Skessuhorn - 30.04.1998, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
-r.->->lih. ■■
Hús eða íbúð í
Borgarnesi
óskast nú þegar til leigu eða kaups.
Upplýsingar í
BAKARÍ
í símum 437-1200, 437-1604 eða
437-2315 frá morgni til kvölds.
Verslun til sölu
Málningarbúðin
Kirkjubraut 39 áAkranesi ertil sölu. Verslunin er
í eigin húsnæði og selur málningarvörur, ýms-
ar byggingavörur, raftæki og ýmsar fleiri vör-
ur fyrir heimili og atvinnurekstur.
Verslunin er mjög vel staðsett og býður uppá
fjölbreytta möguleika til verslunarreksturs í fram-
tíðinni.
Möguleiki er á að kaupa rekstur ásamt vöru-
birgðum og leigja húsnæði verslunarinnar. Nán-
ari upplýsingar veitir eigandi, Hallur Bjarnason, í
Aðalfundur
Skógræktarfélags
Akraness
verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl kl: 20:30 í
bæjarþingsalnum.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Hrafnkell
Proppe garðyrkjustjóri skýrir frá verkefnum bæj-
arfélagsins í umhverfismálum.
Kaffiveitingar.
Stjórnin
Skógræktarfélag ísiands
gengst fyrir námskeiði áAkranesi 18. og 19. maí
n.k. í skógrækt. Námskeiðið er ætlað fyrir sum-
arbústaðaeigendur og þá sem hafa áhuga á
skógrækt. Upplýsingar gefur Hrafnkell Proppe
garðyrkjustjóri milli kl. 11:00 og 12:00 daglega í
síma 431 1211.
Dregið hefur verið í happadrætti Knattspyrnufélags iA hjá sýslu-
manninum á Akranesi. Allir miðar seldust. Eftirfarandi númer
hlutu vinning:
1. vinningur nr. 362
2. vinningur nr. 71
3. vinningur nr. 215
4. vinningur nr 492
5. vinningur nr 272
Knattspyrnufélagið þakkar stuðninginn
► «
Meb kvebju til Péturs
í SÍÐASTA töluglaði Skessuhoms ritar
Pétur Önundur Andrésson grein sem
hann kallar „Oddvitum svarað". Þar fer
hann um víðann völl og beinir spjótum
í ýmsar áttir. Verður hver að svara fyrir
sig og þó margt mætti til taka einskorða
ég mig við þrjú atriði, þ.e. fullyrðingu
Péturs um að við oddvitarnir fjórir
hefðum hótað að skrifa ekki undir
svæðisskipulagið, viðbrögð okkar við
tilmælum hreppsnefndar Reykholts-
dalshrepps til Skipulagsstjómar um að
hún breytti skipulaginu, og þann kafla
greinarinnar sem hann beinir sérstak-
lega til mín.
Hinn 8. desember 1997 var gengið
frá svæðisskipulagi sem nær yfir fimm
sveitarfélög. Það var staðfest með sér-
stakri bókun án fyrirvara í öllum sveit-
arfélögunum. Sameiginlegur gjöming-
ur fimm sveitarstjóma. Þykir Pétri und-
arlegt að mér og fleirum brygði þegar
þær fréttir bámst á skotspónum og dag-
blöðum að einn aðilinn hafi sett í gang
feril til að breyta sameiginlegum gjöm-
ingi án þess að láta hina vita? Þegar
margumrædd veglína Flóka-Klepp-
járnsreykir var tekin til afgreiðslu í
svæðisskipulagsnefndinni kannaði for-
maður hug allra nefndarmanna. Einn
var fjarverandi, einn tók ekki afstöðu,
einn, þ.e. oddviti Reykholtsdalshrepps,
vildi aðeins sýna leið 3a, sjö vildu að-
eins sýna leið 1 en lýstu sig þó fúsa til
að samþykkja að sýna báðar línurnar.
Oddviti Reykdæla sagði að með slíkri
samþykkt væri grundvöllur samstarfs-
ins brostinn. Formaður bað ritara að
bóka ummæli hans sem enginn gat skil-
ið öðmvísi en slit á samvinnunni. Eg
varpaði því þá fram hvort hann og aðr-
ir gætu fallast á að sýna hvomga leiðina
heldur fresta skipulagi. Eftir stutta um-
hugsun samþykkti hann það og sama
gerðu aðrir nefndarmenn sjálfsagt flest-
ir eða allir ófúsir.
Ríkarb Brynjólfsson
Niðurstaðan í þessu sérstaka máli,
sem hreppsnefnd Reykdæla bað Skipu-
lagsstjóm að breyta, var þannig sam-
komulag þar sem enginn hafði sitt
fram.
Pétri þykir af einhverjum ástæðum
eðlilegt að Jóni Böðvarssyni í Brennu
hafi sárnað; ég get upplýst að í þessu er
ég fullt eins viðkvæmur og Jón og mér
sámaði. Við oddvitarnir fjórir rituðum
Skipulagsstjóm allítarlegt bréf og ann-
að styttra til umhverfisráðherra og
sendum hreppsnefnd Reykholtsdals-
dalshrepps afrit samdægurs. Hinn 30.
desember rituðum við ráðherra enn
styttra bréf með ítrekun á efni hins
fyrra. Það bréf einfaldlega láðist að
senda hreppsnefnd Reykdæla. Það er
alveg rétt að við hefðum átt að senda
það. Það er ámælisvert, en hvað þá um
bréf hreppsnefndar Reykholtsdals-
hrepps til skipulagsstjómar 9. desem-
ber. Það var ekki sent samstarfsaðilum
að svæðisskipulaginu samdægurs, ekki
daginn eftir og ekki fyrir jól heldur af-
hent stjómarmönnum SSBNS nú á út-
mánuðum. Finnst Pétri það eðlilegt?
Pétur helgar mér, hermðum og með
embættistitli sérstakan kafla.
Þar reynir hann að gera staðfestingu
Skipulagstjórnar á veglínu frá
Hnakkatjamarlæk að Flóku tortryggi-
lega og spyr með þjósti: „Hvers vegna
fá ákvarðanir sveitarstjómar Andakfls-
hrepps afgreiðslu á örfáum dögum án
þess að leitað sé álits sveitarstjóma
samstarfsaðila þeirra í svæðaskipulags-
nefndinni."
Við umhverfismat vom einu athuga-
semdir sem fram komu við þessa línu
að Flókubrú ætti að vera mun neðar,
tún á Stóra-Kroppi hefðu þá trúlega
verið rist þvert á skurðakerfi og leiðin
enn fjær Flókadal en leið 1. Þessar at-
hugasemdir fengu lítinn hljómgrunn og
tillaga Vegagerðarinnar var staðfest í
umhverfismati. Hreppsnefnd Reykdæla
vildi að seinna umhverfismatið næði
ekki yfir þennan hluta enda væri hann
ágreiningslaus.
Hvemig gekk svo staðfestingin fyrir
sig? A fundi í undirnefnd samvinnu-
nefndar um vegamál 26. apríl (í henni
vom oddvitamir fimm) kynnti ég að
hreppsnefnd Andakflshrepps sæi ekkert
því til fyrirstöðu að þessi lína yrði strax
staðfest. Engin athugasemd var gerð
við það né heldur á fundi samvinnu-
nefndarinnar 29. apríl þegar fundargerð
undirnefndarinnar var lögð fram.
Hreppsnefnd samþykkti 11. júní að
óska eftir staðfestingu veglínunnar. Það
var tekið fyrir af Skipulagsstjóm 3. júlí,
frestað að ósk Vegagerðarinnar en af-
greitt hinn 31. júlí og áritað nokkmm
dögum síðar. Hvar er glæpurinn?
Hefur þessi skipulagsstaðfesting
komið einhverjum illa? Ekki svo ég
hafi heyrt.
Meðal annarra orða, Pétur segir
:“Hvers vegna fá ákvarðanir...“. er eitt-
hvað fleira á spýtunni?
Ríkarð Brynjólfsson oddviti Anda-
kílshrepps
SMÁ-AUGLÝ SI N G A R
LEIGUMARKAÐUR
Ungt reglusamt par með eitt
barn óskar eftir íbúð á Akranesi til
leigu. Uppl. í síma 431 2381.
Óska eftir að leigja 3ja - 4ra her-
bergja íbúð á Akranesi fyrir 1.
júní. Uppl. í síma 451 3457.
Bráðvantar herbergi með bað-
aðstöðu til leigu frá og með mán-
aðarmótunum. Uppl. í síma 852
6488 eða 471 1733 (Björn Hólm).
Óska eftir herbergi á Akranesi til
leigu í sumar. Herbergið þyrfti að
vera með sér inngangi. 898 9476.
Til leigu 4ra herbergja íbúð í
blokk á Akranesi. Laus 1. júní,
leigutími eitt ár. Leigist fyrir
47.000 pr. mán. (Hússj. innifal-
inn). Svör ásamt nafni, síma og
fjölskyldustærð sendist í pósthólf
19, 300 Akranesi.
Herbergi til leigu. Uppl. í síma
431 3323.
ÝMISLEGT ~
Óska eftir fimm manna tjaldi frá
Seglagerðinni Ægi. Uppl. í síma
438 6912 eða 898 7589.
Til sölu Motrorola Flare GSM
sími, tvær rafhlöður og bílhleðslu-
tæki. Uppl. í síma 898 9476.
Vill einhver skipta á leðursófa-
setti eða tölvu fyrir Ford Sierra
árg. ‘85, fyrirfarinn og nýskoðaður
á 120.000. Uppl. í síma 431 4646.
Til sölu tveir æfingabekkir seljast
ódýrt. Uppl. í síma431 1298.
Óska eftir þráðlausu kalltæki
(barnapíu). Uppl. í síma 431
3555.
FYRIR BÖRN
Til sölu Cam barnabílstóll (0-18
kg). Stóllinn er sem nýr. Uppl. í
síma 431 2740.
Til sölu stækkanlegt eldhúsborð,
2ja sæta sófi og stóll, tvö sófa-
borð og sjónvarp. Uppl. í síma
437 1970.
HÚSBÚNAÐUR
Rúm fæst gefins gegn því að vera
sótt. Uppl. í síma 433 8766.
Til sölu rúm frá Ragnari Björns-
syni (180x200), selst á hagstæðu
verði. Uppl. í síma 431 1462.
HEIMILISTÆKI
ísskápur fæst gefins. Uppl. í
síma 437 2033.
HLJÓÐFÆRI
Óska eftir trommusetti í góðu
standi. Uppl. í síma 431 3228.
Til sölu Yamaha 9000 trommu-
sett, fallegasta sinnar gerðar.
Uppl. í síma 897 1817 (ísólfur).
BÍLAR og VAGNAR
Til sölu Escort árg. ‘82, hentug-
ur vinnubíll. Uppl. í sfma 431
1722 og 431 1947.
Óskum eftir sæþotum meiga
þarfnast lagfæringa. Uppl. í sfma
897 1817 (ísólfur) eða 899 7473
(Birkir).
Sala-skipti. Hyundai Pony árg.
‘92, ek. 81 þús. Uppl. í síma 456
4859 (Þórður).
Sala-skipti. Chevrolet Blazer árg.
‘76 með Bedford Turbo vél, gott
eintak. Uppl. í síma 456 4859
(Þórður).
Til sölu Volvo árg. ‘80 í varahlut-
ir, nýir stýrisendar, bremsuklossar
og hljóðkútur. Ný nagla- og sum-
ardekk. Uppl. í síma 431 2735.
Tveir átta vikna kettlingar fást
gefins. Uppl. í síma 431 3115.
Til sölu smáhundur á 30.000.
Uppl. í síma 431 2617.
DÝRAHALD
Kettlingar fást gefins upp úr miðj-
um maí. Uppl. í síma 898 7688.
Til sölu lítið fiskabúr, einnig mikið
af litlum Lego kubbum, Uppl. í
síma 431 2906.
ATVINNA ÓSKAST
Strákur á 16. ári óskar eftir að
komast í sveit, er vanur. Uppl. í
síma 431 4434.
Foreldrar á Akranesi, vantar
ykkur barnapfu í sumar? Ég er 14
ára hress stelpa sem vill gjarna fá
að passa í sumar barn 0 - 1 árs.
Er með RKÍ námskeið og mjög
vön börnum. Uppl. í síma 435
6605 (Gunnur).
Sautján ára strákur óskar eftir
vinnu. Allt kemur til greina. Uppl. í
síma 431 2773 (Hannes).
ATVINNA I BOÐI
Óska eftir duglegri 12 - 13 ára
stelpu til að passa í sumar frá lok
maí og út ágúst. Uppl. í síma 431
3242 (Hildur).
TAPAÐ FUNDIÐ
Blá Adidas úlpa var tekin f mis-
gripum í Tónlistarskóla Akraness
mánudaginn 20. apríl s.l. milli kl.
14 og 16. Uppl. í síma 431 1685
eða skilist íTónlistarskólann.
Barnateppi, beigelitað með mis-
litum þríhyrningum fannst á
Skólabraut. Uppl. í síma 431
1685.