Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Qupperneq 18
18 - Eyjafréttir Miðvikudagur 25. október 2017
bleikur október
Síðastliðinn föstudag var Vest-
mannaeyjabær klæddur í bleikan
búning í tilefni af bleikum október
og voru flestar verslanir bæjarins
með lengri opnunartíma og ágóði af
deginum rann til krabbameins-
félagsins Eyjarósar. Veðrið var gott
og margir sem gerðu sér glaðan dag
og kíktu í bæinn. Sem dæmi þá
bakaði Erla í Eymundsson vöfflur
fyrir frjáls framlög til styrktar
félaginu. The Brothers brewery
kynntu til leiks bjórinn Sædísi en
500 krónur af hverju seldu glasi af
Sædísi rann til Eyjarósar. Frábært
framtak sem er vonandi komið til
að vera.
Myndir: Óskar Pétur Friðriksson
Bleikur bær á föstudaginn
Það var fjölsótt útgáfuhóf Gísla
Pálssonar, frá Bólstað í Eymunds-
son í Austurstræti fyrir skömmu.
Þar kynnti hann bók sína, Fjallið
sem yppti öxlum – maður og
náttúra. Eins og nafnið bendir til er
efni bókarinnar um Heimaeyjar-
gosið 1973 þar sem saman fer
upplifun höfundar og fróðleikur og
vísindi um upphaf gossins og
aðdragandann sem er í reynd mun
lengri en haldið var í upphafi.
„Það er mjög góð tilfinning að
koma þessari bók út, mikil vinna að
baki, margar langar og góðar
samræður við Eyjamenn. Mjög
ánægjulegt að fagna útgáfunni bæði
í Reykjavík og síðan í Eldheimum í
Eyjum 3. nóvember kl. 17.00 þar
sem allir eru velkomnir,“ segir Gísli
sem var ánægður með hófið í
Reykjavík.
„Það var fjölsótt, full búð, margir
Eyjamenn og góð stemning. Þetta
var eins og stórt ættarmót. Landey-
ingurinn og frændi minn Jónas
Sigurðsson spilaði og söng, meðal
annars lag sitt, Hafið er svart. Við
lögðum báðir út af því, minntumst á
hafið sem bæði skilur að og
sameinar eylandið og fastalandið.“
gísli í ræðupúlti og þarna
má m.a. sjá Sigurbjörgu Péturs-
dóttur, Einar gylfa Jónsson,
Auðbjörgu Pálsdóttur, gunnlaug
ástgeirsson, lilju Pálsdóttur og
Kristján h. Kristjánsson.
Mynd: Valdimar Leifsson.
Fullt út úr dyrum í útgáfuhófi Gísla frá Bólstað
ómAR GARðARSSoN
omar@eyjafrett ir. is
mEnning