Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Side 10
°
°
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014
Sólarhringsvakt á ný alla daga vikunnar hjá lögreglunni:
Þýðir aukið öryggi fyrir
íbúa Vestmannaeyja
:: Kona á ný í lögregluliðið :: Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn, ánægður með
nýju lögreglumennina þrjá sem hófu störf á föstudag
Þrír nýir lögreglumenn tóku til
starfa hjá Lögreglunni í Vest-
mannaeyjum á föstudag. Þetta
eru þau Huginn Egilsson,
Elínborg Ingvarsdóttir og Friðjón
Ingi Sigurjónsson. Öll hafa þau
einhverja tengingu við Vest-
mannaeyjar, enginn þó meiri en
Huginn sem er borinn og
barnfæddur í Eyjum, sonur Egils
Egilssonar og Ernu Jóhannes-
dóttur. Þá lék Elínborg með
knattspyrnuliði ÍBV fyrir ekki svo
löngu og Friðjón vann hér í
Vinnslustöðinni eitt sumar.
Jóhannes Ólafsson, yfirlögreglu-
þjónn segir að þremenningarnir séu
hrein viðbót við lögregluliðið enda
hafi verið veitt auknu fjármagni til
lögregluembætta, m.a. í Eyjum,
með það í huga að fjölga lögreglu-
mönnum. „Þetta þýðir það að nú
verður vakt allan sólarhringinn alla
daga ársins. Það verða tveir
lögreglumenn á vakt alla daga, auk
þess sem við Tryggvi erum hér á
virkum dögum. Þá bætum við við
þriðja manninum yfir helgarnar ef
eitthvað er um að vera í bænum. Þá
verða allir þrír á ferðinni samkvæmt
nýjum verklagsreglum því hægt er
að hafa lögreglustöðina lokaða en
lögreglumenn fá öll boð í gegnum
síma. Þessi viðbót við lögregluliðið
breytir miklu fyrir okkur bæjarbúa,
mun meira öryggi enda hægt að
hafa þrjá lögreglumenn á vettvangi,
auk þess á þetta sveitarfélag að vera
með lögregluvakt allan sólar-hring-
inn. Núna erum við með tíu
fastráðna lögreglumenn og auk þess
einn í afleysingum, sem er nánast
fullt starf. En þegar mest var, voru
hér 13 lögreglumenn í það heila,
þannig að það hafa verið fleiri
lögreglumenn en engu að síður er
algjört lykilatriði að hér sé
sólarhringsvakt. Dæmin sanna það
að það hefur jafnvel bjargað
mannslífum.“
Gott að yngja liðið aðeins
upp
Hvernig gekk að manna þessa
stöður?
Það gekk mjög vel. Þau þrjú sóttu
um en við máttum eingöngu ráða
yfir vetrartímann þau sem eru búin
með Lögregluskólann. Það má yfir
sumartímann en það stefnir allt í að
í sumar verði eingöngu lögreglu-
menn sem hafa lokið námi og því
fullmenntaðir. Þau Elínborg og
Friðjón eru bæði nýútskrifuð og
gaman að þau séu tilbúin að koma
hingað til Eyja. Það hefur oft
vantað að ungir lögreglumenn vilji
koma út á land, hafa sótt mikið í að
vera á höfuðborgarsvæðinu. Elín-
borg hefur auðvitað búið hér áður,
lék með ÍBV í fótboltanum og
Friðjón var hér að vinna í Vinnslu-
stöðinni eitt sumar. Þannig að þau
þekkja ágætlega til samfélagsins hér
og svo veitir ekkert af því að yngja
aðeins upp í liðinu, þó svo að við
séum reyndar allir við góða heilsu.
Svo vorum við einstaklega heppin
að fá reynsluboltann Hugin Egils-
son til starfa. Hann hefur mikla
reynslu úr lögreglustarfinu, starfaði
í langan tíma með sérsveitinni og
hann er hokinn af reynslu.
Jafnvel tvær lögreglukonur í
sumar
Elínborg er fyrsta konan sem starfar
í lögregluliðinu síðan 2009 en alls
hafa fimm starfað frá upphafi í
lögreglunni í Vestmannaeyjum.
Jóhannes telur það styrkja lög-
regluliðið að fá konu til starfa.
„Það er ekki spurning, þetta er mjög
jákvætt og svo gæti jafnvel farið að
þær verði tvær í sumar, því við
erum að skoða það að fá konu í
afleysingar í sumar. Það hefur ekki
gerst áður að tvær lögreglukonur
séu starfandi í Vestmannaeyjum á
sama tíma.“
Þremenningarnir sem tóku til starfa hjá lögreglunni. Frá vinstri:
Huginn Egilsson, Elínborg Ingvarsdóttir og Friðjón Ingi Sigurjónsson.
Gústi læknir og Jóhanna Ýr frumsýna myndband um þunglyndi á Eyjafréttum:
Þunglyndi eitt algengasta mein
sem fólk upplifir á lífsleiðinni
:: Stefna á að stofna samtökin Geð-fatlann til að opna umræðuna, brjóta niður
fordóma og benda á úrræði
Ágúst Óskar Gústafsson, Gústi
læknir, og Jóhanna Ýr Jónsdóttir
munu á fimmtudag frumsýna
nýtt myndband við lag Gústa en
frumsýningin verður klukkan
10:04 á Eyjafréttir.is.
Þau Gústi og Jóhanna Ýr hafa unnið
saman undanfarið, m.a. við
myndina Útlendingur heima og svo
samdi Jóhanna Ýr texta við lög
Gústa sem flutt voru á tónleikum
fyrr á þessu ári. Þar frumsýndi
Jóhanna Ýr einmitt myndband um
einhverfu sem vakti mikla athygli.
Auk þess að frumsýna myndbandið,
stefna þau á að stofna samtök,
Geð-fatlann sem hefði það gagngert
að markmiði að opna umræðuna um
þunglyndi, brjóta niður fordóma
gegn því og benda á úrræði.
„Eitt algengasta mein sem fólk
upplifir á lífsleiðinni er þunglyndi.
Vissulega eigum við öll misgóða
daga, upplifum depurð eða kvíða
sem varla telst sem þunglyndi, en
þunglyndi er samt algengara en við
áttum okkur á,“ sagði Gústi í
samtali við Eyjafréttir. „Einhverra
hluta vegna virðist það enn vera
feimnismál að ræða þetta opinskátt
þrátt fyrir að við höfum jafnvel upp-
lifað það á eigin skinni eða
þekkjum einhvern sem glímir við
sjúkdóminn. Sérstaklega virðast
karlmenn eiga erfitt með að játa
slíka slæma vanlíðan. Vegna
þessarar feimni draga margir hverjir
það á langinn að leita sér hjálpar og
ómeðhöndlað getur það haft
alvarlegar afleiðingar í för með sér.“
Varðandi myndbandið, þá fékk
Jóhanna Ýr Eyjastelpuna Sif
Hjaltdal Pálsdóttur aftur í lið með
sér en Sif sér um teikningar í
myndbandinu, líkt og hún gerði í
fyrra myndbandi Jóhönnu. Gústi
sér um tónlist og upptökur fyrir
myndbandið með aðstoð Gísla
Stefánssonar, sem sá um útsetn-
ingar. Titill myndbandsins er að
sjálfsögðu Geð-fatlinn.
Þunglyndi er leyndarmálið
sem við þekkjum öll
„Samtökin Geð-fatlinn yrðu
starfrækt með það að markmiði að
styðja eftir fremsta megni við alla
þá starfsemi sem vill opna um-
ræðuna um þunglyndi. Það kæmi
alveg til greina að safna fyrir
ákveðnum hlutum og færa t.d.
geðdeild Landspítalans, Geðhjálp
eða úrræðaleiðum eins og Hugarafl
hefur upp á að bjóða. Þó langar
okkur mest að standa fyrir ýmsum
uppákomum hér á eyjunni, hvort
sem það er með tónlistarlegu ívafi,
málþingum eða öðru; í raun tengja
þunglyndi við skemmtilega og
skapandi hluti því þannig teljum við
að við getum náð til fleira fólks og
fá það til að tala um þetta mein og
það þurfi enginn að skammast sín
fyrir að þjást af þessum sjúkdómi.
Þunglyndissjúklingar eru oftast
ferlega skemmtilegt fólk!“ sagði
Gústi og brosti.
Eins og áður sagði verður mynd-
bandið frumsýnt á vef Eyjafrétta á
morgun, fimmtudaginn 10. apríl
klukkan 10:04. „Í lok apríl verða
síðan tónleikar sem marka tímamót
stofnunar Geð-fatlans og hvetjum
við Eyjafólk til að mæta og sýna
átakinu stuðning. Nánar um það
síðar. Að lokum viljum við þakka
Oddfellow í Vestmannaeyjum fyrir
stuðninginn,“ bætti Gústi við í
lokin.
Merki fyrirhugaðra samtaka,
Geð-fatlinn.
JúlÍuS G. InGaSon
julius@eyjafrettir.is
JúlÍuS G. InGaSon
julius@eyjafrettir.is