Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Page 4
°
°
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014
Eyjamaður vikunnar
Landakirkja
Fimmtudagur 23.október:
Kl. 10. Mömmumorgunn í Safn
aðarheimilinu.
Kl. 15.30. STÁ kirkjustarf 68 ára.
Kl. 20. Æfing Kór Landakirkju.
Kl. 20. Opið hús Æskulýðsfélagsins
í KFUM&K heimilinu.
Föstudagur 24.október:
Kl. 13. Æfing hjá Litlu lærisvein
unum (1.5.bekkur)
Kl. 14.40. Æfing hjá Stúlknakór
Landakirkju (6.10.bekkur)
Sunnudagur 26.október:
Kl. 11. Barnaguðsþjónusta með
miklum söng, sögu og brúðuleikriti
fermingarbarnanna.
Kl. 14. Guðsþjónusta. Fermingar
börn lesa úr Biblíunni. Kór
Landakirkju.
Organisti er Kitty Kovács. Prestur
sr. Guðmundur Örn.
Mánudagur 27.október:
Kl. 19.30. Tólf spora andlegt
ferðalag. Opinn fundur til kynn
ingar. Vinir í bata.
Kl. 20.00. Framhaldsfundur með
Vinum í bata.
Þriðjudagur 28.október:
Kl. 13 og 14.10. Fermingarfræðsla.
Kl. 15.30. ETT kirkjustarf 1112
ára.
Miðvikudagur 29.október
Kl. 13.45. Fermingarfræðsla.
Kl. 15.30. NTT kirkjustarf 910 ára.
Kl. 17.30. Kyrrðarbæn í Landa
kirkju öllum opin.
Kl. 19.30. OA fundur í Safnaðar
heimilinu uppi.
Viðtalstímar presta eru þriðjudaga
til föstudaga milli 11.00 og 12.00.
Vatktsími: 488-1508
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl 20:00
Bænastund.
Sunnudagur kl. 13:00 Samkoma,
Guðni Hjálmarsson prédikar,
almenn þátttaka viðstaddra í söng
og fl. kaffisopi og spjall eftir á.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Matgæðingur vikunnar
Ég vil byrja á að þakka Trausta fyrir
áskorunina og hlakka ég mikið til að
fá að smakka hjá honum.
Steinbíts piparsteik með
bökuðum timian kartöflum
fyrir 4
Hráefni:
1,2 kg Steinbítur
CajP grill og steikar olía (orginal)
Sveppir
Rjómi 500 ml.
Bökunarkartöflur 4 stk
Ferskt salat
Aðferð:
Penslið kartöflurnar með matarolíu
og kryddið með timian og maldon
salti. þær eru svo bakaðar við ca.180
gráður í 45 mín. Eða þar til kartöfl
urnar eru mjúkar í gegn
Fiskurinn skorinn í hæfilega bita velt
uppúr cajp olíunni og steikt á vel
heitri pönnu í 12 mín á hvorri hlið.
Sveppum, grill olíu og rjóma bætt á
pönnuna og soðið í 12 mín. Sósan
smökkuð til og bætt við grill olíu eða
sítrónu pipar ef þurfa þykir.
Borið fram með fersku salati
Vona ég að þessi réttur muni slá í
gegn á fleiri heimilum en mínu.
Að endingu vil ég skora á Gunnar
Heiðar Þorvaldsson sem mun án efa
bjóða okkur upp á eitthvað annað
en sænskar kjötbollur.
Steinbíts piparsteik
með bökuðum
timian kartöflum
Halldór Sævar Grímsson ( til hægri ) er Matgæðingur vikunnar
Þessi ungi Eyjapeyi fæddist þann
23. apríl sl. og vóg þá 4065
grömm og var 52 cm. Hann hefur
hlotið nafnið Björn Ari. Foreldrar
hans eru Sigurður Guðjónsson
og Auður Ósk Hlynsdóttir.
Fjölskyldan býr í Reykjavík
Nýr Eyjapeyi
Nýverið sendu Ferðamálasamtök
Vestmannaeyja frá sér stutt
kynningarmyndband um Vest-
mannaeyjar og þykir það sérstak-
lega velheppnað. Maðurinn á bakvið
myndbandið, eins og svo mörg
önnur góð, er Sighvatur Jónsson.
Hann er því Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Sighvatur Jónsson.
Fæðingardagur: 1. október 1975.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Eiginkonan heitir Dóra
Hanna Sigmarsdóttir og börnin okkar
eru þrjú; Gabríel 16 ára, Elmar Elí 9
ára og Embla Dís 4 ára.
Draumabíllinn: Spurðu konuna
mína, hún hefur miklu meira vit á
bílum en ég.
Uppáhaldsmatur: Vel mjúkt
nautakjöt með góðu rauðvíni.
Versti matur: Ég sýni börnunum
mínum ekki þetta svar, en verð að
viðurkenna að slátur er eitt af því fáa
sem ég hef ekki lært að njóta.
Uppáhalds vefsíða: Ég nota netið
svo gríðarlega mikið við vinnuna,
ekki síst til að sækja mér fróðleik og
koma framleiðslunni minni frá mér.
Ég nota tækifærið og bendi áhuga
sömum á safn myndbanda fyrir
tækisins míns SIGVAmedia: www.
vimeo.com/sigvamedia.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Eftir að hafa unnið bæði sem
plötusnúður og útvarpsmaður í
gegnum árin hef ég gaman af góðu
poppi og það má alveg vera dans
taktur í því líka. Svo vendi ég
stundum tónlistarkvæðinu alveg í
kross og skelli klassískri eða
jasstónlist á, hvort sem er við vinnu
eða slökun.
Aðaláhugamál: Þegar maður vinnur
við áhugamálið er gott að hafa
fótbolta og stundum kórsöng til að
gera lífið enn litríkara.
Hvaða mann/konu myndir þú vilja
hitta úr mannkynssögunni: Ég var
að ljúka við lestur bókarinnar
Rúmlega sólarhrings efni
á bakvið þetta 4 mínútna
myndband
Sighvatur Jónsson er Eyjamaður vikunnar
„Skáldað í skörðin“ eftir Ása í Bæ.
Ég væri alveg til í að setjast niður á
spjall með Ása, Oddgeiri Kristjáns
syni og fleirum af menningarfor
kólfum Vestmannaeyja frá fyrri tíð.
Ég myndi vitaskuld bjóða Sighvati
Bjarnasyni afa í það partý, en hann
lést stuttu eftir að ég fæddist og þess
vegna ber ég reyndar nafn hans.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Rauði kastalinn sem við
hjónin skoðuðum á Portúgal um árið
situr alltaf ofarlega í minningunni
ásamt fallegu umhverfi hans. 13 ára
fjarvera frá Eyjum kenndi manni líka
að meta fjallaumgjörð Heimaeyjar
enn betur en áður.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Ég hef alla tíð tekið
keppnisskap Hjalta bróður og
Ingibjörgu systur mér til fyrirmyndar,
þau náðu aðeins lengra en ég í
sportinu…en bara aðeins :) Svo þykir
mér vænt um ÍBV eins og öllum
Eyjamönnum.
Ertu hjátrúarfull/ur: Nei, af hverju
ætti ég að vera það?
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Ég gríp stundum í lóð og dýfi mér í
sund en skemmtilegast finnst mér að
stunda hádegisfótboltann með hinu
fornfræga félagi Lunch United, sem
mér var boðið í þegar við fjölskyldan
fluttum aftur til Vestmannaeyja
haustið 2008.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég set
heimildarþætti og myndir á
forgangslistann þegar kemur að
sjónvarpsáhorfi.
Hvað er margar vinnustundir á
bakvið slíkt 4 mín myndband: Frá
fyrsta fundi um verkefnið í byrjun
mars eru klukkustundirnar orðnar
rúmlega 100 hjá mér en fleiri komu
að framleiðslunni á ýmsum stigum.
Til gamans má geta þess að ef við
hefðum tekið allt upp í einu hefðu
þær upptökur staðið yfir í rúmlega
sólarhring.
Hvert er uppáhalds myndefnið
þitt: Vel tekið og faglega unnið
myndefni.
Hvað er næst á dagskrá hjá
SIGVAmedia: Það eru ýmis járn í
eldinum hjá fyrirtækinu í samstarfi
við nokkra aðila. Skapti Örn Ólafsson
vinnur með mér að heimildarmynd
um 140 ára sögu Þjóðhátíðar. Svo er
ég að vinna með Jóni Karli Helgasyni
að mynd um uppgröftinn í Eldfellinu
sem leiddi til byggingu Eldheima. Af
stærri verkefnum má loks nefna
heimildarþátt sem ég er að vinna um
vinabæjasamband Vestmanneyja og
Götu í Færeyjum, sem er byggður á
upptökum frá vinabæjaferðum frá
árinu 2012, en hann verður sýndur á
RÚV á nýju ári. Svo eru það
auðvitað hefðbundin verkefni við
vefmyndbönd, fréttir, íþróttir og
framleiðslu Vinsældalista Rásar 2.
Hver er draumurinn? Takk fyrir að
minna mig á að hér áður dreymdi
mig einmitt um að geta unnið við
fjölbreytt verkefni í mínu fagi hér í
Vestmannaeyjum og nágrenni.
Eitthvað að lokum: Ég þakka
Ferðamálasamtökum Vestmannaeyja
fyrir að leita til mín með það
spennandi og krefjandi verkefni að
gera heildstæða kynningarmynd um
Vestmannaeyjar. Ég þakka öllum
sem komu að framleiðslunni með
einum eða öðrum hætti. Þeir sem
ekki hafa enn séð myndina og vilja
deila henni með innlendum sem
erlendum vinum geta nálgast hana á
YouTube rás ferðamálasamtakanna:
www.youtube.com/VisitVestmanna
eyjar.