Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Blaðsíða 19
Eyjafréttir - 19Miðvikudagur 25. október 2017
Íþróttir
u M S j Ó n :
Einar KriStinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
ÍR og ÍBV mættust í Austurbergi í
7. umferð Olís-deildar karla á
sunnudaginn. Heimamenn voru yfir
bróðurpart leiksins en á 58. mínútu
sneru Eyjamenn taflinu við og unnu
að lokum tveggja marka sigur,
lokastaða 25:27.
Heimamenn í ÍR fóru inn í leikinn
af miklum krafti og náðu mest fimm
marka forskoti í fyrri hálfleik, 8:3,
en ÍBV skoraði aðeins þrjú mörk á
fyrstu 15 mínútum leiksins. Arnar
Pétursson, þjálfari Eyjamanna, tók
þá leikhlé og við það réttist
spilamennska liðsins aðeins af. Í
hálfleik var staðan 13:11, heima-
mönnum í vil.
ÍR-ingar héldu uppteknum hætti í
upphafi síðari hálfleiks og leiddu
leikinn. Eyjamenn voru þó aldrei
langt undan og söxuðu jafnt og þétt
á forskot heimamanna. Þrátt fyrir
mörg tækifæri til að jafna leikinn þá
var það ekki fyrr en á 58. mínútu
leiksins sem það gerðist en þá
skoraði Grétar Þór Eyþórsson í
tvígang fyrir gestina, fyrst til að
jafna metin og síðan til að koma
ÍBV yfir í fyrsta sinn í leiknum
síðan í stöðunni 0:1 á fyrstu
mínútunni.
Eftir umferðina eru Eyjamenn í
fimmta sæti, þó með jafn mörg stig
og Selfoss og Haukar í sætunum
fyrir ofan.
Markahæstur í liði ÍBV var Agnar
Smári Jónsson með sex mörk. Aron
Rafn Eðvarðsson var með sex skot
varin í marki ÍBV og Stephen
Nielsen fjögur.
Handbolti | Olís-deild karla :: ÍR 25:27 ÍBV
Mátti ekki tæpara standa
í sigri Eyjamanna
ÍBV þurfti að sætta sig við tap
þegar liðið mætti Fram á útivelli í 5.
umferð Olís-deildar kvenna sl.
fimmtudag, lokastaða 33:30.
Það voru heimakonur í Fram sem
skoruðu fyrsta mark leiksins en
Sandra Erlingsdóttir skoraði næstu
tvö mörk og kom ÍBV í forystuna.
Mikið jafnræði var með liðunum í
leiknum og skiptust þau á að leiða
en þó aldrei með meira en einu
marki lengst af í fyrri hálfleik. Fram
hafði þó yfirhöndina þegar gengið
var til búningsherbergja í hálfleik,
staðan 16:13.
Forystuna létu liðsmenn Fram
aldrei af hendi og fór hún mest í
fimm mörk í síðari hálfleiknum.
Svo fór að leikurinn endaði með
þriggja marka mun eins og fyrr
segir. Hörkuleikur milli tvegga liða
sem eflaust munu vera í baráttunni
um efsta sætið í vor.
Markahæst í liði ÍBV var Greta
Kavaliauskaite með átta mörk en
þar á eftir kom Sandra Erlingsdóttir
með sjö. Erla Rós Sigmarsdóttir var
með tíu skot varin í markinu og
Guðný Jenný Ásmundsdóttir sex.
Handbolti | Olís-deild kvenna :: Fram 33:30 ÍBV
Tap gegn Fram
í hörkuleik
Felix Örn Friðriksson, leikmaður
ÍBV og U21 landsliðsins, er á leið á
reynslu hjá enska 1. deildar félaginu
Wolverhampton Wanderers.
Spennandi verður að sjá hvort
bakvörðurinn ungi nái að heilla
forráðamenn Úlfanna en liðið situr
um þessar mundir í toppsæti ensku
Championship-deildarinnar sem er
næst efsta deildin þar í landi.
Úlfarnir eiga sér langa sögu í heimi
knattspyrnunnar en félagið á að
baki þrjá Englandsmeistaratitla sem
allir unnust á sjötta áratug síðustu
aldar en síðan þá hefur leið þeirra
legið niður á við.
Knattspyrna |
Felix Örn
til Wolves
á reynslu
Axel Stefánsson, þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í handbolta,
hefur valið fjóra leikmenn frá ÍBV í
æfingahóp helgina 26. - 29. október
nk. Eingöngu var valið úr þeim
leikmönnun sem spila í Olís-deild
kvenna þar sem þetta er ekki
opinber landsliðshelgi.
Leikmennirnir sem um ræðir eru
Díana Kristín Sigmarsdóttir, Ester
Óskarsdóttir, Guðný Jenný
Ásmundsdóttir og Sandra Erlings-
dóttir. Einnig var Eyjastelpan Díana
Dögg Magnúsdóttir, leikmaður
Vals, valin í þennan æfingahóp.
Handbolti |
Fjórar frá
ÍBV í æf-
ingahóp
A-landsliðs
Um liðna helgi sendi Golfklúbbur
Vestmanneyja tvo afreksunglinga til
keppni á sterku alþjóðlegu ung-
lingamóti í Hollandi. Daníel Ingi
Sigurjónsson og Lárus Garðar Long
mættu þar ungmennum víðsvegar
að úr heiminum og stóðu þeir sig
með prýði.
„Aðstæður voru á kafla nokkuð
erfiðar en nokkur vindur var og smá
bleyta á Drentsche Golf & Country
Club vellinum. Peyjarnir léku gott
golf og öðluðust mikla reynslu á að
taka þátt í mótinu. Daníel lék
hringina þrjá á 79-81-84 og Lárus
Garðar lék hringina á 80-77-74. Nú
taka við vetraræfingar hjá afreks-
hópi GV og vonandi fáum við fleiri
fréttir af keppendum GV erlendis,“
sagði Einar Gunnarsson, golfkenn-
ari GV í samtali við Eyjafréttir.
Golf |
Kylfingar GV stóðu sig vel
á alþjóðlegu unglingamóti
FH 6 6 0 0 201:149 12
Valur 7 5 1 1 174:169 11
Haukar 7 5 0 2 197:174 10
Selfoss 7 5 0 2 203:194 10
ÍBV 7 4 2 1 192:183 10
Stjarnan 7 3 3 1 191:188 9
Fram 7 3 1 3 203:212 7
ÍR 7 3 0 4 194:170 6
Afturelding 7 1 1 5 184:201 3
Fjölnir 6 0 2 4 43:173 2
Víkingur 7 0 2 5 169:211 2
Grótta 7 0 0 7 166:193 0
Olísdeild karla
Valur 5 4 1 0 134:108 9
Fram 5 3 2 0 150:126 8
ÍBV 5 3 1 1 143:114 7
Haukar 5 3 0 2 110:108 6
Stjarnan 5 2 1 2 145:133 5
Selfoss 5 1 1 3 117:135 3
Grótta 6 0 2 4 130:160 2
Fjölnir 6 0 2 4 109:154 2
Olísdeild kvenna