Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2016, Page 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. nóvember 2016
Á vefsíðu Grunnskóla Vest-
mannaeyja segir að Akademían
sé þróunarverkefni sem felur í
sér samstarf á milli skólans og
ÍBV á sviði íþrótta. Þar er boðið
upp á tækniæfingar í knatt-
spyrnu, handknattleik, sundi og
fimleikum og styrktaræfingar.
Styrktaræfingatímarnir eru einu
sinni í viku og tækniæfingar í
þremur tveggja til þriggja vikna
lotum á skólaárinu í hvorri
grein.
Markmiðið með þessum
æfingum er að auka tæknilega
færni nemenda í sinni íþrótta-
grein og bæta líkamlegt ástand
þeirra til að standa undir þeim
kröfum sem íþróttir gera til
iðkenda.
Auk þessa er stefnt að því að
bjóða upp á fyrirlestur einu sinni
í mánuði þar sem fjallað verður
um mataræði, rétt hugarfar,
nauðsyn þess að lifa reglusömu
lífi og ýmislegt fleira sem nýtist
nemendum til að ná langt í
íþróttum.
Þátttaka í Íþróttaakademíu GRV og
ÍBV-íþróttafélags er í boði fyrir
nemendur í níunda og tíunda bekk.
Nemendur þurfa að vera að æfa
íþróttagreinina hjá ÍBV en þurfa
ekki að vera með viðkomandi grein
í vali utan skóla. Akademían er að
hluta til metin inn í stað íþróttatíma
í töflu en nemendur munu þó sækja
einn íþróttatíma á vegum skólans á
skólaárinu.
Nemendur undirrita svokallaða
lífsstílssamninga og með því heita
þeir að uppfylla ákveðin skilyrði til
þátttöku í Íþróttaakademíunni. Þar
er vímuefnabindindi algjört
skilyrði, hvort sem um ræðir áfengi,
tóbak, munntóbak eða eiturlyf.
Einnig skiptir námsárangurinn máli
og eiga nemendur að leggja sig alla
fram í náminu, mæta vel, skila
verkefnum á réttum tíma og þar
fram eftir götunum. Nemendur eiga
einnig að vera öðrum fyrirmyndir
hvað varðar þátttöku og hegðun í
námi, félagsstarfi og íþróttum innan
og utan skólans, ásamt því að sýna
kennurum, þjálfurum og öðrum
nemendum virðingu. Að lokum er
talað um ástundun. Nemendur eiga
að vera tilbúnir að framfylgja
ströngum mætingar- og hegðunar-
reglun skólans og Akademíunnar
hvort sem um er að ræða skólasókn,
æfingar eða fyrirlestra.
Krefst aga og metnaðar hjá
krökkum
Blaðamaður leit við á æfingu hjá
Akademíunni og ræddi stuttlega við
Hrafnhildi Skúladóttur þjálfara en
hún er eins og flestir vita einnig
þjálfari kvennaliðs ÍBV. Hrafnhildur
segir það krefjast aga og metnaðar
hjá krökkum að rífa sig upp kl. sex
á morgnana til að fara á æfingar um
hávetur til að taka á því.
En hvað er Akademían og hvernig
er hún frábrugðin venjulegum
íþróttatímum?
„Tilgangurinn með Akademíunni
er að veita þeim krökkum hjá ÍBV
sem eru í handbolta og fótbolta
aukaæfingar ef þau hafa áhuga á
því, sem koma að hluta til í stað
almennra íþróttatíma,“ segir
Hrafnhildur og bætir við að álíka
fyrirkomulag sé í framhaldsskól-
anum. „Þau eru allan veturinn og
mæta tvisvar í viku kl. 07:30. Það
var svoleiðis líka í grunnskólanum
en þau voru greyin þreytt þegar líða
tók á veturinn þannig að því var
breytt. Núna mæta þau allan
veturinn á styrktaræfingar einu sinni
í viku og svo bætast við lotur í sjö
vikur yfir skólaárið þar sem þau eru
tvisvar í viku á æfingum.“
Er Akademía í öðrum skólum á
landinu?
„Þetta er ekki í mörgum grunn-
skólum, ég held að það sé alveg
pottþétt. Akademían er hins vegar
víða á framhaldsskólastigi, t.d. í
Borgarholtsskóla, Flensborg og
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Sérhæfðara
Var almenn íþróttakennsla ekki
nógu krefjandi fyrir þessa krakka?
„Þetta er sérhæfðara í þessum
tilteknu íþróttagreinum. Þetta eru
krakkar sem eru 14 til 15 ára gömul
og búin að ákveða að þau ætla að
verða ógeðslega góð í handbolta
eða fótbolta og þá er kannski óþarfi
fyrir þau að vera stanslaust í
einhverjum leikjum þegar hægt er
að nýta tímann betur í að fá
aukaæfingu í sinni íþróttagrein.
Handboltakrakkar æfa kannski fjóra
tíma í viku sem er ekkert gríðarlega
mikill tími þannig það er fínt að fá
smá auka og svo náttúrulega að fá
styrktaræfingarnar líka á þessum
aldri er frábært, þau hafa gott af
því,“ segir Hrafnhildur.
Ásamt Hrafnhildi er Ian Jeffs að
þjálfa í Akademíunni og sjá þau
sjálf um að semja prógram fyrir
krakkana. „Við erum að reyna að
koma inn á samhæfingu, jafnvægi
og almennan styrk. Í fyrra fóru þau
í þrjár vikur í Metabolic, jóga til
Hafdísar Kristjánsdóttur og lærðu
einnig foam flex þar sem þau nudda
sig sjálf með rúllum. Við reyndum
að hafa þetta eins fjölbreytt og
kostur var á,“ segir Hrafnhildur.
Ofþjálfun er oft í umræðunni og
skaut hún upp kollinum ekki fyrir
svo löngu, er einhver hætta á
svoleiðis í Akademíunni?
„Almennt séð nei, en auðvitað er
alltaf hætta á því og eru t.d. sumir
af þessum krökkum í fleirum en
einni íþrótt. Þetta er síðan bara svo
ofboðslega persónubundið, ég æfði
t.d. mjög mikið, marga klukkutíma í
viku en fann aldrei fyrir ofþjálfun.
Ég var líka kannski með skrokk í
það, sumir líkamar höndla þetta á
meðan aðrir gera það ekki. Það er
klárlega meira álag á sumum,
rosalega efnilegum krökkum sem
eru í tveimur íþróttum og eiga að
fara að spila með tveimur til þremur
flokkum í hvorri grein, þá vandast
málið og getur orðið of mikið.“
segir Hrafnhildur.
Viðtöl við krakka:
Rætt var við nokkra krakka úr
Akademíunni stuttu eftir styrktaræf-
ingu en öll eiga þau það sameigin-
legt að æfa einnig handbolta.
Telma Aðalsteinsdóttir
Hvað er það skemmtilegasta við
Akademíuna? Bara krakkarnir sem
ég æfi með.
Hefur þú bætt þig eitthvað? Já, ég
er bæði sterkari og með betra þol.
Uppáhalds æfing?
Það er skemmtilegast að spila.
:: Íþróttaakademía Grunnskóla Vestmannaeyja og ÍBV::
Nemendur undirrita lífsstílssamning
og heita að uppfylla ákveðin skilyrði
:: Vímuefnabindindi algjört skilyrði, hvort sem um er að ræða áfengi, tóbak, munntóbak
eða eiturlyf ::