Skessuhorn - 24.04.1998, Blaðsíða 16
\
Jt Aðalskoðun hf. í Grundarfirði
Þín bifreiðaskoðun - Stöðugt á staðnum
Símar 438 65 46 og 555 33 55
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI -10. tbl. 1. árg. 24. apríl 1998
Könnun
meöal for-
skólabama
A NÆSTU fjórum mánuðum
mun fara fram á heilsugæslu-
stöðvum hér á Vesturlandi og í
samvinnu við Skólaskriftofu
Vesturlands rannsókn, sem hef-
ur þann tilgang að safna upplýs-
ingum um málþroska þriggja
ára bama svo að samræma megi
athugun þriggja og hálfsárs
gamalla bama á öllu landinu.
Rannsóknin mun þegar hafa í
för með sér aukið samstarf
Skólaskrifstofu og heilsugæslu-
stöðva sem vonandi skilar sér í
markvissari og betri vinnu með
forskólabörnum bæði heima
fyrir og í leikskólum.
Rannsóknin er unnin að til-
stuðlan Landlæknisembættisins
og er hugmyndin að samræma
málþroskamat heilsugæslu-
stöðva landsins og búa til „verk-
færi“ handa hjúkmnarfræðing-
um sem annast ungbamaeftirlit.
Héraðslæknir Vesturlands
styður verkefnið og tekist hefur
góð samvinna við hjúkrunar-
fræðinga er sinna eftirliti ung-
bama og em þeir mjög jákvæð-
ir gagnvart þessu starfi.
Verkefninu stýra talmeina-
fræðingamir Elmar Þórðarson,
Friðrik Rúnar Guðmundsson og
Ingibjörg Símonardóttir. Auk
heilsugæslustöðva á Vesturlandi
taka níu aðrar heilsugæslu-
stöðvar víðsvegar um land þátt í
rannsókninni, en alls verða
prófuð um 300 börn.
Me&limir De-Luxe njóta sólarinnar.
De-Luxe á
Skaganum
HLJÓMSVEITIN De-Luxe hefur
starfað á Akranesi í u.þ.b. hálft ár.
Hana skipa: Halli Melló, söngur og
gítar. Eðvarð Lárusson (Tíbrá,
Kombóið, Bubbi Morthens) gítar,
Eiríkur Guðmundsson (Tíbrá, Vill-
ingamir, Konfekt) trommur, Sigur-
þór Þorgilsson (Soul De Luxe, Mr.
Moon, Konfekt) bassi og Júlíana
Viðarsdóttir söngur.
Hljómsveitin spilar blöndu af
rokki og diskótónlist og hefur leikið
fyrir dansi víða um Vesturland, m.a.
á úrslitakvöldi fegurðarsamkeppni
Vesturlands í Ólafsvík um síðustu
helgi.
Sungíö
á Sandi
SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskvöld var
kór Menntaskólans á Laugarvatni í
heimsókn á Hellissandi og hélt tón-
leika í Röst ásamt kirkjukór
Ingjaldshólskirkju. Góð aðsókn var
á tónleikunum enda er tónlistaráhugi
mikill á Nesinu.
Nýtt frambobsafl í stærri Borgarbyggb
FRAMBOÐSLISTI Borgarbyggðar-
listans við sveitarstjómarkosningam-
ar í Borgarbyggð var samþykktur á
fundi í Búðarkletti mánudaginn 20.
apríl s.J.
Listinn er þannig skipaður:
Kristín Þ. Halldórsdóttir, markaðs-
fulltrúi
Guðrún Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri
Guðbrandur Brynjúlfsson, bóndi
Kristmar J. Ólafsson, rekstrarfræð-
ingur
Runólfur Agústsson, lögfræðingur
Anna Ingadóttir, bankamaður
Öm Einarsson, bóndi
Ómar Öm Ragnarsson, vélvirki
Kristín Valgarðsdóttir, fulltrúi
Bima K. Baldursdóttir, bóndi
Ragnheiður Einarsdóttir, bóndi
Einar Guðmar Halldórsson, verslun-
armaður
Klemenz Halldórsson, bóndi
Elín B. Magnúsdóttir, forstöðukona
Kolbrún Óttarsdóttir, hárgreiðslu-
nemi
Sóley Sigurþórsdóttir, kennari
Sveinn Jóhannesson, bóndi
Jón Kr. Guðmundsson, pípulagn-
ingameistari
I fréttatilkynningu frá samtökun-
um kemur fram að forgangsverkefni
Borgarbyggðarlistans í bæjarstjórn
em eftirfarandi:
Að stuðla að sameiningu alls
Borgarfjarðarsvæðisins í eitt sveitar-
félag sem myndi atvinnulega, menn-
ingarlega og félagslega heild.
Að sjá til þess að sveitarfélagið
veiti íbúum sínum félagslega þjón-
ustu sambærilega við það sem best
gerist.
Að efla atvinnulíf í sveitarfélaginu
á faglegum gmnni.
Að búa sveitarfélagið undir að
taka við nýjum verkefnum frá ríkinu.
Að standa vörð um sveitarfélagið
og íbúa þess, stuðla að framfömm
innan sveitarfélagsins og kynna það
og kosti þess út á við.
Einnig kemur fram að markmið
Borgarbyggðarlistans með framboði
er að skapa raunhæfan valkost. Nýr
meirihluti í bæjarstjóm er forsenda
breytinga í sveitarfélaginu.
Sælgæti
Prins Póló 3 pack
Marabou 100 gr.
Annað:
Súkkulaðibitakex
Mokka ísterta Hagkaups 348, kr.
Saltkjöt 299, kr.
Á brauðið:
Létta smjör 400 gr. 99,kr.-
Kavli Kaviar léttreyktur 85, kr.
Fiskréttir:
200 mílur - Ýsa í raspi 419, kr.
Drykkir:
Trópí - appelsínu 3 pk1/4 ltr.135,kr.
Trópí - epla 3 pk 1/4 Itr. 135, kr.
Trópí - tríó 3 pk 1/4 Itr. 35, kr.
119, kr.-
Jakobs Ali kaffi 400 gr. 198, kr,-
Heinz Tómatsósa 40 oz 149,kr.
Filip. Berio ólífuolía
500 ml. 249, kr.
Tilda Cook in bag hrísgrjón
500 gr. 89, kr.-
Það eru alltaf spennandi tilboð f Hraðkaup i Borgarnesi
! ’ '. ; *
jijr i /• •
'■" j ■ S ; wj! 3lr- 1
Wjm ,.i> .Jlöai
mi ■ * ■ * **•
r - ■ *- -■.__» ’ ■ ',HH i ’ 'N
f f xÆmL L v \ . V ',,. f V ; ' \''