Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Side 6
°
°
6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014
Í síðustu viku stóð stýrihópur um
byggingu nýs Herjólfs fyrir
kynningarfundi í Höllinni. Var
fundurinn vel sóttur, sennilega
vel á þriðja hundrað manns. Í
upphafi fundar kynnti Friðfinnur
Skaftason, formaður stýrihóps-
ins verkefnið; sem væri að átta
sig þörfunum fyrir ferjuna; að
setja af stað hönnun hennar og
síðan smíði á ferju sem sigla
myndi milli Vestmannaeyja og
Landeyjahafnar.
Stýrihópinn skipa Andrés Sigurðs
son frá Vestmannaeyjabæ, Frið
finnur Skaftason frá Innanríkisráðu
neytinu, Hjörtur Emilsson,
skipaverkfræðingur hjá Navis og
Sigurður Áss Grétarsson starfs
maður Vegagerðarinnar. Auk þess
hefur starfað með nefndinni Eiríkur
Bjarnason, verkfræðingur, sem
komið hefur að þessu verkefni á
fyrri stigum. Þá fékk stýrihópurinn
sér til ráðgjafar Jóhannes Jóhannes
son, sem lengi hefur búið í
Danmörku og unnið þar að hönnun
á ferjum af margvíslegum toga.
Hönnun ferjunnar byggist á
prófunum úr hermi
Friðfinnur sagði það markmið
hópsins að láta smíða ferju sem
gæti haldið uppi áreiðanlegum
heilsárs samgöngum milli Vest
mannaeyja og Landeyjahafnar, sem
þýði að hanna verði ferju sem geti
ráðið við sem verstar aðstæður á
þessari siglingaleið og að stjórn
hæfni og stefnufesta ferjunnar verði
mikil. Stýrihópurinn fékk danskt
fyrirtæki til að forprófa í hermi,
þrjár gerðir ferja auk Herjólfs.
Fengu þeir danskan skipstjóra og
tvo íslenska skipstjóra til að sigla
þeim í herminum og sjá hvernig
þær reyndust við þessar erfiðu
aðstæður sem búnar voru til í
herminum og líktust aðstæðum við
Landeyjahöfn. Út frá þeim
niðurstöðum sagði Friðfinnur að
stýrihópurinn hefði unnið.
Hægt að bjóða út smíðina
í júní 2015
Seinnipart síðasta vetrar var hönnun
ferjunnar boðin út og ákvað nefndin
að hafa það sjálfstætt ferli með
módelprófunum og hermi. „Það
þýðir að ef okkur líst ekki á; erum
ekki fyllilega sáttir getum við alltaf
stöðvað hönnunina og lagt mat á
hana. Þannig að við erum ekki
bundnir af smíði ferjunnar.“
Friðfinnur sagði það algengt í
þessum bransa, að hönnun og smíði
sé boðin út saman. „Fyrir okkur í
stýrihópnum er þessi aðferð
einskonar varúðarráðstöfun; að
hanna ferjuna fyrst, sjá hvernig hún
virkar í módelprófunum og hermi
og fullvissa okkur um hvað ferjan
getur, svo við sitjum ekki uppi með
ferju sem við verðum óánægð
með.“ Samið var við norskt
hönnunarfyrirtæki, sem heitir
Polarkonsult og er skipahönnunar
fyrirtæki í norður Noregi. Er það
fyrirtæki nú að hanna ferjuna. Er
gert ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í
febrúar 2015. „Ef við verðum sátt
við þá hönnun, ætti að vera hægt að
bjóða út smíðina í júní 2015. Miðað
við 18 mánaða smíðatíma er ekki
óraunhæft að smíði ferjunnar væri
lokið fyrir árslok 2016.“
Ölduhæð, straumar, vindur
og grunnsævi
Ráðgjafi stýrihópsins, Jóhannes
Jóhannesson, skipaverkfræðingur
sagði að uppleggið við hönnun
ferjunnar væri að hún geti siglt í
sem mestri ölduhæð, í miklum
straumi og í miklum vindi. Öll
þessi vandamál eru hönnuðir ferja
vanir að fást við. Þessu viðbótar
komi síðan grunnsævið við
Landeyjahöfn, sem þýði að ferjan
þurfi að hafa litla djúpristu sem geri
hönnunina extra erfiða.
Stefnufesta og stjórnhæfni
Stefnufesta ferjunnar er mikilvæg,
hún má þó ekki verða of mikil,
sagði Jóhannes og benti á td.
Titanic sem ekki gat beygt frá
ísjökunum. Finna þurfi rétta
ballansinn. Þá þurfi ferjan að hafa
sem allra minnsta vindmótstöðu,
það þýði að hún þurfi að vera eins
lág og hægt er og ekki verði mikið
af aukahlutum á henni, sem geta
aukið vindmótstöðu.
Til að stjórnhæfni ferjunnar verði
sem best komust menn að þeirri
niðurstöðu að heppilegast væri að
hún hefði skrúfur, sem snérust í
kringum sjálfan sig, svokallaðar
Azipull snúningsskrúfur, sem gefa
mjög skjót viðbrögð og skjótar
hraðabreytingar.
390 farþegar og 60 fólksbílar
Ferjan á að geta flutt 390 farþega í
ferð sem er nánast sami farþega
fjöldi og núverandi Herjólfur flytur,
utan dagana í kringum Þjóðhátíðina
en þá hefur fengist undanþága hjá
Samgöngustofu fyrir 525 farþega.
Jóhannes sagði að miðað væri við
gott aðgengi allra farþega að
komast um borð og frá borði og
komast um allt skip án þess að
þurfa að vera uppá aðstoð komnir.
Bæði væru góðir stigar milli hæða
og eins lyfta fyrir þá sem ekki
ganga sjálfir eða eiga erfitt um
gang.
Farþegarými verður á einni hæð.
Fremst í farþegarýminu verða um
200 hvíldarstólar, sem er þá meira
hugsað sem sumarrými. Aftan við
það rými sem verður aðskilið með
eldvarnarvegg en sem hefur stórar
hurðir, yrðu einnig um 200
hvíldarstólar sem yrði þá aðalrýmið
á veturnar eða þegar veður eru
verri, þar sem meiri hreyfing er
framar í skipinu. Þar yrði einnig
veitingaaðstaða. Á efstu hæð yrði
Borgarafundur vegna byggingu nýs Herjólfs:
Ekki óraunhæft að
ný ferja verði tilbúin
í árslok 2016
:: Á þriðja hundrað manns á kynningarfundi í Höllinni :: Fleiri ferðir :: Minni kostnaður
Stýrihópur vegna nýrrar ferju ásamt fulltrúa Polarkonsult. Frá vinstri: Friðfinnur Skaftason, Andrés Sigurðsson, Arne Markusen frá Polar-
konsult, Jóhannes Jóhannesson, Sigurður Áss Grétarsson, Hjörtur Emilsson.
Fundurinn var fjölmennur, á þriðja hundrað manns kynntu sér hugmyndir um nýja ferju.
Samið var við norskt hönnunarfyrirtæki, sem heitir Polarkonsult og er skipahönnunarfyrirtæki í norður
Noregi. Er það fyrirtæki nú að hanna ferjuna. Er gert ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í febrúar 2015. „Ef við
verðum sátt við þá hönnun, ætti að vera hægt að bjóða út smíðina í júní 2015. Miðað við 18 mánaða
smíðatíma er ekki óraunhæft að smíði ferjunnar væri lokið fyrir árslok 2016.“”
GíSlI ValTýSSon
gisli@eyjafrettir.is