Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Síða 15
°
°
Eyjafréttir / Miðvikudagur 13. ágúst 2014 15
Evrópukeppni kvenna:
Yngri flokkarnir:
Íþróttir
Framundan
Föstudagur 24. október
Kl. 20:30 Grótta ÍBV
3. flokkur karla 1. deild
Laugardagur 25. október
Kl. 13:30 ÍBV Selfoss
Olísdeild kvenna
Kl. 17:00 Haukar ÍBV
Olísdeild karla
Kl. 11:30 HK ÍBV
3. flokkur karla 1. deild
Kl. 14:30 Haukar ÍBV
4. flokkur karla eldri 1. deild
Sunnudagur 19. október
Kl. 11:30 HK ÍBV
4. flokkur karla eldri 1. deild
Kl. 12:30 Fjölnir ÍBV
4. flokkur kvenna eldri 1. deild
Kl. 15:00 Afturelding ÍBV
4. flokkur kvenna yngri 1. deild
Kl. 12:30 ÍBV Selfoss
3. flokkur kvenna 1. deild
Kl. 14:00 ÍBV Haukar
2. flokkur karla forkeppni
Stelpurnar okkar héldu út til
Ítalíu á miðvikudaginn til þess að
keppa tvo leiki gegn ítölsku liði í
forkeppni Evrópudeildar. Fyrir
ferðina var ljóst að liðið var
gríðarlega sterkt og með nokkrar
reyndar stelpur sem höfðu áður
leikið í Meistaradeildinni.
Fyrri leikur liðanna fór fram á
föstudag og var mikið jafnræði á
með liðunum. Stúlkurnar okkar
voru betri aðilinn í fyrri hálfleik en
að honum loknum var staðan 14:14.
Í síðari hálfleik fóru stelpurnar illa
með færin sín og lokatölur urðu
27:24. Það var því ljóst að erfitt
verkefni beið stelpnanna næsta dag.
Mörk ÍBV í fyrri leiknum skoruðu
Jóna S. Halldórsdóttir 7, Telma
Amado 6, Díana Dögg Magnúsdótt
ir 4, Vera Lopes 3, Ester Óskars
dóttir 2 og Elín Anna Baldurs
dóttir 2.
Síðari leikurinn fór, eins og fyrri
leikurinn, fram í höll þar sem mikill
hiti var og margir stuðningsmenn
ítalska liðsins, aðstæður sem
stelpurnar þekkja ekki. Í leiknum
varð snemma ljóst að stelpurnar
myndu ekki ná að vinna upp
muninn sem hafði myndast eftir
fyrri leikinn. Allar stelpurnar fengu
því að spila og tapaðist leikurinn
með níu marka mun 34:25. Mörk
ÍBV skoruðu Jóna S. Halldórsdóttir
8, Vera Lopes 3, Telma Amado 3,
Elín Anna Baldursdóttir 3, Sandra
Dís Sigurðardóttir 2, Ester Óskars
dóttir 2, Bergey Alexandersdóttir 1,
Sóley Haraldsdóttir 1 og Ásta Björt
Júlíusdóttir 1.
Göngu upprétt frá
þessu verkefni
Við heyrðum aðeins í Jóni Gunn
laugi Viggóssyni eftir leikinn og
spurðum út í ferðina.
Hvernig finnst þér stelpurnar hafa
staðið sig í heildina?
„Stelpurnar stóðu sig vel í að
stæðum sem þær þekktu ekki. Um
35 stiga hiti í höllinni, sleipur bolti
og fjölmargir áhorfendur sem
studdu ítalska liðið. Vissulega eiga
leikmenn misgóða leiki en yfir
heildina litið getum við gengið
upprétt frá þessu verkefni.“
Var ítalska liðið einfaldlega of
sterkt fyrir ykkur?
„Nei, ég get fullyrt að ef þetta lið
hefði komið til Íslands og leikið
báða leikina í Eyjum þá hefum við
farið áfram.“
Hver er helsti munurinn á þessu
ítalska liði og liðum á Íslandi?
„Liðin voru ekkert ósvipuð en
Salerno var með mjög reynda
leikmenn sem léku meðal annars í
Meistaradeildinni í fyrra, slíkt vegur
þungt. Á meðan okkar stelpur voru
flestar að leika sínu fyrstu leiki í
Evrópukeppni.“
Á þetta ævintýri ekki eftir að
reynast stelpunum gott í fram-
tíðinni?
„Alveg klárlega, ferðin til Ítalíu var
frábær og vel hugsað um okkur.
Þessi ferð mun seint gleymast.“
Sástu hluti í leik stelpnanna þinna
sem þú getur lagað fyrir komandi
leiki í Olís-deildinni?
„Það er alltaf eitthvað sem gera má
betur og alltaf eitthvað sem bæði
leikmenn og þjálfarar vilja bæta.
Við munum vinna í sameiningu að
því að koma sem best undirbúin í
leiki og í því felst að vera betri í
dag en í gær.“
Telurðu liðið eiga möguleika að
komast í Evrópukeppnina að ári?
„Liðið mun komast í Evrópukeppn
ina á næsta ári.“
Bleikur leikur á
laugardag
ÍBV tekur á móti Selfossi næst
komandi laugardag í Olísdeildinni
en leikur liðanna hefst klukkan
13:30. Um sérstakan góðgerðarleik
er að ræða, bleikan leik í tilefni
átaks Krabbameinssambands
Íslands í októbermánuði varðandi
krabbamein í konum. Litur átaksins
er bleikur og eru áhorfendur hvattir
til að styrkja gott málefni, mæta á
leikinn í bleiku en allur ágóði
leikjarins rennur til Krabbavarnar í
Vestmannaeyjum. ÍBV er í 3. sæti
deildarinnar en Selfoss í 6.
Töpuðu tvívegis fyrir Salerno
- Ekki með betra lið en við segir þjálfarinn - ÍBV verður aftur í Evrópukeppni að ári
Flottur sigur
3. flokks á Selfossi
- 2. flokkur karla tryggði sér sæti í 1. deild
Mjög heitt var í keppnishöllinni í Ítalíu og aðstæður nokkuð framandi
fyrir ungt og efnilegt lið ÍBV.
Knattspyrna:
Gauti bestur
hjá KFS
Lokahóf KFS var haldið á dögunum
á Kaffi Kró. KFS missti naumlega
af sæti í 3. deild þegar liðið tapaði
fyrir Kára í undanúrslitum 4. deild
ar en tvö lið komust upp, Kári og
Álftanes. KFS hafði hins vegar
betur gegn Þrótti Vogum í leik um
þriðja sætið, þannig að þrátt fyrir að
Eyjamenn hafi ekki komist upp, var
árangur KFS í sumar góður. KFS
sló m.a. 2. deildarlið Gróttu út úr
bikarnum en tapaði svo fyrir 1.
deildarliði Þróttar.
Á lokahófinu voru veitt nokkur
verðlaun eins og vanalega. Gauti
Þorvarðarson var valinn leikmaður
ársins en Gauti sló markametið hjá
félaginu með því að skora 21 mark í
deildinni, auk 8 marka í bikar og
deildarbikar. Tryggvi Guðmunds
son var svo næst markahæstur hjá
KFS í sumar með 16 mörk en
Tryggvi er jafnframt næst marka
hæsti leikmaður Íslandsmótsins frá
upphafi. Þá var hann fyrirliði KFS,
besti nýliðinn og næst besti
leikmaðurinn. Hallgrímur Þórðar
son var valinn efnilegastur, Valur
Smári Heimisson sýndi mestar
framfarir, Hilmar Björnsson var
prúðasti leikmaður KFS og Trausti
Hjaltason bætti leikjamet KFS en
hann hefur spilað 168 leiki fyrir
félagið.
Lið ársins var valið en það skipa
eftirfarandi: Fannar; Himmi, Jónas,
Smári, Trausti; Ingó, Bjarni Rúnar,
Gaui og Jói; Tryggvi og Gauti.
Varamenn: Einar, Gummi Geir,
Hjalti J, Auðunn, Pétur Geir, Venni
og Stefán Björn en miðað er við
leikjafjölda. Síðast en ekki síst
varð KFS Íslandsmeistari í tveimur
deildum af þremur í getraunastarf
inu, sem er helsta tekjulind
félagsins.
Yngri flokkar félagsins léku
nokkra leiki um helgina en 3.
flokkur tók á móti mjög sterku
liði Selfossar sem hefur farið
mikinn í þessum aldursflokki
undanfarin ár. Selfyssingarnir
voru þó aldrei fyrirstaða fyrir
strákana sem leiddu með fjórum
mörkum í hálfleik og unnu svo að
lokum öruggan sigur með þrjátíu
mörkum gegn tuttugu.
Mörk strákana skoruðu Hákon Daði
Styrmisson og Nökkvi Dan
Elliðason sem skoruðu sjö mörk
hvor, Friðrik Hólm Jónsson skoraði
fimm en það gerði Logi Snædal
Jónsson einnig. Elliði Snær
Viðarsson skoraði fjögur mörk og
Páll Eydal Ívarsson skoraði tvö.
Andri Ísak Sigfússon varði nítján
skot í markinu eða 49% þeirra skota
sem rötuðu á markið.
2. flokkur félagsins tryggði sér
sæti í 1. deild með stæl um helgina
þegar Stjörnustrákar komu í
heimsókn. ÍBV byrjaði leikinn
miklu betur og leiddu með átta
marka forystu í hálfleik. Markmið
síðari hálfleiks var að vinna hann
einnig en það gekk ekki upp og
voru 33:28 lokatölur. Bergvin
Haraldsson átti stórleik á línunni og
skoraði úr öllum átta skotum sínum.
Svanur Páll Vilhjálmsson skoraði
sex mörk, Dagur Arnarsson fimm,
Arnar Gauti Grettisson fimm,
Svavar Kári Grétarsson þrjú,
Hallgrímur Júlíusson þrjú, Patrick
Maximilian Rittmüller tvö og
Magnús Karl Magnússon eitt.
Guðmundur Tómas Sigfússon varði
22 skot í markinu sem gera 44%
markvörslu. Með þessum sigri eru
strákarnir eins og áður segir búnir
að tryggja sæti sitt í fyrstu deild en
þar munu allir flokkar ÍBV leika á
tímabilinu, alveg frá 2. flokki karla
niður í 6. flokk kvenna.
Strákarnir í 4. flokki töpuðu með
þriggja marka mun gegn ÍRingum
en þeir hefðu getað jafnað metin
þegar 40 sekúndur voru eftir úr
vítakasti. Eftir að vítið klikkaði
skoruðu ÍRingar tvö auðveld mörk
og unnu leikinn.
Stelpurnar í 4. flokki mættu
Íslandsmeisturum síðasta árs,
Haukum, í fyrsta leik tímabilsins.
Það sást vel að um fyrsta leik
stelpnanna var að ræða en hann
tapaðist með tíu marka mun 16:26.
Eva Aðalsteinsdóttir skoraði tólf af
sextán mörkum stelpnanna.
Hákon Daði Styrmisson hefur
farið mikinn undanfarið en hann
skoraði sjö mörk með 3. flokki og
hefur undanfarið nýtt vel þau
tækifæri sem hann hefur fengið
með meistaraflokki. Hákon Daði
er mjög efnilegur.
Olísdeild karla: Valur - ÍBV
Karlaliðs ÍBV beið erfitt verkefni
í Vodafone-höllinni þegar þeir
sóttu meistaraefni Valsmanna
heim. Leiknum lauk 30:24 eftir
að Valsmenn höfðu farið frábær-
lega af stað og leitt með sautján
mörkum gegn níu í hálfleik.
Eyjamenn skoruðu þrjú af fyrstu
fimm mörkum leiksins en eftir það
kom rosalegur kafli. Á þessum kafla
skoruðu Valsmenn níu mörk gegn
engu og eftir það áttu Eyjamenn
erfitt uppdráttar. Í síðari hálfleik
girtu strákarnir sig í brók en það var
ekki nóg og sigldu heimamenn því
sex marka sigri í höfn. Theodór
Sigurbjörnsson var markahæstur
með tíu mörk, Hákon Daði
Styrmisson skoraði fjögur og Einar
Sverrisson þrjú.
Strákarnir eru því í 5. sæti
deildarinnar með sjö stig eftir sjö
umferðir. Næsti leikur er gegn
Haukum á Ásvöllum á laugardag.
Seinast þegar Eyjamenn fóru
þangað endaði það mjög vel, svo
vægt sé til orða tekið.
Olísdeild karla
Afturelding 7 6 1 0 169:147 13
ÍR 7 4 2 1 187:174 10
FH 7 4 1 2 188:173 9
Valur 7 4 1 2 180:170 9
ÍBV 7 3 1 3 195:194 7
Haukar 7 2 3 2 169:169 7
Akureyri 7 3 0 4 181:179 6
Fram 7 2 0 5 152:178 4
Stjarnan 7 1 1 5 178:192 3
HK 7 1 0 6 178:201 2
Sáu aldrei til sólar
gegn Valsmönnum
- Sækja Hauka heim á laugardag
Einar Sverrisson skoraði þrjú gegn Valsmönnum.