Fréttir - Eyjafréttir - 21.10.2015, Blaðsíða 18
18 Eyjafréttir / Miðvikudagur 21. október 2015
Golfvertíðinni hjá GV lauk þann 3.
október sl. með Bændaglímunni
sem jafnan er síðasta mótið á
dagskrá hvers árs. Undanfarna daga
hafa vallarstarfsmenn verið að
undirbúa völlinn fyrir komandi
vetur. Eyjafréttir ræddu við
vallarstjóra GV, Guðgeir Jónsson,
um golftímabilið sem nú er á enda
og helstu áherslur á næstunni í
sambandi við gölfvöllinn.
Vonbrigði með 15. flötina
Guðgeir segir að slæmt veðurfar á
síðasta vetri sem og kuldatíð um
vorið hafi valdið því að völlurinn
kom seint til og þetta hafi gengið
svona upp og ofan í sumar. „Margar
flatirnar komu mjög illa undan
vetrinum, líka þær sem ekki hafa
verið til neinna vandræða fram til
þessa, svo sem flötin á fyrstu braut.
Þessar flatir voru illa farnar, m.a.
vegna sveppasýkingar sem gerði
vart við sig og drap grasið. Þá voru
flatirnar sem næst liggja sjónum í
slæmu ásigkomulagi fram eftir
sumrinu og gekk hægt að ná þeim
góðum. Fyrir utan kuldatíðina í vor
þá settu verkföll strik í reikninginn.
Við fengum t.d. ekki afgreitt
grasfræ fyrr en í maí vegna
verkfalls dýralækna sem verða að
votta slíkar sendingar.“
En mestu vonbrigðin í sumar segir
Guðgeir hafa verið með 15. flötina.
Hún var endurbyggð frá grunni á
síðasta ári og lofaði mjög góðu, allt
virtist þar vera á réttri leið. „Hún
fór illa í vetur, grasið drapst og
flötin var aðeins notuð í tveimur
mótum í sumar. Flötin er öll byggð
á sandi og ekki hefur nægur
þéttleiki myndast í henni. Við
sáðum í hana á ný í sumar með fræi
sem á að vera saltþolnara en það
sem var sáð í fyrra. Og nú vonumst
við bara eftir hagstæðu tíðarfari í
vetur. Það er sömu sögu að segja
með 14. og 17. flötina, þær líta vel
út núna, eins og sú 15. en voru
slæmar í sumar. Þetta er allt undir
því komið hvernig tíðin verður í
vetur.“
undirbúningi nánast lokið
Alls voru sjö starfsmenn í sumar í
fullu starfi við golfvöllinn en auk
þess að vinna við golfvöllinn, er
viðhald á knattspyrnuvöllunum
einnig að hluta til á hendi þeirra.
„Flestir þeirra hófu störf í maí og
þeim hefur fækkað smám saman í
haust. Tveir þeir síðustu hættu á
föstudag í síðustu viku,“ segir
Guðgeir en hann er sjálfur með
heils árs ráðningarsamning og mun
vinna áfram við völlinn í vetur.
„Við erum búnir að ganga frá svo
til öllu, breiða net yfir glompurnar
og svo reynum við að verja flatirnar
næst sjónum eftir megni, setjum
nótaefni yfir flatirnar á 14. og 15.
braut. Við vorum með opið inn á
allar flatir vallarins fram yfir síðustu
helgi en lokuðum vestasta hlut-
anum, brautum 13 til 18, á
mánudag. Brautir 1 til 12 verða
opnar í vetur eins og venjan hefur
verið og líklega færum við inn á
vetrarflatir og vetrarteiga um næstu
mánaðamót.“
nýir teigar sem lengja völlinn
Guðgeir segir að í sumar hafi verið
byrjað á undirbúningi þess að
lengja völlinn. „Hann hefur þótt í
styttra lagi, miðað við leik af hvítu
teigunum, meistarateigunum. Vinna
er þegar hafin við að færa hvíta
teiginn á 2. braut aftar og ætti
brautin að lengjast um eina fimmtán
metra við það. Sömuleiðis er byrjað
á framkvæmdum við nýjan teig á 7.
braut. Í dag er hún 178 metrar af
hvíta teignum en verður um 200
metra löng þegar nýi teigurinn er
tilbúinn. Þá erum við einnig með í
huga að færa teigana á 6. og 11.
braut aftar. Takmarkað landrými
setur okkur skorður með að lengja
völlinn á fleiri stöðum.“
Að sögn Guðgeirs mun það ráðast
af veðurfari í vetur hvort hægt
verður að ljúka vinnu við teigana
tvo. „Ég mun vinna við þetta
verkefni í vetur og vonir standa til
að teigarnir geti orðið tilbúnir í
maí.“
Oft hefur verið rætt um að
óeðlilega lítill munur sé á vega-
lengdinni á hvítum og rauðum
teigum á seinni hluta vallarins en
þeir sem leika af rauðum teigum
eru konur og öldungar. Guðgeir
tekur undir það. „Í raun er það
aðeins á 16. brautinni sem einhver
munur er. Á brautum 13, 14, 15, 17
og 18 er nánast enginn munur á
teigunum, allir slá því sem næst á
sama stað. Það hefur verið rætt um
að færa rauða teiginn á 13.
brautinni framar en skiptar skoðanir
um það.“
Þá hefur einnig verið óánægja, sér-
staklega hjá kvenfólkinu, með að
ekki skuli vera fallreitur við 17.
brautina, þar sem margar úr hópi
kvennanna eiga erfitt með að ná yfir
urðina. Guðgeir segir að þar sem
grjóturðin sé merkt með hvítum
stikum (utan vallar eða „out of
bounds“) þýði það, samkvæmt
golfreglunum að ekki megi setja
upp fallreit þar. „Eina leiðin væri að
merkja svæðið með rauðum stikum
(hliðarvatnstorfæra) eins og var
upphaflega gert, þá mætti setja upp
fallreit. Þetta hefur oft verið rætt en
rétt eins og með teiginn á 13. braut
þá eru skoðanir manna mjög skiptar
á þessu.“
Átjánda flötin vandamál
Í haust hefur einnig verið unnið að
því að endurbæta glompurnar við
flötina á 13. braut, hlaða brattari
kanta á þær eins og gert hefur verið
bæði á 12. og 15. braut. Guðgeir
segir að vissulega verði glompurnar
erfiðari fyrir vikið. „En þetta
minnkar líka að sandur fjúki úr
glompunum en það er vandamál
sem við höfum átt við að glíma
hérna.“
Í lokin minnist Guðgeir á að
ætlunin hafi verið að ráðast í
framkvæmdir við bæði 14. og 18.
flötina í sama dúr og gert var á þeirri
15. í fyrra. „Átjánda flötin hefur
alveg frá upphafi verið vandamál,
uppbygging hennar er með þeim
hætti að í raun er aðeins um tvo staði
að ræða fyrir holustaðsetningu og
það er alls ekki nógu gott, sérstak-
lega þegar um er að ræða lokaholu
vallarins. Þeirri flöt þarf klárlega að
breyta. En við erum mjög tvístígandi
með þær framkvæmdir eftir
reynsluna af 15. flötinni og viljum
fara hægt í sakirnar í þeim efnum.
Svo er þetta líka alltaf spurning um
peninga. Framkvæmdir á borð við
þessar kosta mikið og eðlilegt að
menn vilji fara varlega í sakirnar í
þessum efnum,“ sagði Guðgeir
Jónsson að endingu.
Golf |
Völlurinn kom seint til
vegna tíðarinnar í vetur
:: segir Guðgeir Jónsson, vallarstjóri GV :: Margar flatir komu mjög illa
undan vetri :: Verkföll töfðu sáningu í vor :: unnið að lengingu vallarins
af hvítum teigum ásamt endurbótum á glompum
Guðgeir Jónsson, vallarstjóri GV.
Guðgeir segir mestu vonbrigðin í
sumar hafa verið með 15. flötina.
Hún var endurbyggð frá grunni á
síðasta ári og lofaði mjög góðu.
Sigurgeir jónSSon
sigurge@internet.is
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á
gjaldskrám fyrir börn og ungmenni
hjá 16 fjölmennustu handbolta-
félögum landsins fyrir veturinn
2015/16. Mikill verðmunur er á
hæsta og lægsta verði íþróttafélag-
anna en bornir voru saman 4., 6. og
8. flokkur. Mestur verðmunur í
samanburðinum er á mánaðargjald-
inu fyrir 4. flokk eða 119%.
Öll félögin bjóða upp á æfingar
fyrir 8. flokk (6 og 7 ára), hæsta
mánaðargjaldið er 6.883 kr. hjá ÍBV
en lægsta gjaldið er 3.182 kr. hjá
HK sem er 3.702 kr. verðmunur eða
116%.
Í 6. flokki (10 og 11 ára) er hæsta
mánaðargjaldið 8.250 kr. hjá Fjölni
og ÍR en lægsta gjaldið 4.000 kr.
hjá Umf. Selfoss sem er 4.250 kr.
verðmunur eða 106%.
Dýrast er að æfa í 4. flokki (15 og
16 ára). Í þeim flokki er hæsta
mánaðargjaldið 12.500 kr. hjá
Fjölni en lægsta gjaldið 5.700 kr.
hjá Val sem er 6.800 kr. verðmunur
eða 119%.
Aðeins 2 félög eru með sömu
gjaldskrá og í fyrra fyrir 6. flokk.
Af þeim 13 félögum sem borin eru
saman á milli ára hafa 11 þeirra
hækkað hjá sér ársgjaldið síðan í
fyrra. Mesta hækkunin er hjá Umf.
Selfoss úr 27.000 kr. í 36.000 kr.
eða um 33%, þar á eftir kemur
Knattspyrnufélagið Víkingur með
hækkun úr 56.000 kr. í 70.000 kr.
eða um 25%, árgjaldið hjá FH hefur
hækkað úr 55.000 kr. í 66.000 kr.
eða um 20%, Stjarnan, Afturelding
og ÍBV hækkuðu gjaldskrána um
10-11%, HK, Fram, Grótta og
Haukar hækkuðu gjaldskrána um
4-7% en minnsta hækkunin er hjá
Fylki um 2%. Gjaldskráin er óbreytt
hjá KA og Þór á Akureyri.
Tekið skal fram að hér er aðeins
um verðsamanburð að ræða og sú
þjónusta eða dagskrá sem í boði er
á námskeiðum íþróttafélaganna er
ekki metin. Ekki er tekið tillit til
hvað félögin bjóða upp á margar
æfingar í viku, en ekki er mikill
munur á fjölda æfinga milli félaga.
Verðlagseftirlitið tekur heldur ekki
tillit til fjáraflana sem íþróttafélögin
standa fyrir eða styrkja frá sveitar-
félögunum. Hvorki æfingagallar né
keppnisgjöld eru með í gjald-
skránum sem bornar eru saman.
Taka skal fram að árgjaldið hjá ÍBV
er bæði fyrir handbolta og fótbolta.
Misjafnt er hvort æfingatímabilið er
9, 10 eða 11 mánuðir hjá félög-
unum. Sum félaganna bjóða upp á
afslátt ef allur veturinn er greiddur á
sama tíma.
Handbolti |
Yngri flokkar:
Hvað
kostar
að æfa
hand-
bolta í
vetur?
:: ÍBV hækkaði
gjaldskrána um
10-11%