Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.1998, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 24.04.1998, Blaðsíða 8
ÞAÐ VAR hátíðarbragur yfir öllu í félagsheimilinu Klifi í Olafsvík s.l. Iaugardag, þegar fegurðarsamkeppni Vesturlands fór þar fram. Uppselt var á skemmtunina, sem fór vel fram og var öll umgjörð keppninnar að- standendum hennar til mikils sóma. Það voru 15 stúlkur sem tóku þátt í keppninni og áttu þær annasamt kvöld, því auk þess að koma fram á sundbolum og síðum kjólum, sýndu þær fatnað frá nokkrum verslunum sem styrktu keppnina og má þar nefna verslunina Nínu á Akranesi og Vík í Ólafsvík. Sigurður Höskuldsson söng nokk- ur frumsamin lög, bæði einn og með dætrum sínum við góðar undirtektir áhorfenda. Kynnir kvöldsins var Héiðarjóns- son snyrtir. Auk þess að velja fegurstu stúlkur Vesturlands var einnig valin sport- stúlka Vesturlands og þann titil hlaut Dagný Jónsdóttir frá Akranesi. Besta ljósmyndafyrirsætan var valin Dagbjört Emilsdóttir 18 ára frá Ólafsvík. Stúlkurnar völdu sjálfar vinsælustu stúlkuna í hópnum og varð Valdís Eyjólfsdóttir frá Akranesi fyrir valinu. Það var rafmögnuð spenna í saln- um, þegar kom að því að velja feg- urstu stúlkuna. I fimmta sæti varð Hildur Isdal Þorgeirsdóttir 19 ára frá Rifi og í Ijórða sæti Dagbjört Em- Dagbjört Emilsdóttir frá Ólafsvík var kosin besta Ijósmyndafyrirsæt- an, auk þess sem hún hafnaöi í 4. sæti. Mynd: Helgi Dan. ilsdóttir frá Ólafsvík. Valdís Eyjólfs- dóttir 22 ára stúlka frá Akranesi hafnaði í 3. sæti og Björg Arna Elfarsdóttir 19 ára frá Stykkishólmi varð í 2. sæti. Fegurðardrottning Vesturlands Valdís Eyjólfsdóttir frá Akranesi var valin vinsælasta stúlkan, auk þess sem hún hafna&i í 3. sæti. Mynd: Helgi Dan. árið 1998 var valin Lára Dóra Valdi- marsdóttir 19 ára hárgreiðslunemi frá Akranesi. Þær Valdís, Björg Arna og Lára Dóra munu allar taka þátt í fegurð- arsamkeppni Islands sem fram fer á Fjölmenni var í félagsheimilinu Klifi þegar fegur&arsamkeppnin fór fram. Á myndunum eru nokkrir samkomugesta. Myndir: císii

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.