Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Side 23
Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012 23
°
°
Bók Árna símritara, Eyjar og úteyjalíf :: Hafsjór af fróðleik og skemmtilegheitum frá fyrri
hluta síðustu aldar:
Eins og að uppgötva Blik að nýju
:: segir Kári Bjarnason, einn þeirra sem kom að útgáfu bókarinnar :: Ég mæli hiklaust
með þessari bók sem jólabókinni í ár fyrir alla þá sem unna menningu Vestmannaeyja
Á laugardaginn 8. desember var
haldið í húsakynnum Sagn-
heima, byggðasafns, útgáfuteiti
vegna útgáfu bókar með úrvali
verka Árna Árnasonar símritara.
Dagskráin var afar vönduð og
ljóst af mætingunni að Eyjabúar
kunnu vel að meta að minningu
Árna væri haldið svo veglega á
lofti. Blaðamanni lék forvitni á að
fá frekari upplýsingar og að
lokinni dagskrá og eftir að hafa
innbyrt Álseyjarbollur og tertur
var sest niður með fundarstjóra,
Kára Bjarnasyni.
Það sem kom blaðamanni mest á
óvart er hversu mikið efni er
varðveitt eftir Árna og fyrsta
spurningin var því hvað er til eftir
Árna og hvar er það varðveitt? Kári
tekst allur á loft. „Á skjalasafninu hjá
Jónu eru hvorki meira né minna en
12 Árnakassar með ótrúlega fjöl-
breyttu efni. Mér er svo minnisstætt
þegar ég skoðaði fyrst safnið hans,
sat inni á bókasafninu heila helgi og
las grein eftir grein sem opnaði mér
nýja heima inn í veröld Vestman-
naeyja. Að kynnast Árna var eins og
að uppgötva Blik að nýju, aðeins óút-
gefið og því miður að miklu leyti
óþekkt. Að vinna að útgáfunni með
þeim Erpi, Mara og Sigurgeir hafa
verið forréttindi fyrir mig og gefið
mér tækifæri til að gera það sem ég
vil helst gera, að opna Vestman-
naeyingum sýn til eigin menn -
ingararfs.“
Margir komu að verki
„Hvernig var vinnunni háttað hjá
ykkur“, spyr blaðamaður. „Við byrj -
uðum á því að fá Halla okkar til að
skanna allt efnið, þúsundir blaðsíðna
og síðan tóku þær Halla Þórdís
Magnúsardóttir og Hrefna Valdís
Guðmundsdóttir sig til og rituðu upp
greinarnar á tölvutækt form, auk þess
sem Hrefna vann nafnaskrána að
miklu leyti. Helga Hallbergsdóttir og
Jóna Björg Guðmundsdóttir voru
okkur til aðstoðar frá upphafi og þær
Hrefna og Helga unnu ásamt mér að
samræmingu skránna. Þá tókum við
Jóna saman ritaskrá Árna. Margir
aðrir komu að verkinu, Már Jónsson
var okkur öflugur liðsmaður og las
og marglas yfir, Víglundur Þorsteins-
son kom inn á lokasprettinum og rak
augun í margt sem bæta þurfti og
fleiri lögðu okkur lið með öflun
mynda, upplýsingum um fæðingar-
og dánardægur, upptalningu barna,
leiðréttingar á ýmsu o.s.frv. Á engan
held ég að sé hallað þótt ég nefni
sérstaklega tvo einstaklinga sem
skiptu sköpum fyrir verkefnið. Annar
er dótturdóttir Árna, Katrín Gunnars-
dóttir. Fyrir okkur í ritnefndinni var
það ómetanlegt að komast í kynni
við hana og fá að njóta þessa mikla
áhuga og velvilja fjölskyldunnar.
Hamhleypan Sigurgeir
Hinn einstaklingurinn er Sigurgeir
Jónsson, í ritnefndinni. Hann var
hamhleypan í hópnum, las og
leiðrétti kafla eftir kafla og sendi til
baka. Þegar bókin fór í umbrot í
prentsmiðjunni Eyrúnu fylgdi hann
bókinni svo bókstaflega eftir að hann
bjó nánast í prentsmiðjunni síðustu
vikurnar. Það var líka Sigurgeir sem
útbjó stuttu kaflanna sem eru svo
víða í bókinni og auðvelda lesendum
að átta sig á efninu, ég setti slíkar
millitilvísanir við einn kaflann en sá
fljótt hvað þetta er mikil yfirlega og
ákvað að láta karlinn ólmast í því í
staðinn.“
„Af hverju var svona mikið að
leiðrétta“, spyr blaðamaður. „Því er
auðvelt að svara“, segir Kári. „Stað -
reyndin er sú að Árni deyr frá verki
sínu og hann veikist einnig frá verki
sínu. Þess vegna var svo gríðarleg
vinna fólgin í yfirferð aftur og aftur,
þess vegna var svo mikið sem þurfti
að gaumgæfa og þaulkanna. Megnið
af verkinu hefði Árni gert sjálfur ef
honum hefði enst líf og heilsa. Svo
varð þó ekki og við tókum glöð á
okkur að ljúka hans góða verki. Við
vitum að verkið er ekki fullkomið, en
við erum sannfærðir um að það er að
minnsta kosti ekki langt frá því sem
Árna hefur dreymt um.
Fjölbreytt og dásamlega
víðáttumikið áhugasvið
Það sem á eftir að koma mörgum á
óvart er hversu fjölbreytt og dásam-
lega víðáttumikið áhugasvið Árna er.
Honum er ekkert óviðkomandi,
aðeins ef það hefur með menn -
ingararf Vestmannaeyja að gera. Hér
er skáldið að störfum með ljóðin sín
sem svo margir kunna, hér er
sagnameistarinn sem bregður upp
ógleymanlegum myndum af sér -
kennilegum kvistum á borð við
Tuma, er vígðist prestur sakir óbil -
andi þekkingar á fjöllum Vestman-
naeyja, hér er spennu sagnahöf -
undurinn með Einari ríka í ótrúlegum
ævintýrum, hér er ættfræðingurinn
sem tekur saman bjargveiðimannatal
úr úteyjunum, hér er hinn glöggi
fræðimaður sem safnar saman í
heildstæða sýn sem svo er miðlað af
lifandi áhuga. Svona gæti ég talið
endalaust, bókin er ótrúlega
skemmtilegt samansafn og allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Ég mæli því hiklaust með þessari
bók sem jólabókinni í ár fyrir alla þá
sem unna menningu Vestman-
naeyja“, sagði Kári Bjarnason og
bætti því við að ritnefndin hefði
unnið að verkinu í sjálfboðavinnu og
að allur ágóði færi í næstu verkefni
til heiðurs Árna.
Þau tóku við fyrstu eintökum bókarinnar: F.v. Hilmir Högnason, sem launaði gjöfina með því að afhenda Kára eintak af bók sinni.
Litlu lunda pysjunni, Hermann Einarsson, Sigurgeir Jónsson, Már Jónsson, Jóna Björg Guðmundsdóttir, Hrefna Valdís Guðmundsdóttir,
Erpur Snær Hansen, Kári Bjarnason, Kristinn R. Ólafsson, Marinó Sigursteinsson, Halla Þórdís Magn úsardóttir, Helga Hallbergsdóttir,
Haraldur Halldórsson og Katrín Gunnarsdóttir.
Samantekt
ÓMAR GARÐARSSON
Að kynnast Árna var eins og að uppgötva
Blik að nýju, aðeins óútgefið og því miður
að miklu leyti óþekkt. Að vinna að útgá-
funni með þeim Erpi, Mara og Sigurgeir
hafa verið forréttindi fyrir mig og gefið mér
tækifæri til að gera það sem ég vil helst
gera, að opna Vestmannaeyingum sýn til
eigin menningararfs.“
”
Sendum öllum bæjarbúum
bestu óskir um gleÝileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökkum viÝskiptin á árinu
Sendum öllum bæjarbúum bestu
óskir um gleÝileg jól og farsælt
komandi ár. Þökkum viÝskiptin
á árinu sem er aÝ líÝa.