Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Síða 11
°
°
11Eyjafréttir / Miðvikudagur 9. apríl 2014
Einsi kaldi opnar eftir breytingar :: Er bjartsýnn á sumarið :: Óttast ekki
samkeppnina:
Matur og hönnun sótt
í náttúru Eyjanna
:: Þrettándi matseðillinn á tveimur árum :: Góðir dómar fyrir mat og
þjónustu :: Gott starfsfólk skilyrði fyrir árangri
Það líður varla sú vika að ekki
berist fréttir af nýjum veitinga-
stað í Vestmannaeyjum og gætu
þeir farið að nálgast 30 ef allt er
talið með. Einar Björn Árnason,
matreiðslumeistari, kom eins og
þruma inn í veitingarekstur í
Eyjum þegar hann tók við
eldhúsinu í Höllinni árið 2008.
Þar hefur hann verið með
dýrindisveislur, haldið úti öflugri
veisluþjónustu og séð skóla-
krökkum fyrir mat í nafni Einsa
kalda. Fyrir tveimur árum
opnaði hann veitingastaðinn
Einsa kalda á Hótel Vestmanna-
eyjum við Vestmannabrautina
sem sló strax í gegn. Nú er að
ljúka stækkun á hótelinu og
notuðu Einar Björn og hans fólk
tækifærið til að breyta staðnum
og bæta. Opnaði hann að nýju á
föstudaginn og voru viðtökur
strax mjög góður.
Það hljóta að vera forréttindi í
blaðamennsku í ekki fjölmennari
bæ en Vestmannaeyjar eru að taka í
sömu vikunni viðtöl við menn sem
með eldlegum áhuga sínum og
sannfæringu ná að hrífa fólk með
sér og hrinda hugmyndum í
framkvæmd. Í miðopnu er viðtal
við Frosta Gíslason, herra FabLab,
og nú situr blaðamaður fyrir framan
Einar Björn á veitingastaðnum
hans. Hann er ekki mikið að velta
fyrir sér hvað aðrir aðhafast, „En ég
passa mig á að bera virðingu fyrir
öðrum og vera heiðarlegur,“ segir
Einar sem beinir kröftunum að eigin
rekstri, hefur sannfæringu fyrir því
sem hann er að gera. „Ég veit að
lykillinn að því að allt gangi upp er
gríðarlega mikil vinna og gott
stafsfólk sem virðir aðra,“ segir
Einar Björn.
Sótt í náttúru Eyjanna
Við lítum í kringum okkur og það
verður segjast að breytingarnar eru
allnokkrar. Barinn tekur minna
pláss og komið er stórt kringlótt
borð í suðvesturhornið þar sem
gengið var inn áður. Það er strax við
innganginn sem breytingarnar koma
í ljós og tengjast þær stækkun
hótelsins. Anddyrið er miklu stærra
og bjartara og meira aðlaðandi fyrir
hótelgesti og matargesti Einsa
kalda.
„Hér inni höfum við gert tals-
verðar breytingar og sækjum í
náttúru Vestmannaeyja eins og með
matinn sem við bjóðum upp á,“
segir Einar Björn og bendir á barinn
sem er klæddur vikri úr nýja
hrauninu og vesturvegginn sem á að
minna á gömlu góðu Eyjarnar.
„Hann á að minna á gamla hraunið
þar sem maður ólst upp. Ég fékk
ekki að taka klettana með og varð
því að láta nægja nokkrar hellur en
þær ná að skapa réttu stemmning-
una innan um mosann sem er
grunnurinn.“
Á austurveggnum eru ryðgaðar
stálplötur með bilum á milli sem
lýst eru upp með rauðum ljósum.
„Það segir kannski einhver að þarna
séum við að stela hugmyndinni frá
Eldheimum. Ég neita því ekki en
þetta kemur skemmtilega út þegar
dimma tekur og minnir á nýja
hraunið og gosið 1973.“
Góðir dómar
Það þarf meira en skemmtilegt
umhverfi til að laða að gesti og
þegar kemur að matseldinni og
þjónustu við gesti er ekki slegið af á
Einsa kalda. „Það var strax nóg að
gera þegar við opnuðum á föstudag-
inn og er fólk ánægt með breyting-
arnar. Það sama á við um matinn.
Við erum að fá góða dóma og erum
númer tvö á Suðurlandi á Tripadvi-
sor. Þar geta gestir gefið veitinga-
stöðum og hótelum einkunn. Það
eru margir sem taka hótelið og
okkur saman þannig að ef fólk vissi
að við erum ekki hluti af hótelinu er
ég viss um að við myndum skora
hærra.“
Þrettándi matseðillinn
Þau byrja með nýjum matseðli sem
er sá þrettándi síðan staðurinn var
opnaður fyrir tveimur árum. „Við
leggjum að sjálfsögðu áherslu á
fiskinn okkar sem er nýr á hverjum
degi. Það eru þorskhnakkar, humar,
skötuselur, steinbítur og fleiri
fisktegundir sem við kaupum
samdægurs. Meira að segja förum
við sjálfir niður á fiskmarkað og
flökum ef með þarf. Við erum líka
með flottar steikur og fleiri flotta
rétti fyrir alla aldurshópa,“ segir
Einar Björn sem er bjartsýnn á
sumarið.
Bjartsýnn á sumarið
Stækkun á hótelinu mun hafa sitt að
segja og þess vegna réðst hann í
breytingarnar. „Það eru fjórir lærðir
matreiðslumenn sem vinna hjá
Einsa kalda. Ég er ekki mikið að
pæla í samkeppninni, einbeiti mér
að því sem við erum að gera. Það
hefur dugað mér best og Eyjamenn
hafa reynst mér vel. Sjálfur er ég
Eyjapeyi og mín hugsun er að gera
vel við Eyjamenn, allt annað er
bónus. Það eru líka forréttindi að fá
að vinna með orkuboltum eins og
Magga og Öddu sem eru að stíga
stórt skref í hótelrekstri í Vest-
mannaeyjum með stækkun Hótels
Vestmannaeyja og Dadda í Höllinni
sem er að færa út kvíarnar með
Háaloftinu í Höllinni ásamt Bigga
Nielsen.“
Öflug áhöfn
Það er til lítils að mokfiska ef ekki
er öflug áhöfn til að taka við
fiskinum og ganga frá honum.
Sömu lögmál gilda í öllum rekstri
og þar segist Einar Björn vera vel
settur. „Þetta hefur verið að stækka
og á síðasta ári voru 20 á launaskrá
hjá mér. Ég legg mikið upp úr því
að hér sé góður andi og tek sjálfan
mig ekki alltof hátíðlega. Ég get
alveg orðið snarbilaður í eldhúsinu
og læt ekki trufla mig þegar ég er að
búa til mat. Þess á milli er ég á léttu
nótunum,“ segir Einar Björn sem að
lokum minnist á sína heittelskuðu,
Bryndísi Einarsdóttur, sem nær að
halda honum á jörðinni.
Bryndís hin heittelskaða
„Við Bryndís eigum Einsa kalda og
rekum hann saman. Þó ég sé meira
áberandi verð ég stundum að hlusta
á hana, annars myndi ég aldrei
hægja á mér. Hún sá t.d. að miklu
leyti um hönnunina hér. Hún hefur
hæfileikann til að skapa notalegt
umhverfi og þolinmæðina sem er
ekki mín sterka hlið,“ segir Einar
Björn hlæjandi og bætir við:
„Þá má ekki gleyma honum Gunnari
Heiðari Gunnarssyni sem hefur staðið
í þessu með mér í mörg ár. Hann er
frábær kokkur og leggur líf og sál í
allt sem hann gerir, aldrei morgunfúll
eins og sumir. Og sama má segja
með allt mitt fólk. Jón Valgarð hennar
Mörtu Gæsa fór á Grillmarkaðinn í
vetur til Gulla vinar míns til að fá enn
meiri reynslu fyrir sumarið. Hann
mun verða mér innan handar á
veitingastaðnum ásamt fleiri kokkum
sem koma ferskir inn. Svo leggjum
við einnig mikla áherslu á góða
þjónustu og hef ég aldrei verið betur
settur með þjónustufólk. Takk fyrir
heimsóknina, Ómar minn og ég
hlakka til að fá þig og Þorsteinu
frænku í mat.“
Eyjapeyinn Frosti Jay Freeman,
er sex ára ljúflingsstrákur sem
greindist á vormánuðum 2013
með mjög sjaldgæfan erfðasjúk-
dóm, Ataxia telangiectasia (AT).
Frosti er sonur Eyjakonunnar
Petru Fanneyjar Bragadóttur og
David Freeman frá Ástralíu en
Frosti á þrjú systkini og býr
fjölskyldan í Reykjavík. Sjúk-
dómurinn leggst meðal annars á
taugakerfi og ónæmiskerfi og
einkennist af vaxandi óstöðug-
leika við hreyfingar sem leiðir til
alvarlegrar færniskerðingar. Ekki
er til lækning við sjúkdómnum,
né hægt að hindra framgang
hans og því beinist meðferð
fyrst og fremst að því að auka
lífsgæði Frosta. Stuðningsmenn
Frosta og fjölskyldu standa að
þessum styrktartónleikum í
Fíladelfíu miðvikudaginn 16.
apríl næstkomandi klukkan
20:00 með því markmiði að
hjálpa fjölskyldunni að standa
straum af þeim kostnaði sem
fellur til út af veikindunum.
„Okkur þætti virkilega vænt um að
fá þig og þína til að koma, eiga með
okkur notalega kvöldstund og
hlusta á ljúfa tóna frá frábæru
tónlistarfólki sem hefur lagt
málefninu lið og á miklar þakkir
skilið,“ segir í tilkynningu frá þeim
sem standa að tónleikunum.
Eins og áður sagði eru tónleikarnir
í Fíladelfíu í Reykjavík 16. apríl og
hefjast klukkan 20:00. Enginn
verður svikinn af því að fara á
tónleikana en þeir söngvarar sem
koma fram á tónleikunum eru
Stefán Hilmarsson, Páll Rósinkrans,
Edgar Smári, Jóhanna Guðrún, Íris
Lind og Eyjakonan Íris Guðmunds-
dóttir. Miðaverð er 2.500 krónur í
forsölu en 2.900 við inngang.
Miðapantanir eru á concerto@
concerto.is. Þá er opinn styrktar-
reikningur fjölskyldunnar: 1167-15-
200471 kt. 080776-4629.
Styrktar-
tónleikar
fyrir dug-
legan
Eyjapeyja
:: Frosti Jay, sonur
Petru Fanneyjar er
með ólæknandi
erfðasjúkdóm
:: Nokkrir fremstu
tónlistarmenn
landsins koma
fram í Fíladelfíu á
miðvikudaginn
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Það var strax nóg
að gera þegar við
opnuðum á föstu-
daginn og er fólk
ánægt með breyt-
ingarnar. Það
sama á við um
matinn. Við erum
að fá góða dóma
og erum númer
tvö á Suðurlandi á
Tripadvisor.
”