Skessuhorn


Skessuhorn - 24.04.1998, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 24.04.1998, Blaðsíða 11
úpttiýsaunw^. FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998 Blómleg verslun NÆSTKOMANDI laugardag ætla hjónin Guðbjöm Oddur skrúðgarða- meistari og Ingibjörg Aðalsteinsdótt- ir garðyrkjufræðingur að opna nýja verslun í húsnæði Borgarprýði á Akranesi. Þau hjónin halda um þessar mund- ir uppá 15 ára afmæli garðyrkju- stöðvarinnar Borgarprýði. Þar hafa þau verið með plöntuframleiðslu, garðaþjónustu og moldarframleiðslu en verslunin er viðbót við þann rekst- ur. í nýju versluninni hyggjast þau Guðbjöm og Ingibjörg bjóða upp á allt fyrir garðáhugamanninn, s.s. plöntur og garðaáhöld hverskonar. í tilefni af opnuninni á laugardag- inn verður tilboð á mold og tómata- plöntum og á sunnudaginn verða I vikunni var unnib hörbum höndum vib endurbætur á garbyrkjustöbinni og frágangi verslunarinnar. tveir sérfræðingar með ráðgjöf á Lúðvíksson sérfræðingur í áburðar- staðnum. Það era þau Anna Erlends- gjöf, meindýra-, illgresis- og mosa- dóttir kaktusaframleiðandi og Hjalti eyðingu og tækni fyrir gróðurhús og Ekki sambobinn sjálfum mér STURLA BOÐVARSSON, háttvirtur 2. þingmaður Vesturlands, sendir mér aumum „fyrrverandi þingkjömum skoðunarmanni ríkisreiknings til margra ára“ (ekki er nú titillinn neitt slor) tóninn í Skessuhomi 8. apríl s.l. Tilefnið er að hans sögn að ég hafði í sama blaði þann 25. mars s.l. séð ástæðu til að þakka þingmönnum okk- ar Vestlendinga fyrir vel unnin störf. Hann segir þessi umræddu þakkarorð ekki hafa verið sér til gleði. -Ja, ljótt er að heyra og kannski falla blessuðum þingmanninum betur geðillskuskrif, það fmnst mér leitt. Tilefni greinarkoms míns þann 25. mars s.l. var frétt sem birtist í Skessu- homi 18. sama mánaðar þar sem blað- ið gerði úttekt á fjárveitingum til Vest- urlands á þessu ári. Segja má að meg- inefni greinar minnar birtist í lítilli töflu sem ég vann upp úr fréttinni og birtist í greinarkominu og sýndi skipt- ingu íjárveitinga til Vesturlands í fjár- lögum ársins 1998. Lesendum til upp- rifjunar tel ég rétt að endurprenta hana hér: 1. Akranes: 2. Mýra- og Borgar- Ijarðarsýsla 3. Dalasýsla 4. Stykkishólmur 5. Gmndarfjörður 6. Snæfellsbær kr. 26.200.000,00 - 550.000,00 180.000,00 - 25.400.000,00 150.000,00 40.640.000,00 Samtalskr. 93.120.000,00 Við þessa úttekt sér háttvirtur þing- maður enga ástæðu til að gera athuga- semd, né heldur við vangaveltur mínar byggðar á þessari frétt. Því sé ég enga þörf á að árétta neitt úr fyrra greinar- korni mínu umfram þetta. Þar stendur allt óhaggað. En skoðum örlítið viðbrögð Sturlu við þessum skrifum mínum. Hann, les- endur og ekki síst þetta ágæta blað verða að fyrirgefa mér þótt ég freistist til að endurbirta hér sýnishom úr þess- um skrifum hans þó af miklu fleira sé að taka. Þau hljóta að vera honum „samboðin". Hann segir m.a.: 1. „Greinin (er) Sveini G. Hálfdán- arsyni ekki samboðin. Ekki síst þegar litið er til þess að hún er skrifuð af fyrr- verandi þingkjömum skoðunarmanni ríkisreiknings til margra ára. Þar opin- berar hann ótrúlegan skort á þekkingu á fjárlögum, auk þess að skrumskæla einstaka þætti fjárlaga með óforsvaran- legum samanburði og útúrsnúningi." - Er nokkur hissa á því að mér hafi ekki orðið svefnsamt síðan ég las þessi ósköp!? 2. „Aðferðin er þekkt og gengur út á það að ala á öfund og tortryggni í garð nágranna." - Ekki lagast það, þar fer matarlystin líká og ekki þoli ég það til lengdar! 3. „Það verður því að líta til þess Sveinn G. Hálfdánarson þegar metnar eru fjárveitingar til ein- stakra staða um hvaða verkefni er að ræða og um hvað hefur verið sótt. Með fjárveitingum af fjárlögum er verið að leggja fram fjármuni til menningar- starfsemi, til bygginga eða rekstrar sem era á grandvelli laga en ekki geð- þóttaákvarðana þingmanna.......Auð- vitað er það oft vegna óska eða tillagna frá þingmönnum sem bera viðkomandi mál sérstaklega fyrir brjósti.“ [letur- breyting mín.] - Það er nú mergurinn málsins; þingmenn þurfa að bera mál- efnin fyrir bijósti ef þau eiga að ná fram að ganga. Síðan tekur háttvirtur 2. þingmaður Vesturlandskjördæmis mig í kennslu- stund og vill senda mig, mér til fróð- leiks, uppbyggingar og sennilega end- urhæfingar vítt og breitt um mitt fagra og góða Borgarfjarðarhérað. En stað- reyndin er sú að þar fæ ég lítil svör við grein minni eða umræddri úttekt Skessuhomsins á Fjárlögum ársins 1998, sem grein mín byggðist á. Og einnig fæ ég lítil eða engin svör í langri grein Sturlu sem ber þó fyrir- sögnina „Sveini G. Hálfdánarsyni svarað". Jafnvel alþingismaður getur ekki leyft sér það að þykjast vera að svara skrifum okkar kjósenda en ræða síðan lítt eða ekki efni það sem um er fjallað. Það er eins og nemandi í bamaskóla væri að skrifa um lífshætti músarinnar en kennarinn gerði síðan sínar athuga- semdir á grandvelli lífshátta kattarins. Auðvitað hafa þingmenn Vestur- lands stutt einstaka framfaramál á þessu svæði kjördæmisins í gegnum tíðina, meira að segja þeir sem nú sitja, en um það var ekki rætt í þessum skrif- um mínum. Sturla agnúast eitthvað út í Alþýðu- flokkinn í grein sinni þó ég skilji nú ekki tilgang hans með því í svargrein við skrifum mínum. M.a. vegna þess að þingmenn hans hafa verið búsettir í Reykjavík og að sá armi flokkur vilji gera landið allt að einu kjördæmi. Og skilja má að þá geti orðið erfitt að lið- sinna skotveiðifélögum og öðram slfk- um almannasamtökum. Já, alveg rétt, Sturla kemur því að í grein sinni að ég hafi gegnt hreppsnefndarstörfum hér áður fyrr og til að halda öllum titlum til haga má bæta því við að eitt sinn var ég líka varaþingmaður Alþýðuflokksins í kjördæminu og það fyrir einn sem bú- settur var í Reykjavík. (Ekki vora nú afrek mín þar merkileg, svo ekki er von að hann muni eftir setu minni þar). Þetta var nú áður en ég yfirgaf Alþýðu- flokkinn og fylgdi henni Jóhönnu Sig- urðardóttur í Þjóðvaka, sællar minn- ingar. Að lokum þetta: Það er rangt hjá Sturlu Böðvarssyni, háttvirtum 2. þing- manni Vesturlands, að umrædd skrif mín í Skessuhomi hafi gengið út á það að ala á öfund og tortryggni. Við Borg- firðingar og Mýramenn viljum veg allra sveita og byggða á Vesturlandi sem mestan. En við viljum að þing- menn okkar Vestlendinga hafi réttlæti og sanngimi að leiðarljósi og þar finnst okkur hafa orðið á misbrestur nú. Sveinn G. Hálfdánarson, Borgarbyggð. Sumarafleysingar - sjúkraflutningar Starfskraft vantar tii sumarafleysinga og ýmissa starfa fyrir Sjúkrahús Akraness. Umsækjandi þarf að hafa aukin ökuréttindi til mannflutninga. Æskilegur aldur 20 - 30 ár. Upplýsingar gefur Gísli Björnsson í síma 431 4999 og 431 2291 Sjúkrahús Akraness 11 Guöbjörn Oddur og Ingibjörg í gróbrarstö&inni. MyndirC.E. sólstofur. gjöf nú á vordögum enda færi áhugi Guðbjöm Oddur sagði mikið að Skagamanna á garðrækt ört vaxandi. gera í alhliða garðaþjónustu og ráð- Heimskringla Reykholti ehf. Óskum eftir manneskju til sumarstarfa. Starfið krefst þess að viðkomandi hafi til að bera kunnáttu í erlendum tungumálum, þjónustulund og lifandi áhuga á sviði sagnfræði og bókmennta. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Heimskringlu í síma 435 1490 eða 435 1112 Símbréf 435 1412. Miðað er við að gengið verði frá ráðningu eigi síðar en 15. maí Orðabækur á tilboðsverði Margar góðar bækur: Laxness, Passíusálmarnir, Orða- staður og fl. Stórbækur, m.a. Einar Ben, Þórbergur o.fl. Ljóðasafn Tómasar, íslenskir málshættir, íslensk orðtök, Spakmæli, Spámaðurinn, Bókin um veginn o.fl. o.fl. • Pennar og pennasett í úrvali • Geisladiskar • Geisladiskatöskur og -standar • Myndavélar frá Fuji, Pentax og Premier, verð frá kr. 2.900,- • Sjónaukar • Vasareiknar • Hnattlíkön • Fróðleikur og leikir í CD - Rom • Snyrtitöskur (Delsey og fl.) • Ferðatöskur • Skartgripir Bóka tí skemman Hótel Stykkishólmur Laugardagskvöld Harmonikutonleii Stórsveit harmonikufélags reykjavíkur, HUJÓMSVEITIN STORMUR Einleikarar og hópar Dundrandi Harmonikuba .jómsveitin Neistar ásamt sönkkonunni Örnu Þorsteins Léttsveit HARMONIKUFÉLAGSINS j UNNI RAGNHEIÐI HAUKSDÓTT*

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.