Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Síða 14
14 - Eyjafréttir Miðvikudagur 25. október 2017 Hann heitir sjaak Bleijlevens, Hollendingur, búsettur á spáni og hefur starfað í noregi. Hefur einnig stungið niður fæti á Íslandi. Hann kallar sig líkams- og hugræktar þjálfara þar sem hann leggur áherslu á að vinna með orku líkamans og fá fólk til að hjálpa sér sjálft með hollu mataræði og allsherjar líkamsrækt þar sem hugur og hönd vinna saman. sjaak hefur unnið mikið í noregi, m.a. með þeirra fremsta íþróttafólki. vest- mannaeyjar hafa heillað hann og ætlar hann í samstarf með jackie Cardoso sem rekið hefur Heilsueyjuna við Faxa- stíg. Hún er að flytja starfsemi sína í Hótel vestmannaeyjar. Mun hann vera hjá henni næst í byrjun nóvember. „Ég vinn með fólki sem á við alls konar vandamál að stríða sem tengjast oftar en ekki stressi og álagi. Ég hef farið víða um lönd og hjálpað fólki,“ segir Sjaak við blaðamann sem hefur notið góðs af leiðsögn hans og meðferð. Það sama segja þeir sem rætt hefur verið við. Segja árangurinn ótrúlegan og verkir til langs tíma séu horfnir. Eru sammála um að Sjaak hafi hjálpað og komið þeim á rétta braut á leið til betra lífs. Án þess að lýsa nákvæmlega þeim árangri sem hann hefur náð með þann sem þetta ritar má þó segja að blaðamaður getur í dag gert ýmislegt sem hann hefur ekki getað í mörg ár eða áratugi. Ekki kannski beint á leiðinni í ballet en er mun liðugri en áður og beinni í baki. Shaak hefur kennt og starfað í Noregi með áherslu á jóga og hugleiðslu auk austænnar leikfimi. Hjálpað til við að beita austrænni tækni við æfingar og keppni. Shaak byrjaði sem félagsráðgjafi og fannst hann oft ráðalaus þegar fólk kom til hans illa haldið án þess að orsakir lægju beint fyrir. Það varð til þess að hann fór að kynna sér austræn fræði og þar sá hann möguleika á að hjálpa þeim sem leituðu til hans. Nam hann þessi fræði í nokkur ár og komst að því að orsök vandamála í líkamanum er oftast að finna í því hvað við gerum rangt, þar sem hin raunverulegu gildi víkja fyrir of miklu vinnuálagi og stressi og rangri beitingu líkamans í þess orðs fyllstu merkingu. Fyrir vikið myndist stíflur í boðleiðum líkamans sem hann ræðst á af miklum krafti. Krafturinn í orku líkamans „Það sem ég geri er að ég vinn bæði með hug og líkama, sérhæfi mig í því og fæ fólk til að skilja á milli hugsana og kraftsins sem býr í orku líkamans. Hvernig við getum nýtt hana og stjórnað,“ segir Shaak og bætir við að mikilvægt sé að einbeita sér að hjartanu og þeim leiðum sem orkan berst um líkamann. Þegar þær stíflast koma upp vandamál. Hann segir jákvæða hugsun og rétta öndun skipta miklu máli. „Þegar við erum í skólaleikfimi og íþróttum er okkur kennt að anda vitlaust, þenja út brjóstkassann í staðinn fyrir að anda og fylla magann eins og börnin gera, þenja hann út í hverjum andardrætti. Þá berst meira súrefni til líffæranna og þú færð meiri tilfinningu fyrir önduninni og því sem hún skilar.“ Þetta er þá spurning um að hafa stjórn á líkamanum og því sem þar gerist? „Allt þetta fer um líkama okkar með rafboðum og ef þau flytja neikvæð boð verða áhrifin á líffæri okkar líka neikvæð. Þarna þarf að vera stöðugt flæði nákvæm- lega eins og þarf þegar við komum upp vökvakerfi í garðinum okkar, ef ein leiðslan stíflast fölnar jurtin sem ekki fær vatn. Þá þarf að opna rásirnar og það getum við gert með réttri öndun og öflugu nuddi,“ segir Shaak og er þá vægt til orða tekið því ef eitthvað má segja um aðferðir hans, þá er það að, með illu skal illt úr reka. Það er engin elsku mamma þegar hann byrjar meðferðina. Hann er líka ótrúlega fundvís á viðkvæma blett og hnúða sem hafa myndast. „Það sem ég geri er að fá fólk til hugsa og fá tilfinningu fyrir eigin líkama og stjórna og skynja orkuna sem hann býr yfir. Vestrænar lækningar hafa misst tengslin við það sem raunverulega skiptir máli á meðan austræn vísindi byggja á þúsunda ára reynslu og þekkingu. Það sem ég get gert er að hjálpa fólki til að finna orkuna í sjálfu sér og hvernig hún virkar.“ Hann segir blaðamann skýrt dæmi um mann sem vinnur mikið og hefur ekki hugmynd um hvað er að gerast í líkama hans. „Það sem vantaði er að ráðast á hið raunveru- lega vandamál. Það sem ég hef gert er að upplýsa þig um vandann og gefa þér réttu meðferðina og útkom- an er, að í dag líður þér betur og ert léttari í lund. Með því ráðast á stíflurnar hverfur sársaukinn og lag kemst á líkamsstarfsemina,“ segi Sjaak að endingu og hlakkar til að starfa með Eyjamönnum og Jackie á Hótel Vestmannaeyjum í fram- tíðinni. Með austræn vísindi að vopni í leið að bættri heilsu Með illu skal illt úr reka ómAR GARðARSSoN omar@eyjafrett ir. is Það sem ég geri er að fá fólk til að hugsa og fá tilfinningu fyrir eigin líkama og stjórna og skynja orkuna sem hann býr yfir. Vestrænar lækningar hafa misst tengslin við það sem raunverulega skiptir máli á meðan austræn vísindi byggja á þúsunda ára reynslu og þekkingu. Það sem ég get gert er að hjálpa fólki til að finna orkuna í sjálfu sér og hvernig hún virkar. ” Það eru 35 ár síðan Blade Runner, framtíðarmynd eftir Ridley Scott sem skartaði Harrison Ford í aðalhlutverki kom fyrir augu heimsins. Mynd sem sýnd var í Höll- inni, nú Hvítasunnukirkjunni á Vestmannabrautinni. Það var heldur dökk mynd sem dregin var upp af framtíð mannkyns og baráttan var við vélmenni sem voru að yfirtaka heiminni. Blade Runner 1982 markaði spor og er eitt af stórvirkjum kvikmynda- sögunnar. Ótrúlegt hvað hægt var að gera án tölvutækninnar sem við þekkjum í dag og býður upp á ótrúlega upplifun á hvíta tjaldinu þar sem ekkert er ómögulegt. Í sumar hóf Eyjabíó starfsemi og býður upp á nýjar myndir um leið og þær koma til landsins. Það er í Kviku, áður Félagsheimilinu og virðist ganga nokkuð vel. Þær voru nokkrar myndirnar sem freistuðu en það var ekki fyrr en Blade Runner 2049 dúkkaði upp að skrefið var stigið í fylgd barnabarnsins sem var hjá ömmunum í vetrarfríi. Eitt af mörgum. Ekki ætla ég að reyna að lýsa myndinni sem stóðst þó allar væntingar. Nú er Denis Villeneuve við stjórnvölinn og mest mæðir á hinum kanadíska Ryan Gosling, sem er frábær, en Harrison Ford er líka í veigamiklu hlutverki auk fjölda annarra frábærra leikara. Það þarf ýmislegt til að upplifun á stórmynd eins og Blade Runner verði eins og til er ætlast. Og það verður að segjast eins og er að Eyjabíó stendur undir nafni. Salurinn ekki stór en sæti þægileg og mynd og hljóð skilaði sér fullkomlega. Það tók nokkurn tíma að koma sér af stað en þegar áhugaverðar kvikmyndir dúkka upp í framtíðinni verður staðið upp frá sjónvarpinu og skellt sér í bíó. Það er alveg þess virði og ólíkt skemmtilegra að njóta en svekkja sig yfir misleiðinlegu efni sem sjónvarpsstöðvarnar bjóða upp á. Sem er þó ekki alslæmt. ómAR GARðARSSoN omar@eyjafrett ir. is mannlíf Blade runner og eyjabíó stóðust væntingar

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.