Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Side 2
° ° 2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014 Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. ritstjóri: Júlíus Ingason - julius@eyjafrettir.is. blaðamenn: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is, Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og Gígja Óskarsdóttir, - gigja@eyjafrettir.is. ábyrgðarmenn: Júlíus Ingason og Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestmannaeyjum. símar: 481 1300 og 481 3310. netfang: frettir@eyjafrettir.is. veffang: www.eyjafrettir.is eyJafrÉttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppn­um,­Vöruval,­Herjólfi,­Flughafnar­versluninni,­ Krónunni, Ísjakanum, Kjarval og Skýlinu. eyJafrÉttir eru prentaðar í 2000 eintökum. eyJafrÉttir eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir Merki á Kviku menningarhús :: Gíslína Dögg og Emilía hlut- skarpastar: Miðstöð ólgandi sköpunarkrafta :: Stöðug uppspretta nýrra og frjórra hugmynda Gíslína Dögg Bjarkadóttir og Emilía Borgþórsdóttir urðu hlutskarpastar í vali á merki á Kviku menningarhús sem vígt verður á laugardaginn. Sam- keppnin var öllum opin og allnokkrar tillögur bárust. Var það niðurstaða stýrihóps að mæla með merki Gíslínu og Emilíu sem var samþykkt í bæjarráði. Kvika menningarhús í Vestmanna- eyjum undir tón- og sjónlistir verður í Félagsheimilinu við Heiðarveg sem gengur í endurnýjun lífdaga eftir breytingar. Merki Gíslínu og Emilíu mun prýða húsið og um það segja þær. „Miðja merkisins snýst umhverfis hina miklu kviku sem er í iðrum jarðar, vatn, eldur og hraun brýst upp og teygir sig til allra átta. Sérhvert menningarhús á að vera miðstöð ólgandi sköpunarkrafta og stöðug uppspretta nýrra og frjórra hugmynda, og vísar merkið í þann kraft sem býr í fólki. Tilvísun í „G“ lykilinn í tónfræðinni, sem opnar sérhvert lag, er einnig að finna í merkinu. Allt tengist þetta og fléttast saman í alltumlykjandi ólgu og krafti sem býr í menningunni. Þannig verða skilin á milli náttúr- unnar og krafta hennar óljós í merkinu, tónar og tal fallast í faðma rétt eins og náttúran öll sem umfaðmar allt, í hita eldsins, kulda hafsins og stöðugleika bergsins.“ Kvika menningarhús verður formlega opnað við frumsýningu rokksöngleiksins Don't stop believing á laugardaginn. Sindri færir sig í næsta hús :: Tekur við Landflutningum Sindri Ólafsson, sem gengt hefur stöðu framkvæmdastjóra Skipulyft- unnar síðustu sex ár, er að söðla um og tekur við sem rekstrarstjóri Landflutninga í Vestmannaeyjum. „Ég byrjaði í Skipalyftunni í júní 2008, korteri fyrir hrun,“ sagði Sindri þegar rætt var við hann í morgun. Tekur hann við af Sverri Unnarssyni sem verður rekstrar- stjóri Landflutninga á Suðurlandi á Selfossi. „Það er stefnt að því að ég taki við um mánaðamótin næstu. Ég hlakka til að taka við nýju starfi hjá Landflutningum. Það er fjölbreytt og skemmtilegt og mig langaði til að breyta til.“ Sindri er hagfræðingur að mennt. Ríkiskaup leita að nýju húsnæði fyrir ÁTVR: Fjórir vildu hýsa Vínbúðina :: Gengið til viðræðna við eigendur Volare Nýlega voru opnuð tilboð Ríkiskaupa á leigu á húsnæði fyrir ÁTVR sem nú er til húsa að Strandvegi 50. Fjögur tilboð bárust og er leigan allt frá 357 þúsund krónum á mánuði upp í eina milljón. Stærð húsnæðis er líka mismunandi. Tilboðið er um leigu á húsnæði fyrir Vínbúð ÁTVR í Vestmannaeyjum sem hefur í áratugi verið á neðstu hæðinni á Strandvegi 50 þar sem Þekkingarsetur Vestmannaeyja er á hæðunum fyrir ofan. Anna ehf. býður 326 fm. og 41,2 fm. sameign að Flötum 29 og er leiguverð 284.861 krónur á mánuði án án vsk. og 357.500 með vsk. Múrbúðin er í dag til húsa að Flötum 29. Afhendingartími er ekki tilgreindur. Steini og Olli ehf. bjóða allt að 400 fm. í nýbyggingu í miðbæ Vestmannaeyja og leiguverð er 2.200 til 2.500 krónur án vsk. eða allt að ein milljón. Afhendingartími er í október 2015. Drífandi ehf. Þröstur Johnsen býður 320 fm. til 400 fm. að Vestmannabraut 22 þar sem Pósturinn er til húsa. Leiguverð er mismunandi, 1190, 1390 og 600 krónur á fermetra án vsk. Afhend- ingartími er júní til júlí 2014 fram í september eða eftir nánari óskum. Loks er það Volare ehf. sem býður húsnæði að Vesturvegi 10, sem er í tveimur hlutum ásamt aukarými, stærð 200 fm. plús 159,4 fm. Leiguverð er 550.000 krónur á mánuði án vsk. Afhendingartími er 10. maí eða eftir samkomulagi. Eftir útboðið ákvað Ríkiskaup að ganga til viðræðna við eigendur Volare og standa þær viðræður yfir. Framkvæmdir við golfvöll Vestmannaeyja á 15. braut: Nauðsynlegt að laga flötina :: segir Elsa Valgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Golfklúbbsins Lögregla: Eitt um- ferðar- óhapp og þrem- ur ólög- lega lagt Síðasta vika var með þeim rólegri hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og engin alvarleg mál komu upp. Helgin fór fram með ágætum og lítið um útköll á öldurhús bæjarins, eins og fram kemur í dagbókar- færslu lögreglunnar. Eitt umferð- aróhapp var þó tilkynnt til lögreglu en um var að ræða tjón á hliðar- spegli bifreiðar eftir að ekið var utan í hana. Þá liggja fyrir þrjár kærur vegna þess að bílum var lagt ólöglega. Lögreglan hefur fengið ný símanúmer. Síminn í afgreiðslu er 444-2090, hjá varðstjórum 444-2091, hjá lögreglufulltrúa 444-2092 og hjá yfirlögregluþjóni 444-2093. Talsverðar framkvæmdir hafa staðið yfir á flötinni á 15. braut golfvallarins í Eyjum. Verið er að taka flötina upp, skipta um undirlag og breyta henni. Þessu fylgir nokkurt jarðarask og varð umræða um framkvæmdina á facebook þar sem sitt sýndist hverjum um framkvæmdina. „Við erum að byggja upp nýja flöt á 15. brautinni. Það er mikil saltupphleðsla í undirlaginu og yfirborðið er ónýtt,“ sagði Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Vestmannaeyja. „Við skiptum um undirlag og setjum nýtt sem verður þannig að auðvelt verður að skola af flötinni eftir mikinn sjógang. Áætlað er að sá í flötina í maí og vonandi verður hún tilbúin í haust. En á meðan verður bráðabirgðaflöt neðan við núverandi flöt.“ Elsa sagðist hafa frétt af umræðum um framkvæmdina. „Það er einfaldlega nauðsynlegt að útbúa bráðabirgðaveg að flötinni til að koma efni og tækjum að henni. Umhverfið verður lagað um leið og hægt er. Við erum núna að bíða eftir sandi. Flatirnar eru verðmæt- asti hlutur golfvallarins og við verðum einfaldlega að hafa þær í lagi. Flötin á 15. braut hefur ekki verið það lengi og því förum við í þessa framkvæmd.“ Vegna framkvæmdanna verður ekkert stigamót í golfi í Eyjum þetta árið eins og verið hefur undanfarin ár. Allt bendir til þess að Vínbúðin verði við Vesturveg í framtíðinni, í húsnæði Volare. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is JúlÍuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.