið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.