Skessuhorn - 30.04.1998, Blaðsíða 6
6
Q0°1 RMMTUDAGOR 3Ö: A'PFÍÍL 1998
^Kiááunu..
Öflugl starf í Æskiáý&s-
búöum KFUM oq K í Ölven
Sé& heim a& Ölveri. Sumarbústaður Kristrúnar er til hægri á myndinni.
í ÖLVERI, í kjarrivöxnu landi
undir hlíðum Hafnarfjalls í 25
km. fjarlægð frá Akranesi og 5
km. frá Borgarnesi, hafa KFUM
og K á Akranesi rekið sumarbúð-
ir fyrir börn og unglinga um ára-
bil. Senn Iíður að því að fyrstu
hóparnir komi þangað til dvalar,
þvf starfsemin hefst þar í byrjun
júní og lýkur um miðjan ágúst.
Til þess að fræðast nánar um
starfið í Ölveri og upphaf þess,
gengum við á fund Sveinbjargar
Arnmundsdóttur, sem í nær hálfa
öld hefur starfað að þessum mál-
um.
Þrátt fyrir að hafa fyllt sjötíu
árin, er Sveinbjörg full af eld-
móði og áhuga og starfar hún
enn við sumarbúðirnar.
Kristrún í Frón byrjaói
í Skátafelli
Það var Kristrún Ólafsdóttir,
kennd við Frón á Akranesi, sem
hóf þetta starf. KFUM rak sum-
arbúðir fyrir drengi í Vatnaskógi
og var Kristrún þar ráðskona um
tíma. Sr. Friðrik hvatti hana til að
gera eitthvað svipað fyrir stúlkur,
sagði Sveinbjörg. Það var svo í
ágúst 1940 að hún byijaði sum-
arstarf fyrir stúkur í Skátafelli í
skála Akranesskáta sem stóð rétt
þar sem vatnsþróin er undir
Akrafjalli. Sveinbjörg sagðist
hafa aðstoðað Kristrúnu ásamt
fleirum við þetta starf, sem var
heldur frumstætt í byrjun, en þó
ágætt miðað við kröfur á þeim
tíma. Skátaskálinn var lítill og
rúmaði ekki allar stelpurnar og
urðu því sumar að sofa í tjaldi. I
tjaldinu var einnig eldað, auk
þess sem þar voru haldnar sam-
eiginlegar bænastundir.
Sveinbjörg sagði að Ivristrún
hefði með áhuga og dugnaði
haldið áfram þessari starfsemi í
Skátafelli allt til ársins 1947, er
hún hætti þar, enda þrengsli
mikil. Næstu ár voru sumarbúð-
irnar í hermannabragga að Görð-
um, sem hún fékk til afnota án
endurgjalds, og í Vatnaskógi.
Starfsemin flutt í Ölveri
Þá kom að því, að það þurfti að
finna starfseminni annan og
betri stað. Árið 1952 tók
Kristrún á leigu skála í Ölveri
undir Hafnarfjalli, sem þá var í
eigu Sjálfstæðisfélaganna á Akra-
nesi og flutti sumarbúðirnar
þangað. Árið eftir keypti hún
skálann og síðan hafa sumar-
búðirnar verið reknar þar, eða í
45 ár. Árið 1995 var landið keypt,
en það er 7 hektarar.
Sveinbjörg sagði að margt
hefði breyst í Ölverii á þessum
árum. Uppbyggingin væri ótrú-
leg, sérstaklega þegar haft er í
huga að mest allt hefur verið
unnið í sjálfboðavinnu.
Það eru ekki tök á því að segja
hér frá allri uppbyggingunni, sem
átt hefur sér stað í Ölveri á und-
anförnum árum og áratugum, en
hún er eins og áður sagði, mjög
mikil og nú er öll aðstaða þar
eins og best verður á kosið.
Það er óhætt að fullyrða, að
börnunum sem dvelja í Ölveri
Iíður vel. Staðurinn bíður uppá
ómælda möguleika til útiveru.
Farið er í leiki og íþróttakeppnir
eru haldnar, enda er þar mjög
góður íþróttavöllur Iagður grasi.
Ef ekki viðrar til útileikja er
hægt að fara í leikskálann. Ný-
lega kom heitur pottur og nýtur
hann mikilla vinsælda enda
óspart notaður. I nágrenninu eru
margar skemmtilegar gönguleið-
ir, þannig að engum þarf að leið-
ast í Ölveri hvernig sem viðrar.
Þá er þess ógetið að daglega er
Sveinbjörg og Kristrún
fræðsla um kristna trú og bíblí-
una. Mikið er sungið og hver
dagur endar með kvöldvöku, þar
sem börnin skemmta hvert öðru
með allskonar leikjum og leikrit-
um.
Auk húsakynna sem beint
heyra undir starfsemina, er sum-
arbústaður í næsta nágrenni.
Kristrún Ólafsdóttir lét byggja
bústaðinn fyrir sig. Þar dvaldi
hún megnið af árinu síðustu
árin. Bústaðurinn er nú að mestu
notaður fyrir starfsfólk og gesti.
260 börn á sumrl
Sveinbjörg hefur verið for-
stöðukona í Ölveri s.l. 10 ár en
lætur nú af því starfi. Aðspurð
um starfsemina á komandi sumri
sagði hún, að það yrðu 8 flokkar
stúlkna á aldrinum 7-11 ára og
einn flokkur drengja á aldrinum
7-10 ára. Hún sagði að það
kæmust 42 börn í hvem flokk.
Starfsemin hefst 4. júní og er
hver flokkur í eina viku í senn.
Síðasti flokkurinn er til 11 ágúst
og þá lýkur sumarstarfinu. Börn-
in sem dvelja í Ölveri koma víðs-
vegar að af Iandinu, en að meðal-
tali hafa verið þar 260 börn á ári
á undanförnum árum. Sunnu-
daginn 16 ágúst er svo árleg
kaffisala til ágóða fyrir starfsem-
ina. Þá eru sumarbúðirnar til
Ieigu á öðrum tímum ársins og
eru þær talsvert notaðar af hóp-
um frá kristilegu- og kirkjustarfi.
Eins og áður er að vikið var það
Kristrún Ólafsdóttir, eða
Kristrún í Frón, sem lagði grunn-
inn að þessu starfi og helgaði því
líf sitt og krafta sína til hinsta
dags, en hún lést í janúar 1993,
hátt á níræðis aldri. Hún ánafn-
aði sumarbúðunum í Ölveri allar
eigur sínar, eftir sinn dag.
I dag eru Sumarbúðirnar í
Ölveri sjálfseignarstofnunsem og
nýtur engra opinberra styrkja
utan þess að Akranesbær hefur
styrkt starfsemina um 50 þús.
krónur á ári til margra ára, þar til
nýverið að styrkurinn var lækkað-
ur í 25 þúsund krónur. Stjórn
Æskulýðs- og sumarbúðanna að
Ölverii skipa nú: Þuríður Þórðar-
dóttir sem er formaður. Haf-
steinn Kjartansson varaform.,
Ingólfur Örn Þorbjörnsson gjald-
keri og Lára Dröfn Gunnarsdótt-
ir ritari. Sveinbjörg Arnmunds-
dóttir og Axel Gústafsson eru
meðstjórnendur.
Nýfæddir Vesl lendingar
18. APRÍL - Drengur.
Foreldrar: Guðrún Þóra
Ingþórsdóttir og Finnur Þór
Haraldsson Háafelli Búðar-
dal.
Ljósmóðir: Anna Elísabet
23. APRÍL — Drengur.
Foreldrar: Helga Sigurðar-
dóttir og Jóhannes Símonar-
son.
Ljósmóðir: Anna Björns-
dóttir.
Við bjóðum nýja Vestlendinga velkomna á svæðið:
22. apríl — Meybarn. Foreldrar: Lára Jóhannesdóttir og
Skarphéðinn Magnússon.
Ljósmóðir: Jónína Ingólfsdóttir.
Vi& tjaldió í Skátafelli ári& 1941
Stjórn Æskulýðs- og sumarbú&anna í Ölveri: Þuríður Þór&ardóttir,
Sveinbjörg Arnmundsdóttir, Lára Dröfn Gunnarsdóttir, Gústaf Axelsson,
Hafsteinn Kjartansson og Ingólfur Örn Þorbjörnsson. Mynd: Hdan.
Stúkurnar sem voru í fyrsta hópnum í Skátafelli 1940. Fremstar eru þær
Arnfrföur Armundsdóttir og Valger&ur Magnúsdóttir frá Söndum