Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Blaðsíða 21

Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Blaðsíða 21
° ° Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012 21 Suðurland í öllu veldi kjördæm - isins er eins og tveggja stefna skip, Lónsöræfi í austri, Sandgerði í vestri. Hvarvetna eru tækifæri í hverju fótmáli, veiðum og vinnslu, virkjunum og atvinnusköpun, ræktun lands og búskap, ferða - þjónustu þar sem flestar náttúrperl - ur Íslands eru á okkar svæði, menningin og margvísleg jákvæð uppbyggileg og bráðskemmtileg tilþrif í félagsstarfi fólksins okkar og að auki sérstaða og sérkenni byggða og fólks vítt og breitt. Suð ur landsundirlendið, Suðurnesin og Eyjar eru stórkostleg blanda af gríðarlega öflugum drifkrafti, reynslu og verkviti. Hvarvetna er verk að vinna til heilla og hamingju fólksins okkar. Við þurfum að hlúa stanslaust að því sem býður vinn - andi hönd, bjarta hugsun, áræði og þor. Öfund er illur fylginautur, hrindum öfundinni frá, gleðjumst yfir góðu gengi, góðum vilja, góð - um árangri í starfi og leik. Á vett - vangi þjóðmálanna skiptir miklu máli að horfa til allra byggða Suð ur kjördæmis, standa vaktina og auka tilþrif og takt, því daglega starfið okkar á að vera óður til lífs - ins, ferskar hugmyndir með farsæld á gömlum grunni, en umfram allt með leikgleði. Reynslan og verk - vitið skiptir öllu máli, ekki orður og gráður. Lífsreynsla venjulegs fólks er dýrmætasta orðan og gráðan í senn fyrir sjálfstætt Ísland. Lífið er vinna, vinna og meiri vinna og það eina sem við gerum af viti er að vinna með óendanlegri fjölbreytni. Hnýtum saman reynsluna, ferskar hugmyndir og framsækni. Þar liggja okkar möguleikar inn í fram tíðina bjarta og vonglaða. Sunn lenska sólin erum við sjálf með kostum og göllum en góðum vilja í stefni. Þökk fyrir vinarþel og við mót allt. Guð gefi ykkur gleðileg jól og gæfu - ríkt komandi ár, yndi og árangur. Sunnlenska sólin í hjarta mínu sindrar af lífsins gleði, því hún er ljósblik af lífi þínu og landsins daglega geði. Sunnlenska sólin er vorsins blær í sjálfri vitund þinni, hugsunin hreina skýr og tær í hugans orði og sinni. Sunnlenska sólin er aflsins elfur, atlot manna í starfi og leik, þegar brimar í hjarta og blóðið skelfur eða blíð eins og áin lygn og keik. Sunnlenska sólin er vonarhönd í stríði um daglegt brauð, brosið sem byggir tryggðabönd og brúar dýrasta auð. Frá fjöru til fjalls, sjávar og sveita býr andi fólksins okkar í stóru og smáu að fegurð leita og stefnu á allt sem lokkar. Með góðum hug og gjöfum blíðum gleðibrosi og hönd í hönd fer lindin tær í lífsins hlíðum, ljóðsins skip á nýrri strönd. Árni Johnsen Lífið er vinna, vinna og meiri vinna Svonefndar vísnagátur hafa lengi verið vinsælar og a.m.k. tvær bækur hafa komið út með slíkum gátum. Í morgunþætti Rásar 2 hefur í haust verið ein slík gáta í hverjum þætti og keppni milli hlustenda um það hver fyrstur finnur lausnina. Vísnagátur eru þannig uppbyggðar að sama orðið er falið í hverju vísu - orði (hverri línu) og hefur því orðið mismunandi merkingu. Hér er t.d. gáta úr nýútkominni bók Páls Jónassonar, sem ber heitið Vísna - gátur: Þessi bíll kom þýskum frá. Þetta heiti skordýr ber. Hún er mínu hjóli á. Hávær, málglöð konan er. Lausnin er: Bjalla. Okkar maður á Eyjafréttum, Sig- urgeir Jónsson, hefur fengist við að semja vísnagátur og féllst á að leyfa lesendum að spreyta sig á nokkrum slíkum. Við hæfi þótti að hafa þær 13 talsins, jafnmargar jólasveinun - um þó svo að gáturnar tengist þeim ekki á nokkurn hátt. 1. Berst að feigum banvænt skeyti, býr það til á skrokkinn far. Æstur er að ýmsu leyti ofursmáar agnirnar. 2. Einatt merkir ofsarok, einnig notað yfir spil. Þurrkar klútinn þar um bil, þannig skrokknum snýr hún til. 3. Notað yfir myndamót, margoft lögð á spilarann. Flöt og köntuð flekabót, fær og gabbað náungann. 4. Snæða af honum matinn má, músík einnig hlýða á, sendingu í sjónvarp ná, svífur hann um loftin blá. 5. Mörkin hálfa mælist hann, mjög á stýri situr hann, sveinar ungir sjúga hann, sopann ramma geymir hann. 6. Undir hann á uppboð fer, Eyja menntastofnun er. Gaura slær í gríð og erg, geysihátt og þverhnípt berg. 7. Vitra menn hún vísar á, verðmætt kortið hér má sjá. Eins og lítið ljóð hún er, leyfi ef þú í reisu fer. 8. Sundur fína fjöl þú tekur, fríðleiksstúlka engri lík. Frásögn góð sem gleði vekur, gistihús í Reykjavík. 9. Áður fyrr þar Árni bjó, oft þeir tengjast brimi og sjó. Í þeim rækta alls kyns má, einnig reisa veggi há. 10. Oft hann á sér hengi hefur, heftir lykt í pípulögn. Þjófavörn hann góða gefur, gjarnan skellt í hann að sögn. 11. Ýmsir vita ekki neitt, er og stræti ekki breitt, hér má setja holu á blað, hluti af þriggja krossa stað. 12. Bólguhnúður höfði á, hnoða hana á vetrum má. Í keppni henni kasta frá, kallast milljón sumum hjá. 13. Á hann er gott að halla sér, heitfeng yfir ísinn fer. Kollsteypan með kræfar sögur, konan lagviss, íðilfögur. Rétt er að taka fram að í síðustu gátunni er mismunandi ritháttur á orðinu, eftir merkingu, en fram- burðurinn hinn sami Svörin birtast í næsta tölublaði Eyjafrétta sem kemur ú þann 28. desember. Vísnagátur Sigurgeirs Jónssonar Árni Johnsen SUNNLENSKA SÓLIN Í SJÁLFI ÞÍNU Geirrún og fjölskylda aÝ Bröttugötu 9 senda öllum sem sýndu okkur hlýhug og stuÝning á erfiÝum tíma innilegar þakkir. Bestu jóla- og nýársóskir. Ég óska öllum ættingjum, vinum og kunningjum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum innilega sýnda samúð og væntumþykju á liðnu ári. Óla, Einar og Göggur. Óskum félagskonum og öÝrum bæjarbúum gleÝilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum frábæra samvinnu og stuÝning á árinu sem er aÝ líÝa. Kvenfélag Landakirkju

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.