Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Page 16

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Page 16
° ° S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir Kjarnafæði lambahryggur ófrosin verð nú kr/kg 1998,- verð áður kr/kg 2588,- Lambi eldhúsrúllur 4 stk verð nú kr 548,- verð áður kr 698,- Kjarnafæði súpukjöt ófrosið verð nú kr/kg 898,- verð áður kr/kg 1198,- Rollo 3 stk verð nú kr 298,- verð áður kr 398,- Merrild kaffi 103 500 gr verð nú kr 698,- verð áður kr 998,- Kjarnafæði Lambalæri ófrosið verð nú kr/kg 1998,- verð áður kr/kg 2588,- B ir ti st m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar vi ll ur o g m yn da br en gl Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19 ViKutilBoð 21.-28. október 2014 SuShi frá osushi Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30 tökum niður pantanir ! SS lambalæri frosið verð nú kr/kg 1298,- verð áður kr/kg 2198,- Búrfells pepperoni box verð nú kr 198,- verð áður kr 298,- Samhentir. Knattspyrnuráðsmennirnir Hannes Gústafsson, Óskar Ólafsson og Ingi Sigurðsson, ásamt hinum nýráðna þjálfara karlaliðs ÍBV, Jóhannesi Þór Harðarsyni. Skagamaðurinn Jóhannes Þór Harðarson tekur við þjálfun karlaliðs ÍBV af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni, sem hætti eftir síðasta leik liðsins í haust. Þetta er þriðja haustið í röð sem Eyjamenn þurfa að finna nýjan þjálfara en við undirritun samningsins við Jóhannes Þór, sagði Ingi Sigurðs- son í knattspyrnuráði að mark- miðið hefði verið að finna þjálfara til lengri tíma og mann sem væri tilbúinn að flytja til Vestmanna- eyja. „Við erum gríðarlega ánægðir með að ljúka því að finna þjálfara. Það hefur verið slæmt fyrir ÍBV að standa í því síðustu þrjú ár að ráða nýjan þjálfara. Því vildum við vanda okkur í að finna þjálfara sem gæti verið hérna lengur en til eins árs og fá þjálfara sem við treystum til að byggja upp liðið. Jóhannes er þessi þjálfari sem við vorum að leita að og það má segja að frá fyrstu sam­ skiptum hafi verið góður samhljómur með hugmyndum knattspyrnuráðs og Jóhannesar og því förum við spenntir inn í þetta samstarf,“ sagði Ingi í samtali við Eyjafréttir. Gleði, barátta og kraftur „Við lögðum mikla áherslu á að Jóhannes muni búa hér í Eyjum og hann mun koma hingað með sína fjölskyldu, eiginkonu og þrjár dætur. Eins og staðan er í dag, er stærsti hluti leikmanna búsettur í Eyjum en auðvitað sinnum við áfram þeim leikmönnum sem eru á höfuðborgar­ svæðinu. Markmið nýs knattspyrnu­ ráðs er að það verði skemmtileg umgjörð á leikjum ÍBV og það verði gaman fyrir stuðningsmenn að koma á völlinn. ÍBV á að standa fyrir gleði, baráttu og kraft en fyrst og fremst eigum við að tefla fram liðið sem við getum verið stolt af, bæði við stuðningsmenn og leikmenn. Ingi segir að ráðið hafi lagt fram áherslur varðandi uppbyggingu á liðinu sem Jóhannes var sammála. „Það sem er gríðarlega ánægjulegt er að áhersla verður lögð á að byggja upp lið þar sem ungir leikmenn fá tækifæri til að eflast og styrkjast en á sama tíma ætlum við að tefla fram liði sem mun festa sig í sessi í Pepsídeildinni. Við sem þekkjum Jóhannes frá því að hann var leikmaður vitum hvernig hann hugsar fótboltann. Hann vill láta boltann ganga manna á milli en á sama tíma var hann ósérhlífinn, lagði sig allan fram en hafði um leið gaman af því að spila. Þetta eru þau einkenni sem við viljum sjá ÍBV liðið standa fyrir, barátta, gleði og skemmtilegur fótbolti. Ráðningin skilaboð til leikmanna Eftir tímabilið hafa fjölmargir leikmenn ÍBV liðsins verið orðaðir við önnur lið og sumir hafa þegar kvatt liðið eins og þeir Jökull Elísabetarson og Atli Fannar Jónsson. „Það er nú ekki útséð með leikmannamál, hvernig þau enda. En skilaboð okkar til þeirra leikmanna sem eru óvissir eru mjög skýr. Við erum hérna að ráða metnaðarfullan þjálfara sem hefur reynslu frá Noregi í þjálfun, auk þess sem hann lék í mörg ár sem atvinnumaður erlendis. Við viljum sem minnstar breytingar á hópnum fyrir næsta sumar,“ sagði Ingi að lokum. Viðtal við hinn nýráðna þjálfara má finna á vef Eyjafrétta en þar segir hann að ráðningin hafi ekki átt langan aðdraganda. Hann segist hafa fylgst með íslenska boltanum úr fjarlægð í sinni 13 ára veru erlendis. Förum spenntir inn í samstarfið við Jóhannes :: Ingi Sigurðsson í knattspyrnuráði telur ÍBV hafa fundið þjálfara til lengri tíma :: Þriðji nýi þjálfarinn á jafn mörgum árum :: Ungir leikmenn fá tækifærið JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.