Skessuhorn


Skessuhorn - 11.06.1998, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 11.06.1998, Blaðsíða 16
SKARTGRIPIR - GJAFAVARA MODEL STliHOU118 - MQUKSi "S 431 3333 Æ Aðalskoðun hf. í Grundarfirði Þín bifreiSaskoðun - Stöðugt á staðnum Símar 438 65 46 og 555 33 55 VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI -16. tbl. 1. árg. 5. júní 1998 Sami meiri- hluti í Borg- arbyggb og Óli jón bæjarstjóri næstu tvö árin Um síðustu helgi var gengið frá myndun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Borgamess. I samtali við Skessuhom á sunnu- dagskvöldið sagði Guðmundur Guð- marsson oddviti framsóknarmanna að helstu atriði í málefnasamningi flokkanna væri einsetning Gmnn- skólans í Borgamesi og skólastefna fyrir báða skólana í Borgarbyggð. Þá sagði hann að lögð yrði áhersla á gerð aðalskipulags fyrir allt sveitar- félagið. Einnig er í málefna- samningnum rætt um að fylgja nýaf- staðinni sam- einingu sveit- arfélaga í Mýrasýslu eftir og gera jákvæð áhrif hennar son ver&ur bæjar- sem mest. stjóri í tvö ár enn j samkomu- Gu&mundur Gu&- marsson ver&ur áfram forseti bæjarstjórnar Borgarbygg&ar lagi flokkanna er kveðið á um að embætti bæjarstjóra og forseta bæjarstjómar skiptist á milli flokk- anna. Guðmundur Guðmarsson verður forseti bæjarstjómar fyrstu tvö árin en Oli Jón Gunnarsson bæjarstjóri. Síðari tvö ár kjörtíma- bilsins verður Oli Jón forseti bæjarstjórnar en framsóknarmenn ráða nýjan bæjarstjóra. Formennska í bæjarráði verður hjá hvomm flokki fyrir sig sömu árin og bæjarstjóraem- bættið. Guðmundur sagði að við skipun nefnda yrði hlutfall bæjarfull- trúa látið ráða. Það þýðir að hlutfall fulltrúa frá Borgarbyggðarlistanum verður hæst. Aðspurður um langan aðdraganda meirihlutamyndunarinnar sagði Guð- mundur að ýmis mál hefðu staðið í mönnum og nefndi þar sérstaklega ráðningu bæjarstjóra. Guðmundur kvaðst bjartsýnn á áframhaldandi gott samstarf þessara flokka þótt töluvert væri af nýju fólki meðal bæjarfulltrúanna. G.E. Frábær frammistaba íslensku verktakanna segir framkvæmdastjóri Norburáls, Gene Caudrill Fyrstu kerin í nýju álveri Norðuráls á Grundartanga voru gangsett mánudaginn 1. júní s.l. en framleiðsla á áli hófst viku síðar. Blaðamaður Skessuhoms ræddi við Gene Caudill framkvæmdastjóra Norðuráls s.l. föstudag. Gene sagði að kerin yrðu gangsett jafnt og þétt næstu fimm vikumar eða svo. „Við reiknum með að það taki uppundir 40 daga að starta fyrstu 60 kerjunum en í flestum tilfellum getum við gangsett tvö á dag. Kerin em 120 í allt en það er ekki ljóst í dag hvenær hægt verður að gangsetja síðari hlutann. Við bíðum eftir svari frá Landsvirkjun um hvort þeir geti útvegað okkur næga raforku strax í sumar. Ef svo verður ekki em líkur á að gangsetning þeirra sextíu kerja sem eftir verða geti ekki hafist fyrr en í nóvember", sagði Gene. Planta trjám Gene sagði að framkvæmdaáætlun hefði staðist hundrað prósent til þessa og í raun væri allt tilbúið sem til þyrfti. „Það er allt klárt sem við þurfum til að hefja framleiðslu en ennþá er mikið um að vera héma á svæðinu við ýmiskonar frágang og eftirvinnu. Ég reikna með að framkvæmd- um ljúki að fullu á næstu 3-4 vikum, þar með talið frágangi á lóð. Síðan munum við nota sumarið m.a. til að planta trjám og þökuleggja og malbika helstu vinnusvæði og umferðaræðar á staðnum. Þá verður lögð á það gífurleg áhersla að vinnusvæði álversins og umhverfi þess verði til fyrirmyndar hvað umgengni varðar". Hæft starfsfólk Megnið af þeim mannskap sem kemur til með að starfa í nýja álver- inu er kominn á staðinn en gengið hefur verið frá ráðningu 115 manna sem starfa munu við hina mismunan- di þætti framleiðslunnar. Hluti þes- sara manna hefur verið í starfsþjálf- un, m.a. í álveri í Þýskalandi. Gene kvaðst mjög ánægður með hæfileika og menntun þeirra manna sem ráðnir voru. „Það er ljóst að við höfum strax í byrjun á mjög hæfu starfsfólki að skipa enda vorum við svo heppnir að geta valið úr miklum fjölda umsækj- enda. Umsóknir fyrir þessi 115 störf voru vel yfir 1100 sagði Gene. Ótrúlegur framkvæm- dahraði Eins og flestum mun kunnugt hefur ffamkvæmdahraðinn við bygg- ingu álversins verið ótrúlegur en það tók aðeins 13 mánuði að ljúka við þessi mannvirki sem hafa til samans um 37 þúsund fermetra gólfflöt, eða eins og fimm fótboltavellir í fullri stærð. Meira að segja hefúr verið rætt um heimsmet í sambandi við bygg- ingatímann. Gene staðfesti það að aldrei hefði verið byggt stóriðjuver á jafn stuttum tíma. „Venjulega taka framkvæmdir af þessu tagi um tvö ár en þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel. Það er fyrst og ffemst að þakka þeim verktökum sem komu að þess- um framkvæmdum en við erum mjög ánægðir með þessa íslensku verktaka sem hér hafa unnið. Þeirra frammi- staða er frábær“, sagði Gene Caudrill að lokum. G.E. Gene Caudrill framkvæmdastjóri Nor&uráls. Mynd: G.E TILBOÐUM FRÁ McVITIE’S IVÖRUHÚSI 4 K.B. BORGARNESI ^ MUNIÐ EFTIR FRÁBÆRUM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.