Skessuhorn


Skessuhorn - 30.04.1998, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 30.04.1998, Blaðsíða 13
1"» i>&fisau nir»u FIMMTUDÁGUR 30. ÁPRÍÚ998 13 ► Góð afkoma hafnarínnar ÁRSREIKNINGAR Akraneshafnar fyrir árið 1987 liggur nú fyrir. Tekjur voru 49,3 m.kr., rekstrargjöld 31,3 m.kr. og til ráðstöfunar eftir greiðslur lána krónur 15,5 milljónir. Afkoma hafnarinnar var mjög góð og að sögn Gísla Gíslasonar bæjarstjóra skipti mestu góð loðnuvertíð á síðasta ári. Miklar framkvæmdir eru fyrirhug- aðar við Akraneshöfn á þessu ári. Stærsta framkvæmd ársins er lagning þekju á Faxabryggju. Um er að ræða verk sem kostar um 20 milljónir og er síðasti áfanginn að sinni í að end- urbyggja bryggjuna, sem er eins og kunnugt er mest notuð af Sements- verksmiðjunni. Lægstbjóðandi í verkið er fyrirtækið Guðlaugur Ein- arsson ehf. Þá er gert ráð fyrir að hreinsa höfnina í ár. Nokkuð hefur borist af sandi og aur inn í höfnina sem leitt hefur til þess að stærstu skip hafa fundið fyrir fyrirstöðum þegar þau leggjast að. Höfnin hefur ár hvert varið nokkrum fjármunum til umhverfis- verkefna og er í ár gert ráð fyrir lag- færingum niður við gamla vitann, en Kiwanisklúbburinn Þyrill mun laug- ardaginn 6. júní n.k. afhjúpa minnis- Hafnarstjórn Akranesshafnar vir&ir fyrir sér hafnarsvæbib af svölum skrifstofunnar einn góbvibrisdag fyrir skömmu. Mynd: H.Dan. merki um Hafmeyjarslysið. myndir þar að lútandi hafa verið Nokkur vinna er þó eftir varðandi Unnið er að endurskoðun á kynntar stærstu notendum hafnarinn- einstaka þætti skipulagsins. deiliskipulagi hafnarinnar, en hug- ar. Opib hus á Bifröst LAUGARDAGINN 2. maí n.k. verður opið hús í Samvinnuhá- skólanum Bifröst frá kl. 13-16. Þar gefst þeim sem hyggja á nám við skólann og öðrum velunnurum hans kostur á að sækja Bifröst heim og kynna sér þær aðstæður sem nemendum eru búnar. Tekið verður á móti gestum og þeim boðið í kynnisferð um skólann þar sem m.a. kennslu- stofur, bókasafn, vinnuaðstaða nemenda og tölvuaðstaða verða til sýnis. Einnig gefst gestum kostur á að skoða hina nýju nemenda- garða. Nýlega voru tekin í notk- un 48 ný einstaklingsherbergi. Þá verða fjölskylduíbúðir í rað- húsum til sýnis. Loks verður leikskólinn á svæðinu opinn en hann sækja að, jafnaði. 1.5-20 böm nemenda og starfsmanna. ► ► n Astarhreíbríb Súgandisey við Stykkishólm er vinsæll áningarstaður ferðamanna og skipar einnig stóran sess hjá heima- mönnum. Þegar eyjan var tengd við land var gengist í að vemda gróður hennar sem best og hefur umgengnin verið góð og landið lítið spillst af umferð manna. I eyjunni er lítil laut sem ber nafn- ið Ástarhreiðrið sem hefur mikið að- dráttarafl fyrir þá sem koma í eyjuna. Af skiljanlegum ástæðum hætti ljós- myndari Skessuhom sér ekki of nærri heldur smellti þessari mynd af hreiðrinu úr hæfilegri fjarlægð. Sjaldan fellur... Baldur Ólafsson rekstrarabili Skútunnar á Akranesi leitar ekki langt yfir skammt eftir abstob. Sonur hans var í starfsnámi þegar Ijós- myndara Skessuhorns bar þar ab fyrir skömm og ekki var annab ab sjá en sá stutti væri snöggur ab læra handtökin. Itfú er ****** J fyrir ö Ql j u J með Borgarnes gæða grillkjjjöti

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.