Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Blaðsíða 16
°
°
Háaloftið í Höllinni opnaði um helgina:
Kærkomin viðbót við
skemmtistaðamenninguna
:: Troðfullt á tónleikum Kaleo á laugardag :: Magnús og Jóhann miðvikudaginn 16. apríl
Skemmtistaðurinn Háaloftið var
opnaður um síðustu helgi. Ekki
verður annað sagt en að
staðurinn fari vel af stað, enda
var fullt hús, bæði föstudag og
laugardag. Eigendur Háaloftsins
eru hjónin Bjarni Ólafur Guð-
mundsson og Guðrún Mary
Ólafsdóttir og þau Birgir Nielsen
og Kolbrún Anna Rúnarsdóttir.
Háaloftið er staðsett á efri hæðinni í
Höllinni en þegar inn er komið er
fátt sem minnir á að þú sért í
Höllinni. Búið er að loka efri
hæðina af og endurhanna staðinn,
klæða veggina og gera hann allan
mjög hlýlegan. Um helgina var
hægt að sjá hversu gott notagildi
staðurinn hefur en þar geta verið
um 160 tónleikagestir. Á föstudeg-
inum var pöbbastemmning þar sem
viðstaddir gripu í hljóðfæri og
skemmtu sér og öðrum. Á
laugardeginum voru hins vegar
tónleikar með einni vinsælustu
hljómsveit landsins í dag, Kaleo og
var fullt út úr dyrum. Samt sem
áður var ekki að sjá annað en að
tónleikagestir hafi skemmt sér vel,
enda mun skemmtilegri stemmning
í fullum sal, en í hálftómum eins og
hefði verið ef tónleikarnir hefðu
verið á neðri hæðinni. Þeir sem
mættu snemma, gátu fengið sér
góðan mat fyrir tónleikana og
fjölmargir sem nýttu sér það.
Þriðja útgáfan var svo á sunnudeg-
inum þegar boltinn var í beinni á
risaskjá Háaloftsins.
Háaloftið er kærkomin viðbót við
skemmtistaðamenninguna í Eyjum
en miðvikudaginn 16. apríl
næstkomandi verður boðið upp á
tónleika með þeim Magnúsi og
Jóhanni. Byrjunin lofar því góðu
hjá eigendum Háaloftsins.
Eigendur Háaloftsins ásamt hljómsveitinni Kaleo. Frá vinstri: Birgir, Kolbrún Anna, Jökull Júlíusson,
söngvari, Davíð Antonsson, trommari, Daníel Ægir Kristjánsson, bassaleikari, Rubin Pollock, gítarleikari,
Guðrún Marý og Bjarni Ólafur.
Magnús Steindórsson og Bergey Edda Eiríksdóttir komu á tónleikana.
Stefán Sigurjónsson færði eigendum þessi hljóðfæri að gjöf til að
skreyta staðinn. Með honum er Birgir sem tók við gjöfunum.
Sjóðandi heitir dyraverðir. Þeir
Sindri Steinarsson og Valur
Smári Heimisson sjá til þess að
allir hagi sér vel á Háaloftinu.
Þeir Grímur Þór Gíslason, Jón Pétursson og Jarl Sigurgeirsson gripu í
hljóðfærin og skemmtu á föstudagskvöldið. Troðfullt var á tónleikum Kaleo á laugardagskvöldið í Háaloftinu.
Bæjarstjórinn á barnum. Frá vinstri: Bertha Johansen, Kristín
Ásmundsdóttir, Jón Árni Ólafsson og Elliði Vignisson, bæjarstjóri.
Jökull söngvari í Kaleo virtist
skemmta sér vel á tónleikunum. Tónleikagestir voru á öllum aldri.
16 Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014
JúlÍuS G. InGaSon
julius@eyjafrettir.is