Skessuhorn


Skessuhorn - 30.04.1998, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 30.04.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1998 VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262 FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is Afgreiðsla á Akranesi að Stillholti 18 er opin eftir hádegi virka daga, sími 431 4222 Útgefandi: Skessuhorn ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098 Blaðamaður: Helgi Daníelsson, sími 898 0298 Auglýsingar: Magnús Valsson, sími 437 2262 Fjóla Ásgeirsdóttir, sími 431 4222 Hönnun og umbrot: Guðmundur Steinsson, sími 588 4144 Prentun: ísafoldarprentsmiðja Aðalskrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00-16:00 Skrifstofan að Stillholti 18 á Akranesi er opin kl. 13-17. Skessuhorn-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánu- dögum. Litaauglýsingar sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þó að berast blaðinu í síðasta lagi á hádegi á mánudögum . Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðið er gefið út í 5.800 eintökum og dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrirtæki á Vesturlandi auk Kjalarness, Kjósar og Reykhóla. ÞAÐ MUN vera komið vor. Það merkja menn af því að lóan, tjaldurinn og krían eru mætt á svæðið og brosa á móti hækkandi sól. Það munu einnig vera kosningar á næsta leyti. Það sést best á annarskonar fuglum sem flækjast um sveitir og bæi, ekki síður glaðhlakkalegir. Það eru frambjóðendur í komandi sveitarstjómarkosningum. Það þarf ekki neina fuglafræðihandbók til að þeltkja þá. Þeirra auðkenni eru vinalegt bros, ábúðarfull svipbrigði og þétt handtak. Þeir sjást á samkomum, vinnu- stöðum, sjúkrastofnunum og íþróttakappleikjum, jafnvel þeir sem hafa yfirlýsta andúð á íþróttum. Þetta er allt gott og blessað. Gott bros ber að þakka í hvaða tilgangi sem það er sett fram. Ég velti því hinsvegar fyrir mér hvort ekki sé hægt að nýta betur þetta jákvæða kosningavið- mót. Eins og flestir aðrir Islendingar þarf ég oft að bregða mér í kaupstað til að afla vista og þótt ég sé alinn upp í þeirri góðu trú að fáist hlutur- inn ekki í manns eigin kaupfélagi þá þurfi maður ekki á honum að halda er ég svo nýjungagjam að ég þarf að versla sem víðast og iðulega hluti sem ég hef ekkert við að gera. Ég er þar að auki svo bamalegur að halda að verslunar- og þjónustufólk eigi að vera ákaflega ánægt að fá mig í sínar verslanir og þjónustumiðtöðvar, ekki eingöngu vegna þess hversu glæsilegur ég er að vallarsýn og bráðskemmtilegur, heldur vegna þeirra fjármuna sem ég læt í té fyrir viðkomandi vöm og þjónustu. Þetta hef ég misskilið eins og svo margt annað. Lengi vel hélt ég að þetta væri eitthvað persónulegt gagnvart mér en ég hef komist að því að svo er ekki. Ég hef séð fjölmarga aðra viðskipta- vini valda afgreiðslufólki armæðu og leiðindum með því að eiga við það viðskipti. Víða fær maður það á tilfinninguna að þjónustulund sé eitt- hvað sem er uppselt fyrir löngu og hætt að ffamleiða. Sumir em að vísu þeirrar skoðunar að vingjamlegt bros, og „góðan daginn“, sé sjálfsagð- ur kaupbætir en oft sýnist manni að það þurfi flóknar skurðagerðir til að kalla það ffam á andlitum einstaka afgreiðslufólks. Oft hef ég einnig velt því fyrir mér hvort ég sjáist illa, þótt ég hafi fram til þessa talið mig nokkuð áberandi í útliti. Samt sem áður hef ég stundum staðið langtím- um saman framan við afgreiðsluborð án þess að snoppufríðar af- greiðslustúlkumar veiti mér nokkra athygli heldur halda þær áfram að ræða brýnni mál. Ég get svo sem ekkert kvartað. Fyrir bragðið veit ég upp á hár hverjum Sigga svaf hjá í gær, af hverju Nonni barði Gvend og vegna hvers Bibbi og Búbba voru að skilja í fjórða sinn. Allt eru þetta nauðsynlegar upplýsingar og kannski frekja að vera með einhverja óþol- inmæði þótt maður fái ekki afgreiðslu fyrr en undir kvöld. Ég er nú þannig gerður að mér finnst það leiðinlegt ef ég er að valda viðkomandi fólki ónæði með nærvem minni. Ég viðurkenni að stundum hef ég kannski ekki mikið að gera inn í viðkomandi verslanir. Ég er hugsanlega að höndla einn kaffipakka, eina vesæla samloku eða annað smálegt sem tekur því vart að afgreiða. Því hef ég stundum reynt að bæta um betur ef mér sínist það á svipmóti viðkomandi afgreiðslumanns eða konu að ég sé bévítans nánös og fer jafnvel fram úr fjárlögum til að reyna að létta lund viðkomandi. Það hefur þó lítinn árangur borið. Oft- ar en ekki virðist mér gremjan frekar aukast en hitt eftir því sem ég kaupi meira. Ég er nú ekki að halda því fram að allir sem leggja stund á verslun og þjónustu séu upp til hópa fúllyndir durtar. Ég gæti bent á fjölda fólks í slíkum störfum hér á Vesturlandi sem er til hreinnar fyrirmyndar en það er mín skoðun að almennt eigi þjónustulundin ekki að vera geymd inni á lager. Ég geri það því að tillögu minni að hér eftir verði það fyrst og fremst fólk í afgreiðslu- og þjónustustörfum sem valið verður á fram- boðslista til sveitarstjómarkosninga. Þá getur maður a.m.k. átt von á brosi í næstu búð á fjögurra ára fresti. Með bros á vör. Gísli Einarsson Starfsmenn Hönnunar og rábgjafar á Akranesi: F.v. Bergsteinn, jóhannes og Sæmundur. Hönnun og ráö- gjöf á Akranesi NÝVERIÐ var stofnað á Akranesi ný verkfræðistofa, Hönnun og ráðgjöf, og er hún til húsa á Garðabraut 2. Stofnendur og eigendur em Berg- steinn Metúsalemsson, Hönnun og ráðgjöf Reyðarfirði og Hönnun hf. í Reykjavík. Að sögn Bergsteins verð- ur góð samvinna á milli þessara verkfræðistofa. Starfssvið verkfræði- stofunnar er öll almenn verkfræði- þjónusta. I samvinnu við ísgraf ehf. starf- rækir Hönnun og ráðgjöf fyrirtækið Loftmyndir ehf. sem sérhæfir sig í loftmyndatökum og gerð stafrænna kortagrunna. Stofan er vel tækjum búin til allrar tölvuvinnslu og til landmælinga hefur hún yfir að ráða einum fullkomnasta búnaði sem völ er á í GPS-tækni frá TRIMBLE. Starfsmenn stofunnar em þeir Berg- steinn Metúsalemsson, Jóhannes Snorrason og Sæmundur Víglunds- son. Landafundur í Snæfellsbæ LÖGREGLAN í Snæfellsbæ gerðu 65 lítra af gambra og 75 lítra af landa upptæka í Snæfellsbæ s.l. laugar- dagskvöld. Umræddar framleiðslu- vömr fundust í heimahúsi og í beitn- ingaskúr í bæjarfélaginu. Að sögn lögreglunnar í Snæfellsbæ var einn maður handtekinn vegna málsins og viðurkenndi hann að eiga drykkjar- vömmar. Málið er því upplýst. Landafundurinn átti sér nokkum að- draganda og var rannsóknin unnin af lögreglunni í Snæfellsbæ, Stykkis- hólmi og Gmndarfirði. Framboöslisti í Borgarfiröi I NÝJU sveitarfélagi fjögurra hreppa í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar hefur verið lagður fram framboðslisti til sveitarstjórnarkosninga undir nafninu Breiðfylking í Borgarfirði. „Að framboðinu stendur hópur fólks sem setti sér það markmið að búa til öflugan lista sem byggði á breiðum gmnni. Málefnavinnunni er að ljúka en listinn byggir sína stefnu að miklu leyti á þeirri vinnu sem unnin var í tengslum við sameiningu sveitarfé- laganna auk þess sem atvinnumálin verða væntanlega gmndvallaratriði í störfum næstu sveitarstjómar", sagði Sveinbjörn Eyjólfsson formaður undirbúningsnefndarinnar. Listinn er þannig skipaður: Ríkharð Brynjólfsson, kennari Hvanneyri Agústa Þorvaldsdóttir, bóndi Skarði Bergþór Kristleifsson, ferðaþjón- ustubóndi Húsafelli Þórir Jónsson, smiður Reykholti Sigurður Jakobsson, bóndi Varma- læk Vaka Kristjánsdóttir, hjúkmnarfræð- ingur Nesi Ingibjörg Konráðsdóttir, kennari Hýmmel Jónína Heiðarsdóttri, húsmóðir Múlakoti Unnsteinn Snorrason, nemi Syðstu Fossum Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi Skálpastöðum. Sumarið er á næsta leiti og yngri kynsló&in bí&ur ekki bo&anna heldur er fljót a& færa leiksvæðið út í vorblí&una. " ssBsaiigaQBH Hagnabur af FB AÐALFUNDUR Fiskmarkaðs Breiðafjarðar var haldinn ný- lega. Þar kom fram að hagnað- ur fyrirtækisins var tæplega 1,9 milljónir króna á síðasta ári en árið á undan var hagnaður- inn 3,5 milljónir. Það em vaxtagjöld af fjárfestingum sem skýra fyrst og fremst minni hagnað árið 1997. Útlit- ið er gott fyrir þetta ár en eins og fram kom í Skessuhomi fyrir skömmu hefur meðalverð verið frekar hátt að undan- fömu. Framkvæmdastjóri FB er Tryggvi Leifur Óttarsson. Fullur fjöröur af físki NÝLEGA var Breiðafjörður- inn opnaður aftur fyrir veiði eftir hálfsmánaðar hrygningar- stopp. Að sögn sjómanna á Snæfellsnesi hefur verið mok- fiskerí á firðinum ffá því opn- að var og ólyginn heimilda- maður Skessuhoms sagði að vart væri hægt að koma niður veiðarfæmm fyrir ftski. Veiði hefur einnig verið góð að und- anförnu hjá þeim bátum sem hafa verið að sækja lengra. Meira sement FYRSTU þrjá mánuði ársins 1998 hefur sala Sementsverk- smiðjunnar á Akranesi aukist um 30% í samanburði við sömu mánuði síðasta árs. Svip- aðar tölur hafa ekki sést frá ár- inu 1988 en eftir það fór að draga úr sementssölu. Astæða aukinnar sölu em stóraukin umsvif í þjóðfélag- inu og vega þar þyngst stór- verkefni á borð við álvers- byggingu á Grundartanga, Hvalfjarðargöng ofl. Guömundur Runólfsson hf. á Verö- bréfaþing NÚ í vikunni vora hlutabréf í Guðmundi Runólfssyni hf. í Gmndarfirði skráð í fyrsta skipti á Verðbréfaþingi ís- lands. Fyrirtæki þurfa að upp- fylla ýmiss skilyrði til að svo væri hægt og uppfyllir GR hf. þau nú öll. Nýlega var boðið út hlutabréf f fyrirtækinu fyrir rumlega 30 milljónir króna að nafnvirði og seldust þau öll.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.