Skessuhorn - 11.06.1998, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1998
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262
FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is
Afgrelðsla á Akranesi að Stillholtl 18 er opin eftir hádegi virka daga, sími 431 4222
Útgefandi: Skessuhorn ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098
Framkvæmdastjóri og blaðamaður: Arinbjörn Kúld, sími 899 6165
Auglýsingar: Magnús Valsson, sími 437 2262
Fjóla Ásgeirsdóttir, sími 431 4222
Hönnun og umbrot: Isafoldarprentsmiðja hf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Aðalskrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00-16:00
Skrifstofan að Stillholti 18 á Akranesi er opin kl. 13-17.
Skessuhorn-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánu-
dögum. Litaauglýsingar sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þö að berast blaðinu í sfðasta lagi
á hádegi á mánudögum. Auglýsendum er bent á að panta augiýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 5.800 eintökum og dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrirtæki á Vesturlandi auk
Kjalarness, Kjósar og Reykhóla.
Fýlupokar
allra flokka
sameinist!
„Reiður varð þá Vingþór er hann vaknaði / og síns hamars um sakn-
aði“. Þannig segir frá því í Þrymskviðu er þrumuguðinn og jám-
smiðurinn Þór uppgötvaði að einhver hafði hnuplað slaghamrinum úr
vélsmiðju hans að næturlagi.
Alíka mun þmmuguði nútímans, Sverri Hermannssyni, hafa verið
innanbrjósts er hann rumskaði og áttaði sig á því að einhveijir T - synir
höfðu rænt hann meintu mannorði. Ahrifin og eftirköstin urðu heldur
ekki minni hjá Sverri en forvera hans. Þegar Þór lumbraði á hamarsþjóf-
unum skalf jörðin og nötraði svo að elstu menn muna vart annað eins.
Sagan endurtók sig fyrir stuttu þegar Sverrir tók að tukta til hina ill-
ræmdu mannorðshnuplara. Atgangurinn varð þvílíkur að ekki hefur
mælst snarpari jarðslkjálftahrina á Suðurlandi síðari áramgi.
Venjulegur maður hefði sjálfsagt grátið með ekkasogum yfir því að
horfa upp á önglana sína ryðga og maðkana visna á þurru landi í stað
þess að falla í bardaga við laxinn og hverfa til Valhallar. Ekki Sverrrir.
Hann beit á jaxlinn, glennti upp ginið og hleypti út munnfylli af
fúkyrðum og tók síðan fram haglabyssuna.
Þrumuguðinn Þór fékk sér maskara og klæddi sig í kvenmannsföt til
að laumast að óvininum en Sverrir leggst ekki svo lágt. Sjálfsagt hefði
honum verið það í lófa lagið að smeygja sér í dragt og læðast inn í
kvennalistann en hann þarf ekki að skýla sér bak við nein dulargerfi.
Hann kemur fram í eigin persónu og syndir á móti straumnum eins og
lax á vordegi. Því tók hann sig til, þegar ritvöllur Morgunblaðisns dugði
honum ekki lengur, og stofnaði nýjan stjómmálaflokk til að vinna gegn
veiðimönnum og hverslags siðspillingu. Á fáeinum dögum er hann
búinn að safna liði og nægum atkvæðum til að vinna stóra sigra og þá
er aðeins eftir að finna Finn í fjöru.
Nýi flokkurinn mun samanstanda af fýlupokum allra flokka. Þar
verða menn sem beygðu útaf sinni framabraut eða urðu að hætta sökum
aldurs, fyrir aldur fram. Misskildir stjómmálamenn sem hefðu orðið
vinsælir ef þjóðin væri ekki einfaldlega heimsk.
Utkallið hljómar á þessa leið: Leyfið fýlupokunum að koma til mín
og bannið þeim það elski.
Það má kannslri teljast merkilegt að hér á landi þurfa menn helst að
hafa bevís uppá skandal til að mark sé á þeim tekið og til að öðlast
almennar vinsældir. Sumir hafa setið á þingi ámm eða áratugum saman
án þess að nokkur hafi sýnt þeim áhuga, en um leið og þeir fara í fýlu
og skella hurðum þjóta þeir upp vinsældalistann. Það hefur a.m.k. skeð
hvað eftir annað að F-pokaframboð hafi slegið í gegn. Að vísu hefði
Sverrir kannski átt að sækja í reynsluheim kvenna og fá móðurlegar ráð-
leggingar hjá Jóhönnu vinkonu sinni. Hún hefði væntanlega getað sagt
honum að það getur verið vafasamt að fara of snemma í fýlu. Það þarf
að gerast mátulega stuttu fyrir kosningar því Fýlupokasamúðin endist
frekar skammt eins og sannaðist í síðustu alþingiskosningum.
Einn af mörgum kostum við fýlupokaframboðin er sá að eftir hámark
eitt kjörtímabil snýr týndi sonurinn heim aftur í sinn gamla flokk og allir
faðmast og kyssast og tárvotir hvarmar prýða forsíður dagblaðanna.
Gallinn er þó sá að í þessi fýlupokaframboð sækja gjaman gamlir og
afskrifaðir pólitíkustar, vandræðagemlingar og rósturseggir sem
flokkamir vom búnir að losa sig við með því að skenkja þeim feitum
embættum. Það er rétt eins og misheppnuð gelding.
Hvað um það sé ég mér leik á borði. Eg ætla þó ekki að láta minn tíma
líða og bíða svo endalaust eftir að hann komi. Eg mun stytta mér leið og
vind mér beint í það að vera í fýlu. Síðan tek ég fram gömlu rússnesku
einhleypuna hans föður míns og lem af henni mesta ryðið, hreyti
fúkyrðum í einhvem málsmetandi mann, auglýsi eftir fýlupokum og fer
í framboð. Eg er í rauninni svo gott sem kominn á þing.
Gísli Einarsson, fýlupoki.
Bifreiðin dregin upp töluvert mikib skemmd. Mynd: Rósant Egilsson
Bíll valt í Grundaifírbi
Bifreið fór útaf veginum við Gmnd- bflnum og sluppu allir með minni-
ará í Gmndarfirði um fjögurleytið háttar meiðsli en bifreiðin er illa
aðfaramótt laugardags. Femt var í farin. G.E.
Nýjungar í lántök-
um hjá Akranesbæ
Fimmtudaginn 28. maí s.l. var
undirritaður lántökusamningur milli
Akraneskaupstaðar annars vegar og
Fjárfestingabanka Atvinnulífsins
hinsvegar um endurfjármögnun til
uppgreiðslu á eldri lánum bæjarins
sem vom orðin óhagstæð miðað við
þau lán sem bjóðast á markaðinum í
dag. Aðdragandi þessa samnings er
sá að bæjarstjóm, að tillögu bæjar-
ritara, ákvað að láta fara fram
skuldabréfaútboð í þeim tilgangi að
lækka vaxtakostnað bæjarins og
minnka greiðslubyrði. Útboðið tók
jafnt til erlendra lána sem og innlen-
dra. í ljós kom að tilboð Fjárfestinga-
banka Atvinnulífsins var hagstæðast.
Tilboðið hljóðaði upp á 223 milljónir
króna og er saman sett af fimm erlen-
dum gjaldmiðlum á hverjum tíma til
að lágmarka vaxtakostnað. Lánið er
til 20 ára og má greiðast upp hvenær
sem er á lánstímanum, ef bæjar-
yfirvöldum sýnist það hagkvæmara.
Tilgangurinn með lántöku þessari er
að dreifa áhættu milli innlendra og
erlendra lána þannig að vaxtagreiðsl-
ur verði sem lægstar á hverjum tíma.
Vöktun verbbré-
fafyrirtækis
Auk þess að endurfjármagna eldri
skuldir er ein nýjung sú að bærinn
mun fá til liðs við sig verðbréfa-
fyrirtæki til að sjá um svokallaða
vöktun á samsetningu erlendra gjald-
miðla í skuldum bæjarins, þ.e. að
reikna út á þriggja mánaða fresti
hagstæðustu samsetningu erlendra
gjaldmiðla á þessu láni. Valið stendur
á milli níu erlendra gjaldmiðla og má
lánið samanstanda af fimm þeirra á
hverjum tíma. Tilgangur slíkrar vökt-
unar er að lækka vaxtakostnað sem
mest og bæta þar með hag bæjarsjóðs
til lengri tíma litið, en talið er að
sparnaður bæjarins verði um 20
milljónir í vaxtakostnaði miðað við
lánstíma þeirra lána sem greidd
verða upp.
-A.Kúld
Gísli Gíslason bæjarstjóri og Bjarni Ármannsson bankastjóri takast í hendur
oq innsiqla samninq bæjarins og Fjárfestinqabanka atvinnulífsins.
Mynd: A.Kúld
Sameining tekur gildi
S.l. sunnudag, 7. júní, tóku form-
lega gildi sameiningar sveitarfélaga á
nokkrum stöðum á landinu. Aðilar að
þessum sameiningum voru alls 47
sveitarfélög sem á sunnudaginn urðu
að níu. Tvær af þessum sameiningum
sveitarfélaga voru á Vesturlandi. Þar
sameinuðust fjögur sveitarfélög í
Mýrarsýslu; Borgarbyggð, Borgar-
hreppur, Álftaneshreppur og
Þverárhlíð. I Borgarftrði sameinuð-
ust Andakflshreppur, Lundarreykja-
dalshreppur, Hálsahreppur og Reyk-
holtsdalshreppur í eitt sveitarfélag. í
sveitarstjómarkosningunum þann 23.
maí voru kosnar sveitarstjómir fyrir
þessi nýju sveitarfélög en ekki er
endanlega búið að ákveða nöfn
þeirra. Þó em allar líkur á að hið nýja
sveitarfélag í Mýrasýslu muni heita
Borgarbyggð en nýja sveitarfélagið í
Borgarfirði mun væntanlega heita
Borgarfjörður.
G.E.
Sveitarstjórn hins nýja Sveitarfélags í BorgarfiröiF.v. Ríkharö Brynjólfsson,
Bergþór Kristleifsson, Ágústa Þorvaldsdóttir, Bjarki Már Karlsson og Þórir
Jónsson. Mynd: G.E.
Vitni á dag-
peningum
Vitnaleiðslur hófust s.l.
fimmtudag í meiðyrðamáli sem
Jón Kjartansson bóndi á Stóra
Kroppi höfðaði gegn Þorsteini
Péturssyni á Hömmm í Reyk-
holtsdal og Jóni Björnssyni
hreppsstjóra og hreppsnefndar-
manni í Deildartungu í sömu
sveit.
Orsök málsins em ummæli
hinna stefndu í garð Jóns Kjart-
anssonar, annarsvegar á
hreppsfundi og hinsvegar á
hreppsnefndarfundi á síðasta
ári. Fjöldi vitna var kallaður til
og meðal annarra Gísli S. Ein-
arsson alþingismaður. Gísli
krafðist þess að sér yrði greidd-
ur ferðakostnaður til Héraðs-
dóms Vesturlands í Borgamesi.
Var orðið við þeirri kröfu og sá
er kvaddi til vitnið greiddi
10.000 krónur til að fá hann á
staðinn. Gísli hélt þó ekki fénu
sjálfur heldur lét það renna til
leikskólans í Reykholtsdal tii
kaupa á leikföngum! G.E.
Gísli S. Einarsson alþingis-
mabur styrkir Reykdælinga.
Níöurfellingu
virbisauka-
skatts hafnaö
Bæjarstjóm Akraness fór
þess á leit við fjármálaráðu-
neytið fyrir skömmu að felldur
yrði niður virðisaukaskattur af
veggjaldi í Hvalfjarðargöngin.
Svar
Fjármálaráðuneytisins var
neikvætt og verður virðisauka-
skatturinn því innheimtur. Enn
er þó ekki ljóst hversu hár hann
verður, því fyrir Alþingi liggur
frumvarp um að hann verði
aðeins 14% í stað 24,5%. G.E.
Ársreikningur
Borgar-
byggöar
Ársuppgjör bæjarsjóðs Borg-
arbyggðar fyrir árið 1997 var
lagt fram fyrir stuttu. Skatt-
tekjur voru 323,6 milljónir
króna eða 14,6 m. hærri en fjár-
hagsáætlun gerði ráð fyrir og
66,1 milljón hærri en árið áður.
Kemur þar til yfirfærsla gmnn-
skólanna og einnig betra at-
vinnuástand.
Rekstargjöld málaflokka
urðu 282,7 milljónir, eða 87%
af skatttekjum sem er 7% meira
en áætlun gerði ráð fynr. Þar
munar mestu um aukinn launa-
kostnað.
Gjaldfærð fjárfesting varð
85,8 milljónir eða 2,5% um-
fram áætlun og eignfærð fjár-
festing varð 56,8 milljónir eða
3,2 milljónir undir áætlun.
Skuldir á íbúa í Borgarbyggð
em um 75.000 krónur sem er
fremur lágt miðað við sambæri-
leg sveitarfélög, ekki síst í ljósi
mikilla framkvæmda á síðustu
ámm. GE