Fréttir - Eyjafréttir - 21.10.2015, Blaðsíða 20
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19
Vikutilboð
Fyrirtækið Ísfell ehf. í Hafnarfirði
hefur keypt netaverkstæðið Net
hf. í Vestmannaeyjum. Gunnar
Skúlason, framkvæmdastjóri
Ísfells ehf., staðfesti þetta í
samtali við Eyjafréttir í gær.
Ísfell er einn stærsti framleiðandi
veiðarfæra á Íslandi, með höfuð-
stöðvar í Hafnarfirði, en rekur
starfsstöðvar víða um land, m.a. í
Vestmannaeyjum, undir nafninu Ísnet
en þar er Birkir Agnarsson fram-
leiðslustjóri. Fyrirtækið hefur verið
með bækistöðvar sínar að Flötum 19
í Vestmannaeyjum en þar var áður
Netagerð Ingólfs Theódórssonar.
Þess má geta að stjórnarformaður
Ísfells ehf. er Pétur Björnsson sem á
ættir sínar að rekja til Eyja.
Net hf. var stofnað árið 1963 af
þeim Finnboga Ólafssyni, Óskari
Haraldssyni og Júlíusi Hallgríms-
syni. Það var fyrst til húsa við
Hlíðarveg en flutti síðar bækistöðvar
sínar inn í Friðarhöfn þar sem nú er
fullkomin aðstaða til nótaviðgerða.
Stofnendur Nets hf. eru allir látnir en
afkomendur þeirra Óskars og Júlíusar
hafa rekið fyrirtækið undanfarin ár.
Gunnar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Ísfells, segir að viðræður hafi
staðið yfir um kaupin á síðustu
vikum og ákvörðun tekin sl.
föstudag. Gunnar var væntanlegur til
Eyja í dag, miðvikudag, og sagðist
þá ætla að skoða staðhætti með Birki
Agnarssyni, framleiðslustjóra Ísnets í
Eyjum, og setja niður hvernig
rekstrinum verður háttað í fram-
tíðinni.
„Það er almenn ánægja hjá okkur í
Ísfelli með það hvernig málin hafa
þróast og við hlökkum til að taka til
starfa á nýjum stað,“ sagði Gunnar.
Eftir þennan samruna verður Ísnet
eina nótaverkstæðið í Vestmanna-
eyjum.
Hræringar í netagerðinni í Vestmannaeyjum:
Ísfell kaupir
Net hf.
:: Eftir þann samruna verður Ísnet eina nótaverkstæðið í
Eyjum :: Skýrist í dag hvernig rekstrinum verður háttað
Sigurgeir jónSSon
sigurge@internet.is
Listamaðurinn Páll Viðar opnaði myndlistarsýningu í hinu nýja Papacross gallerýi að Heiðarvegi 7 síðastliðinn
föstudag. Sýningin hefur gengið mjög vel, góð aðsókn og sala. Á laugardag um kl. 15.00 ætlar Páll að gera enn
betur og draga fram hljóðfærið og hver veit nema góða gesti beri að garði. Djamm á laugardegi. Léttar veitingar
verða í boði. Gallerýið er opið alla daga frá kl. 11-18 og sýningin stendur til sunnudagsins 25. okt.
Á myndinni hér að ofan er Páll Viðar ásamt öðrum eiganda gallerýsins, Andrési Sigurmundssyni.
SuShi frá Osushi
Kemur til okkar föstudaga kl. 17.00
Tökum niður pantanir !
21. til 27. október 2015
Tom & Jerry kex
verð nú kr 268,-
verð áður kr 328,-
SS pylsur 10 stk
buff fylgir með
Haust hafrakex
verð nú kr 188,-
verð áður kr 238,-
Í október leggur Hunt's Krabbameinsfélaginu lið
með því að láta hluta af söluágóða allra Hunt´s tómatvara renna
til átaks félagsins um konur og krabbamein undir merkjum Bleiku slaufunnar.
Niðurstöður ýmissa rannsókna haga sýnt að með því að neyta tómata og afurða
úr þeim sé hægt að draga úr líkum á krabbameini.
Lambakjöt
af ný
slátruðu
Slátursalan
senn á enda!
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir