Fréttir - Eyjafréttir - 09.04.2014, Page 24
°
°
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19
VikUTILboð
SuSHI frá osushi
Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30
Tökum niður pantanir !
9. - 16. apríl 2014
Milka súkkulaði 100 gr
verð nú kr 199,-
verð áður kr 298,-
Daim kúlur 100 gr
verð nú kr 248,-
verð áður kr 338,-
SS Ítalskt lambalæri
verð nú kr/kg 1798,-
verð áður kr/kg 2298,-
Cadburys súkkulaði 100 gr
verð nú kr 298,-
verð áður kr 378,-
Daim karamellur 200 gr
verð nú kr 438,-
verð áður kr 598,-
Gevalía kaffi 500 gr
verð nú kr 698,-
verð áður kr 998,-
Tuc saltkex
verð nú kr 149,-
verð áður kr 178,-
Ritz kex
verð nú kr 199,-
verð áður kr 238,-
Philadelphia ostar
verð nú kr 448,-
verð áður kr 1098,-
Einar Björn Árnason og eiginkona hans, Bryndís Einarsdóttir, opnuðu veitingastað sinn, Einsa kalda á Hótel
Vestmannaeyjum á ný eftir gagngerar breytingar. Staðurinn hefur fengið verulega andlitslyftingu en nánar er
rætt við Einar Björn um breytingarnar á blaðsíðu 11.
„Í dag barst mér bréf frá Innan-
ríkisráðuneytinu sem var svar við
kæru minni um áminningarferil-
inn og uppsögnina sem ég fékk
frá Akureyrarbæ. Það tók eina 20
mánuði að úrskurða í málinu,“
sagði Snorri Óskarsson, oft
kenndur við Betel í Vestmanna-
eyjum, um úrskurðinn en bæði
áminning og uppsögn voru
dæmd ólögmæt.
Snorra, sem er þekktur predikari
hvítasunnumanna, var í júlí 2012
vikið úr starfi kennara við Brekku-
skóla á Akureyri vegna ummæla hans
um samkynhneigð. Rætt var við
Snorra í morgun og var hann að
vonum ánægður. „Þar sem ég braut
ekkert af mér í starfi var skólanum og
fræðslustjóra óheimilt að veita mér
áminningu og fara með mál mitt í
áminningarferli. Uppsögnin var dæmd
ólögleg vegna þess að ekkert tilefni
var í kennslu minni sem gaf þeim rétt
samkvæmt kjarasamningi að segja
mér upp,“ sagði Snorri.
Hann sagðist hafa rétt til trúar og
tjáningar samkvæmt 73. grein
stjórnarskrárinnar. „Ítrekuð dómafor-
dæmi Mannréttindadómstóls Evrópu
um undanþágur og takmark-anir á
meginreglunni ber að túlka afar
þröngt. Akureyrarbær hafði því engan
rétt til að setja tjáningarfrelsi mínu
skorður né hefta trúarskoðanir mínar
enda engin meiðandi um-mæli höfð í
frammi gagnvart einstaklingum,
samkynhneigðum, trans-fólki eða
öðrum,“ sagði Snorri og bað fyrir
kærar kveðjur úr norðrinu.
Um uppsögnina segir Snorri í
Morgunblaðinu 12. júlí 2012. „Ég
gekk út af fundi með uppsögn í hendi
og grun um að menn ætluðu í nafni
yfirvalda að snúa sjónvarpsstöðina
Omega niður vegna þess að boð-
skapur hennar hentaði ekki „samkyn-
hneigðum og trans“ mönnum? Menn
skeindust á sálinni vegna boðskapar
Biblíunnar.“
Þar segir einnig að foreldrar í
Brekkuskóla á Akureyri hafi orðið
æfir í febrúar sama ár vegna þess sem
þeir kölluðu hatursskrif Snorra um
samkynhneigða. „Þessi kynhegðun er
óbiblíuleg og þetta er alveg í sama
flokki og hver önnur synd. Vanda-
málið er að það er verið að gera
þennan málaflokk eða þessa synd,
það er verið að gera hana eðlilega og
menn segja að þetta sé allt í lagi og
það séu bara mannréttindi að fá að
vera svona. Ef ég væri nú bankaræn-
ingi að eðlisfari, þá væri búið að
setja mig inn fyrir langa löngu,“
sagði Snorri af því tilefni í viðtali á
Stöð 2.
Innanríkisráðuneytið :: Snorri í Betel fær uppreisn æru:
Áminning og upp-
sögn ólögmæt
:: Vikið úr starfi vegna ummæla hans um samkynhneigð
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Akureyrarbær
hafði því engan
rétt til að setja
tjáningarfrelsi
mínu skorður né
hefta trúarskoð-
anir mínar enda
engin meiðandi
ummæli höfð í
frammi gagnvart
einstaklingum,
samkynhneigðum,
trans-fólki eða
öðrum
”