Skessuhorn - 30.04.1998, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
9
L/ntsaunu...
PENNINN
Frumkvæí)irtil
framtíbar
„Þetta er láglaunasvæði, hér
skortir alla samstöðu, unga fólk-
ið kemur ekki heim aftur“
Svona setningar hafa heyrst
oft og víða síðustu árin.
Er þetta satt og rétt?
Skortir okkur Borgfirðinga
metnað og samstöðu, nýja hugs-
un og sóknarhug?
Bíðum við bara eftir því að ein-
hver utanaðkomandi færi okkur
ný atvinnutækifaeri og hálauna-
störf upp í hendumar?
Því trúi ég ekki, því ef svo er þá
getum við pakkað saman strax.
Nýverið hefur verið efnt til
umræðu meðal almennings um
þessi mál. Markaðsráð Borgar-
fjarðar reið á vaðið og efndi til
fjögurra umræðukvölda í sept-
ember s.l., í samvinnu við At-
vinnuráðgjöf SSV. Þar kom sam-
an fólk víðs vegar að úr hérað-
inu, báðum sýslum.
I haust efndi Atvinnumála-
nefnd Borgarbyggðar til um-
ræðna um atvinnumál og skipaði
vinnuhópa fólks úr sveitarfélag-
inu. Til stóð að niðurstöður
þeirrar vinnu kæmu út í febrúar
en eitthvað hefur þeim seinkað.
Það hefur greinilega komið
fram að í héraðinu skortir fólk
ekki hugmyndir, né vilja til sam-
stöðu. Einhver verður þá að hafa
frumkvæðið og ekki er óeðlilegt
að það séu sveitarstjórnir.
Oft var þörf, en nú er nauðsyn!
Nauðsyn á stórátaki í atvinnu-
þróun og atvinnumálum.
Það er rétt að hér eru fá há-
tekjustörf, sjávarútvegur ekki til
staðar, en hér er fyrir hendi mik-
il þekldng í margs konar iðnaði.
T.d. í matvælaiðnaði tengdum
Iandbúnaði sem er okkar frum-
framleiðslugrein.
Hví skyldi sá iðnaður ekki geta
skilað okkur, og þjóðarbúinu,
jafn miklum tekjum og arði og
fiskvinnslufyrirtækin? Hver segir
að kétið sé ekki- líka matur á vort
daglega borð? Eða boðlegt til út-
flutnings?
Hér er þegar eitt matvælafyrir-
tæki sem er í sókn á erlendum
markaði.
Hér er mikil þekking og
reynsla í grænmetisræktun.
Hér er komin töluverð upp-
bygging og þekking í ferða-
mannaþjónustu, en það er sú at-
vinnugrein sem mestur vaxtar-
broddur er í í veröldinni.
Svona mætti áfram telja.
Brýna nauðsyn ber nú
til þess að byggja upp arðbæra
atvinnu til franptíðar bæði í
Borgarnesi og annars staðar í
sveitarfélaginu. Slíkt ber að gera
eftir faglega úttekt á möguleik-
um landssvæða og landgæðum.
Einnig þarf að standa vörð um
Á INTERNETJNU
www.aknet.is/
borgarfjardarlistinn
borgarfjandarlistinn @aknet .is
og efla þau atvinnutækifæri sem
þegar eru til staðar, t.d. í nálægð
við menntastofnanirnar.
Svo vikið sé að hring-
veginum, mun megin áhrifaþátt-
ur í uppbyggingu atvinnulífs í
framtíðinni tengjast nærveru
okkar við þjóðveg nr. 1, einkum
í Borgarnesi.
Staða bæjarins er einstök að
því leyti að þar eru og verða um
ókomin ár ein fjölförnustu
gatnamót á landsbyggðinni. Slík
sóknarfæri ber að nýta, en hafa
ber í huga að mikil umferð og
umsvif hafa einnig ókosti og þá
verður að Iágmarka með öllum
tiltækum ráðum.
Borgarbyggðarlistinn hefur
það að markmiði að tryggja
nægjanlegt framboð lóða með
góðu rými fyrir verslun og þjón-
ustu sem verði í góðum tengsl-
um við hringveginn.
Það er ekki vilji Borgarbyggð-
arlistans að sveitarfélagið Ieggi
fjármagn í atvinnustarfsemi á
þann hátt sem gert hefur verið
undanfarin ár. Allir vita að þar
hafa tapast umtalsverðir fjár-
munir. Hins vegar er öllum Ijóst
að áhættufjármagn vantar í at-
vinnustarfsemi í héraðnu.
Borgarbyggðarlistinn vill beita
sér fyrir því að leita samstöðu
um stofnun Atvinnuþróunar-
sjóðs Borgarfjarðar hf. í sam-
starfi við önnur sveitarfélög og
fjármálastofnanir í héraðinu.
Sjóð, sem verði rekinn á fagleg-
um grundvelli.
Hlutverk hans verði tvíþætt:
1) að auðvelda stofnun nýrra
fyrirtækja, með hlutafjárþátt-
töku, og að greiða fyrir nýsköpun
í þeirri atvinnustarfsemi sem er
til staðar, með sama hætti.
2) að skapa skilyrði til þess að
sveitarfélagið geti hætt beinum
afskiptum og/eða þátttöku í at-
vinnurekstri.
Borgarbyggðarlistinn vill ein-
nig taka upp þá vinnureglu að
bæjarfulltrúar sitji ekki í stjórn-
um þeirra fyrirtækja sem sveitar-
félagið á f nú þegar. Vænlegra er
að sveitarfélagið skipi fagfólk á
sviði stjórnunar og reksturs sem
fulltrúa sína í stjórnir þessara
fyrirtækja.
Borgarbyggðarlistinn hefur á
að skipa kraftmiklu fólki sem
mun hafa bjartsýni, samheldni,
frumkvæði og fagleg vinnubrögð
að leiðarljósi á næsta kjörtíma-
bili.
Virkjum þann kraft og þá
þekkingu sem við búum yfir og
sækjum okkur nýja þar sem þörf
er á.
Verið sæl að sinni.
Kristín Þorbjörg Halldórsdóttir
1. maður á lista Borgarbyggð-
arlistans.
Hagyrðingakvöld
Verður haldið í Brautartungu fimmtu-
dagskvöldið 30. apríl kl. 21.00.
Þáttakendur: Dagbjartur Dagbjartsson, Gunnar
Thorsteinsson, Helgi Björnsson, Vigfús Péturs-
son og Þórdís Sigurbjörnsdóttir.
Stjórnandi verður Kristján B. Snorrason úr Borg-
arnesi.
Leikdeildin flytur leikgerð úr Þorpinu eftir Jón úr
Vör í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð.
Flutt verður gömul ríma eftir Þorstein Kristleifs-
son um bændur og húsfreyjur í Lundarreykjadal.
Samkomugestir botna hálfkveðnar vísur.
UMF Dagrenning
Atvinna
Vantar fólk til starfa
Næg atvinna framundan. Erum að Ijúka við að mála
glæsilega sundlaug í Grafarvogi.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofum Skessuhorns-Pés-
ans í Borgarnesi og á Akranesi.
Híbýlamálun Garðars Jónssonar
sími 431 2646 og 896 2356
Málningarverktakar
Á toppnum án tóbaks.
SNÆFELLSBÆR
Snæfellsbær
Auglýsing um
framboðsfrest
vegna sveitarstjórnarkosninga í Snæfellsbæ 23.
maí 1998.
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga
í Snæfellsbæ 23. maí 1998 rennur út kl. 12.00 á
hádegi, laugardaginn 2. maí 1998.
Framboðslistar skulu hafa borist formanni yfir-
kjörstjórnar fyrir ofangreindan tíma.
Yfirkjörstjórn verður í Grunnskólanum í Ólafsvík,
laugardaginn 2. maí 1998 frá kl. 11.30 til 12.00
og veitir þar framboðslistum viðtöku.
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar.
Auglýsing
frá yfirkjörstjórn
Andakíls-, Lundarreykjadals-,
Reykholtsdals- og Hálsahreppa
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnakosninga 23. maí
1998 rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 2. maí n.k.
Kosið er sameiginlega til sveitarstjórnar í ofangreindum
hreppum, sbr. samþykkt hreppsnefnda þeirra 2. apríl
1998.
Yfirkjörstjórn verður í Kleppjárnsreykjaskóla
laugardaginn 2. maí kl. 11-12 og tekur á móti framboðs-
listum. Um frágang þeirra er vísað til VI. kafla laga um
kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
í yfirkjörstjórn
Bjarni Guðmundsson, Hvanneyri
Guðlaugur Óskarsson, Kleppjárnsreykjum
Þórður Stefánsson, Arnheiðarstöðum
Heilsuefling hefst hjá þér. Langar þig til
r * að bæta heilsuna með aukinni hreyf-
ingu, bættu mataræði og heilbrigðari
lífsháttum?
Við viljum aðstoða þig!
Við bjóðum uppá:
Heilsufarsmat með mælingum t.d. á blóðþrýst-
ingi og könnunum á mataræði og hreyfingu.
Ráðgjöf um heilsueflingu t.d. hvernig hefja skal
líkamsrækt, breyta mataræði eða hætta að
reykja.
Nánari upplýsingar og tímapantanir á Heilsu-
gæslustöðinni Akranesi sími: 431 2311.
Þessi þjónusta mun standa til boða fimmtudag-
ana 7. og 14. maí frá kl. 13:00 til 16:00 og laug-
ardagana 9. og 16. maí frá kl. 10:00 til 12:00 og
er þér að kostnaðarlausu.
Hjúkrunarfræðingar á
Heilsugæslustöðinni Akranesi