Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Qupperneq 35
Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012 35
°
°
Handbolti
Þróttur engin
fyrirstaÝa
Karlalið ÍBV vann auðveldan sigur
á Þrótti um síðustu helgi. Þróttur
er í neðri hluta deildarinnar á
meðan ÍBV var öruggt um að vera
í öðru sæti fram á næsta ár. ÍBV
þurfti hins vegar stigin tvö til að
halda í við Stjörnuna, sem er á
toppi 1. deildar. Lokatölur í
leiknum gegn Þrótti urðu 41:34
eftir að staðan í hálfleik var 21:14.
Sérstaklega var skemmtilegt að sjá
ungu leikmennina í liði ÍBV spila
gegn Þrótti en þeir stóðu heldur
betur fyrir sínu og skoraði Dagur
Arnarsson m.a. fimm mörk í
leiknum. Næsti deildarleikur hjá
ÍBV verður hins vegar ekki fyrr en
á næsta ári en laugardaginn 2.
febrúar tekur ÍBV á móti Fylki.
Mörk ÍBV: Andri Heimir Friðriks-
son 9, Theodór Sigurbjörnsson 7,
Brynjar Karl Óskarsson 7, Dagur
Arnarsson 5, Magnús Stefánsson
5, Guðni Ingvarsson 3, Grétar Þór
Eyþórsson 3, Bergvin Haraldsson
1, Svavar Grétarsson 1.
Varin skot: Kolbeinn Aron Arnars-
son 9, Haukur Jónsson 1.
Framundan
Föstudagur 21. desember
Kl. 19:00 A- og B-lið ÍBV
Símabikar karla.
Laugardagur 22. desember
Kl. 14:00 HK1-ÍBV
4. flokkur kvenna, bikar.
Fimmtudagur 27. desember
Kl. 20:00 Fram-ÍBV
Deildarbikar kvenna.
Íþróttir
Símabikar karla: Stórleikur á föstudaginn
Snóker:
Kristján
fékk silfur
Þeir Kristján Egilsson, Jóhann
Ólafsson og Páll Pálmason tóku
þátt í bikarkeppni 67 ára og eldri í
snóker sem fór fram í Reykjavík.
Kristján gerði sér lítið fyrir og
komst alla leið í úrslitaleikinn. Þar
tapaði hann eftir jafna viðureign
sem end aði í oddaramma og á
síðustu kúlunni. Jóhann endaði
svo í 3.-4. sæti en Páll komst ekki
upp úr sínum riðli.
Abel ekki
meÝ ÍBV
Úganski markvörðurinn litríki,
Abel Dhaira, hefur spilað sinn
síðasta leik fyrir ÍBV en samn -
ingur hans við félagið rann út í
haust. Viðræður um framlengingu
gengu vel, eða allt þar til félag í
Tansaníu, að nafni Simba, fékk
áhuga á honum og bauð honum
samning sem Eyjamenn gátu ekki
keppt við. Þar með standa Eyja-
menn uppi með unga og óreynda
markverði og ekki ólíklegt að þeir
vilji reynslumeiri mann á milli
stanganna fyrir næsta sumar. Und -
anfarna daga hefur verið orðrómur
á internetinu að enski landsliðs-
markvörðurinn fyrrverandi, David
James myndi jafnvel spila með
ÍBV en hann og Hermann
Hreiðarsson léku saman með
Portsmouth við góðan orðstír.
Hermann vísaði því hins vegar á
bug og sagðist ekki eiga von á því
að James, sem er 42 ára, myndi
spila með ÍBV í sumar..
Íþróttir
Á föstudaginn klukkan 19:00
verður mikið um dýrðir í gamla
sal Íþróttamiðstöðvarinnar, þegar
B-lið ÍBV tekur á móti A-liðinu í
16-liða úrslitum Símabikars karla.
Leiksins er beðið með mikilli eftir -
væntingu, ekki síst meðal leik-
manna B-liðsins sem hafa líklega
aldrei undirbúið sig jafn vel og í ár,
æft alveg þrisvar sinnum.
Eins og áður hefur komið fram,
munu leikmenn B-liðsins gefa sinn
hluta af innkomu á leikinn til
Krabba varna Vestmannaeyja. Auk
þess átti að gefa út myndarlega leik-
skrá fyrir leikinn, sem reyndar var
ekki komin út þegar þetta er skrifað,
en ágóði hennar átti einnig að renna
til Krabbavarna. Og til að bæta um
enn betur, þá ætluðu leikmenn
beggja liða að borga sig inn á leikinn,
þ.e.a.s. borga fyrir að spila sem er
líklega einsdæmi í íslenskri íþrótta -
sögu.
Miðasala í forsölu hefur gengið afar
vel. Aðeins eru 500 miðar í boði en
á mánudaginn var búið að selja á
fjórða hundruð miða. Það fer því
hver að verða síðastur að tryggja sér
miða á leikinn.
Enginn ætti að verða vonsvikinn af
því að mæta enda verður boðið upp
á skemmtiatriði bæði fyrir leik og í
hálfleik. B-liðið opnar einnig betri
stofu sína bæði fyrir og eftir leik, þar
sem Ölgerðin kynnir jólaafurðir
sínar.
En aðalskemmtunin verður sjálfur
leikurinn enda mun kempur eins og
Sigmar Þröstur Óskarsson, Birkir
Ívar Guðmundsson, Arnar Pétursson,
Erlingur Richardsson, Hermann
Hreiðarsson, Guðfinnur Kristmanns-
son, Gunnar Berg Viktorsson, Svavar
Vignisson og Davíð Guðmundsson
leika listir sínar fyrir áhorfendur.
Erfiður leikur fyrir A-liðið
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari
A-landsliðs karla, bíður, eins og
landsmenn allir, spenntur eftir leikn -
um. „Þeir voru reyndar búnir að
biðja mig að taka þátt í leiknum með
B-liðinu en því miður kemst ég ekki
til Eyja. Ég hef hins vegar beðið um
myndbandsupptökur enda mun ég
fylgjast spenntur með B-liðinu í leit
að reynslumiklum mönnum,“ sagði
Aron í viðtali við Eyjafréttir.
„Það er alltaf mikil stemmning
þegar B-lið ÍBV mætir til leiks og
Daði Páls virðist vera prímusmótor í
því að halda þessu saman, búa til
góða stemmningu og halda um -
gjörðinni góðri fyrir liðið. Ég gæti
best trúað að A-lið ÍBV eigi erfiðan
leik fyrir höndum gegn reynslumiklu
liði B-liðsins.“
Ef ég fæ þig til að spá um lokatölur?
„Ég spái því að þessum leik ljúki
28:24 fyrir A-liðið, þar sem Arnar
Pétursson og Erlingur Richardsson
gera afdrifarík mistök á loka -
kaflanum,“ sagði Aron að lokum.
LandsliÝsþjálfarinn
spáir A-liÝinu áfram
- En fylgist vel meÝ B-liÝinu í leit aÝ reynslu fyrir landsliÝiÝ
Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV spilar annað árið í röð gegn liði
sem hann þjálfar en í fyrra lék hann með B-liðinu gegn HK.
GleÝileg jól!
Óska fjölskyldu minni og vinum
gleÝilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þakka ánægjulegar stundir.
Jóhann Jónasson
Grundarbrekku
Kæru vinir og venslafólkGuð gefi ykkur
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Með þökk fyrir það liðna.
Jólakveðja
Erla Vídó
Kæru vinir og venslafólkGuð gefi ykkur
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökk fyrir stuðningin á árinu.
Jólakveðja
Ásta Sigurðardóttir og fjölskylda.
Sendum Eyjamönnum öllum bestu óskir um
gleðileg jól og farsælt komandi árs.
Þökkum viðskiptin á liðnum árum.
Gröfuþjónusta Brinks ehf.
Óskum
Vestmanna -
eyingum öllum
gleÝilegra
jóla og
farsældar á
komandi ári
Þökkum
ómetanlegan
stuÝning á árinu.
EYJARÓS
- Krabbavörn Vestmannaeyjum
AÐALFUNDUR
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins VerÝandi
verÝur haldinn í Básum föstudaginn
28. desember 2012 kl. 20.00
Dagskrá
1. Venjuleg aÝalfundarstörf
2. Önnur mál og þar verÝur m.a. rætt um
réttindi fyrrverandi félagsmanna
gagnvart sjúkrasjóÝi
Eldri félagsmenn eru sérstaklega boÝnir velkomnir.
Stjórnin